Kynferðisofbeldi

Vikið úr landsliði í hestaíþróttum vegna kynferðisbrots
Stjórn Landssambands hestamannafélaga og landsliðsnefnd hafa vikið einum landsliðsmanni úr landsliðshópi Íslands í hestaíþróttum. Ástæðan er refsidómur sem landsliðsmaðurinn fyrrverandi hefur hlotið fyrir kynferðisbrot.

Skýr tengsl milli afstöðu karla til kvenna og kynferðisofbeldis gegn konum
Í rannsókn sem náði til 554 karlkyns háskólanema játuðu 63 að hafa nauðgað eða beitt aðra kynferðisofbeldi eða öðru ofbeldi gegn vilja þeirra. Einstaklingarnir 63 játuðu alls 251 atvik og þá leiddi rannsóknin í ljós skýr tengsl á milli ofbeldisins og afstöðu karlanna til kvenna.

Fjölga í kynferðisbrotadeild vegna holskeflu mála
Málum á borði kynferðisbrotadeildar lögreglu hefur fjölgað um tæpan þriðjung milli ára á höfuðborgarsvæðinu. Mesta fjölgunin er í flokki mála þar sem brotið er gegn börnum, auk þess sem málin eru erfiðari í rannsókn en áður. Bætt verður við mannskap til að anna álaginu.

Fordæma yfirlýsingu bæjarstjórnar á Hornafirði vegna kynferðisbrotamáls
Nokkrir tugir íbúa og aðila tengdum sveitarfélaginu Hornafirði fordæma yfirlýsingu bæjarstjórnar í kjölfar dóms í kynferðisbrotamáli aðila tengdum bæjarstjóra sveitarfélagsins. Telja þeir illa hafa verið staðið að málum á meðan rannsókn lögreglu stóð og vísa til þess að starfsmanni, sem grunaður var um kynferðisbrot, hefði ekki verið vikið frá störfum.

Grunur um að herinn hafi hylmt yfir morð breskra hermanna
Hershöfðinginn Mark Carleton-Smith segist blöskra ásakanir þess efnis að breskir hermann kunni að hafa átt þátt í morðinu á konu í Kenía árið 2012. Segist hann munu vinna með yfirvöldum að því að upplýsa málið.

Fjölskyldutengsl bæjarstjóra við geranda í kynferðisbrotamáli
Sveitarfélagið Hornafjörður gaf frá sér yfirlýsingu vegna fjölmiðlaumfjöllunar í tengslum við dómsmál fyrr í dag. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu varðar dómsmálið brot þáverandi starfsmanns bæjarins gegn samstarfskonu í vinnuferð.

Aðstoðarkona Clinton segir þingmann hafa ráðist á sig
Huma Abedin, einn nánasti ráðgjafi Hillary Clinton, lýsir því hvernig öldungadeildarþingmaður réðst á hana kynferðislega í endurminningum sínum. Atvikið hafi átt sér stað þegar Clinton var í öldungadeildinni á fyrsta áratug þessarar aldar.

Telur ofbeldisfullar hópsenur í klámi geta stuðlað að fjölgun hópnauðgunarmála
Talskona Stígamóta telur opnari umræðu en áður, sem og áhrif úr klámi, geta stuðlað að fjölgun tilkynninga um hópnauðganir til neyðarmóttöku í ár. Erfiðara sé fyrir þolendur hópnauðgana en aðra að fara með mál sín í gegnum dómskerfið þar sem gerendur geti talað sig saman.

Nítján leitað til neyðarmóttöku kynferðisofbeldis vegna hópnauðgana
Nítján hafa leitað til neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis vegna hópnauðgana það sem af er ári. Árið 2020 leituðu þrettán einstaklingar til móttökunnar og sex árið 2019.

Taka þurfi byrlanir alvarlega en sönnun sé helsta hindrunin
Dómsmálaráðherra segir mikilvægt að réttarvörslukerfið taki vel á byrlunarmálum og að frásagnir af slíku séu teknar alvarlega. Fyrst og fremst þurfi að horfa til ábyrgðar gerenda.

Evra opnar sig varðandi kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir sem táningur
Patrice Evra, fyrrum leikmaður Manchester United og franska landsliðsins, hefur stigið fram og opnað sig varðandi kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir þegar hann var aðeins 13 ára gamall.

Þrjú ár fyrir nauðgun: Sagðist mjög kinkí í rúminu en fór fram með ofbeldi
Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi í Landsrétti fyrir að nauðga vinkonu sinni haustið 2018. Landsréttur þyngdi dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra sem áður hafði verið dæmdur í tveggja ára fangelsi.

Kannast ekkert við byrlunarfaraldur í Reykjavík
Yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglu og eigendur skemmtistaða og pöbba í miðbæ Reykjavíkur kannast ekki við það að byrlunarfaraldur geysi í miðbæ Reykjavíkur. Eigandi Bankastræti Club í Reykjavík segist vita um nokkur tilvik sem upp hafi komið á staðnum undanfarnar vikur og fleiri stöðum.

Glænýr FO bolur til stuðnings „gleymdu kvennanna“ í Mið-Afríkulýðveldinu
UN Women á Íslandi hóf í dag sölu á FO bolnum 2021 og rennur allur ágóði til verkefna UN Women í Mið-Afríkulýðveldinu.

Gylfi Þór áfram laus gegn tryggingu til 16. janúar
Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrnumaður, verður áfram laus gegn tryggingu til 16. janúar 2022. Gylfi er til rannsóknar hjá lögreglunni í Manchester á Bretlandi grunaður um að hafa brotið kynferðislega á barni.

Enn ekkert nýtt í máli Gylfa
Talskona lögreglunnar í Manchester á Bretlandi segir enn engar fregnir hafa borist um mál Gylfa Þórs Sigurðssonar, knattspyrnumanns. Gylfi er laus gegn tryggingu en það fyrirkomulag rann út á laugardag og taka átti ákvörðun í máli hans sama dag.

Þolendur kynferðiofbeldis
Skiptar skoðanir hafa verið uppi um málefni KSÍ og ekki auðvelt að greina rétt frá röngu. Margir kollegar mínir hafa séð sig knúna til að deila skoðunum sínum á málinu og hafa réttilega bent á margar grunnstoðir réttarríkisins.

Umtalað ofbeldismál fékk ekki leyfi frá Hæstarétti
Hæstiréttur ákvað á dögunum að taka ekki fyrir víðfrægt ofbeldismál ungrar konu. Ríkissaksóknari óskaði eftir áfrýjunarleyfi til að fá betur úr því skorið undir hvaða lagagrein málið heyrði miðað við eðli sambands ofbeldismannsins og konunnar.

Var nauðgað í fullri lest á meðan aðrir farþegar sátu hjá
Lestarfarþegar í Fíladelfíu sátu hjá og gerðu ekkert á meðan konu var nauðgað í lestarvagninum á miðvikudagskvöld. Ekki einn farþeganna brást við á meðan á árásinni stóð og enginn hringdi í neyðarlínuna að sögn yfirvalda í Fíladelfíu.

Skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn samstarfskonu í vinnuferð
Kona var í gær dæmd til tveggja mánaða fangelsisrefsingar, sem fresta skal til tveggja ára haldi hún almennt skilorð, fyrir að brjóta kynferðislega gegn samstarfskonu sinni í vinnuferð til Reykjavíkur árið 2019.

Dómur vegna nauðgunar á sex ára barnabarni þyngdur um hálft ár
Karlmaður var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi í Landsrétti fyrir að hafa nauðgað og kynferðislega brotið á sex ára gömlu stjúpbarnabarni sínu. Þá var maðurinn dæmdur fyrir vörslu og áhorf á myndir sem sýndu börn á kynferðislegan hátt. Landsréttur þyngdi dóm Héraðsdóms Reykjaness um hálft ár.

„Líkami okkar, þeirra vígvöllur“
Christina Lamb, fréttastjóri hjá The Sunday Times og rithöfundur, flytur erindi á málþingi UN Women á Íslandi.

Opið þinghald í fimmta nauðgunarmáli „meðhöndlara“
Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að þinghald í máli Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar verði opið. Hann er ákærður fyrir nauðgun en hann var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrr á þessu ári fyrir að nauðga fjórum konum á meðferðarstofu sinni.

Segja KSÍ hafa borist upplýsingar um meint brot sex landsliðsmanna
Aðgerðahópurinn Öfgar sendi tölvupóst á stjórn Knattspyrnusambands Íslands 27. september síðastliðinn, sem innihélt meðal annars nöfn sex leikmanna karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu og upplýsingar um meint ofbeldis- og kynferðisbrot þeirra.

Raðnauðgari í fimm ára fangelsi fyrir að nauðga barnsmóður sinni
Karlmaður sem endurtekið hefur verið dæmdur fyrir kynferðisbrot hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að nauðga barnsmóður sinni og fyrrverandi sambýliskonu. Konan hafði komið á dvalarstað hans til að sækja föt á barn þeirra.

Mendy enn í steininum eftir að þriðju beiðninni um lausn gegn tryggingu var hafnað
Benjamin Mendy, leikmaður Englandsmeistara Manchester City, situr enn í steininum eftir að beiðni hans um að losna gegn tryggingu var hafnað í þriðja sinn.

Bryndís í uppnámi í dómsal: „Allt í einu var hún bara umsnúin“
Bryndís Schram, eiginkona Jóns Baldvins Hannibalssonar, virtist vera í talsverðu uppnámi þegar hún bar vitni fyrir dómi í dag í máli héraðssaksóknara gegn Jóni Baldvini. Honum er gert að sök að hafa káfað á rassi Carmenar Jóhannsdóttur í matarboði á heimili þeirra hjóna á Spáni í júní 2018.

Vilja að Jón Baldvin verði dæmdur í allt að þriggja mánaða fangelsi
Héraðssaksóknari leggur til að Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, verði dæmdur í tveggja til þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þetta kom fram í máli hans við lok aðalmeðferðar í máli hans gegn Jóni Baldvini fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Telur mögulegt að mæðgurnar hafi sett leikþátt á svið
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, neitar sök í máli héraðssaksóknara gegn sér þar sem hann er sakaður um að hafa strokið rassi Carmenar Jóhannsdóttur í matarboði á heimili hans á Spáni í júní 2018. Hann telur að Carmen og Laufey Ósk, móðir hennar, hafi mögulega komið í heimsókn til sín gagngert til að setja atvikið á svið og saka hann um kynferðisofbeldi.

Bannað að fjarlægja verju í miðjum klíðum
Ólöglegt er nú að fjarlægja smokk án samþykkis samkvæmt nýjum lögum sem ríkisstjóri Kaliforníu í Bandaríkjunum staðfesti í síðustu viku. Kalifornía varð þá fyrsta ríkið til að banna slíkt hátterni