Bretland

Helen Óttars í herferð Juicy Couture
Fyrirsætan Helen Óttarsdóttir er búsett í London og hefur unnið að ýmsum spennandi verkefnum í tískuheiminum. Hún sat nýverið fyrir skvísumerkið Juicy Couture og stefnir jafnvel á bandarískan markað á næstunni. Blaðamaður tók púlsinn á henni.

Bretar afturkalla sum leyfi fyrir vopnaútflutningi til Ísrael
Stjórnvöld á Bretlandseyjum hafa ákveðið að afturkalla heimildir til vopnaútflutnings til Ísrael, vegna hættunnar á því að vopnin verði notuð við brot á alþjóðalögum.

Milljónir Oasis-aðdáenda berjast um miða
Miðasala á tónleika bresku hljómsveitarinnar Oasis hófst í dag með miklum látum, vægast sagt. Uppselt er á tónleikana í Dyflinn og dæmi eru um að miðar séu í endursölu á hátt í fimm milljónir króna.

Starmer sagður hafa látið fjarlægja málverk af Thatcher
Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hefur látið fjarlægja málverk af Margaret Thatcher heitinni úr Downing-stræti 10. Þetta segir Tom Baldwin, sem skráir ævisögu Starmer.

Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths
Morrisey, söngvari bresku rokksveitarinnar The Smiths, fullyrðir að Johnny Marr, fyrrverandi hljómsveitarfélagi sinn, hafi hunsað tilboð um að bandið kæmi aftur saman á tónleikaferðalagi um heiminn. Grunnt hefur verið á því góða hjá Morrisey og Marr í gegnum tíðina.

Sver af sér ásakanir um framhjáhald
Breska raunveruleikaþáttastjarnan Tommy Fury segir ásakanir þess efnis sem birst hafa á samfélagsmiðlum um að hann hafi haldið framhjá fyrrverandi kærustu sinni Molly-Mae Hague hryllilegar. Hann segir síðustu vikur hafa tekið gríðarlega á sig.

Ætluðu sér að myrða tugþúsundir á tónleikum Swift
Mennirnir sem voru handteknir í tengslum við fyrirhugaða árás á tónleika Taylor Swift í Vínarborg ætluðu sér að myrða tugþúsundir, að sögn aðstoðarforstjóra CIA.

Bjöllutromma og krikketkylfa: Erjurnar sem bundu enda á Oasis
Líklega eru frægustu erjur veraldar nú að baki, erjurnar á milli Oasis bræðranna Liam og Noel Gallagher sem hafa nú ákveðið að snúa aftur á sviðið fimmtán árum eftir að bræðurnir héldu hvor í sína áttina. Fáar erjur eru eins skrautlegar þar sem bjöllutrommur, krikketkylfur og óhófleg áfengisdrykkja koma við sögu.

Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll
Breska ríkisstjórnin hefur samþykkt áætlun sem felur í sér að farþegum um London City-flugvöll fjölgar úr 6,5 milljónum á ári upp í níu milljónir farþega á ári fyrir árið 2031. Þetta gerist með því að fleiri flugferðir verða leyfðar snemma á morgnana virka daga vikunnar. Ósk um rýmkun opnunartíma vallarins á laugardögum var hins vegar hafnað.

Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar
Liam og Noel Gallagher hafa boðað endurkomu sveitarinnar Oasis. Bræðurnir, sem hafa lengi eldað grátt silfur, virðast hafa slíðrað sverðin og tilkynntu opinberlega að þeir muni koma saman og halda fjórtán tónleika í Bretlandi og Írlandi næsta sumar.

Þriggja daga ævintýralegt brúðkaup á Amalfi
Breski leikarinn Ed Westwick og leikkonan Amy Jackson giftu sig við glæsilega athöfn á ítölsku eyjunni Amalfi um helgina. Brúðkaupið stóð yfir í þrjá daga og var ævintýri líkast.

Ólafur Ragnar ávítar breskan fjölmiðil
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, ávítaði breska fjölmiðilinn GB News fyrir fréttaflutning sinn af eldgosinu á Reykjanesskaga. Þrátt fyrir eldgosið segir Ólafur að Ísland sé öruggara en götur Lundúna.

Segir fitubúninginn hafa bjargað
Breski stórleikarinn Ian McKellen segir að fitubúningur, sem hann klæddist til að leika Shakespeare-persónuna Falstaff, hafi bjargað honum þegar hann datt af leiksviði í Lundúnum í júní. Áverkarnir hefðu verið mun verri hefði hann ekki klæðst búningnum.

Stjórnvöld virkja neyðarúrræði vegna yfirfullra fangelsa
Stjórnvöld á Englandi hafa virkjað neyðarúrræði vegna plássleysis í fangelsum landsins, sem hafa löngum verið yfirfull en eru nú komin að þolmörkum vegna óeirða síðustu vikna.

Eru að slökkva í síðustu glæðunum í Somerset
Slökkviliðiðið í London hefur nú náð tökum á eldi í Somerset húsi en tilkynnt var um eld þar um hádegisbil í dag. Á vef breska ríkisútvarpsins segir að um 125 slökkviliðsmenn hafi verið kallaðir að vettvangi í dag til að slökkva eldinn. Slökkvilið vinnur nú að því slökkva í síðustu glæðunum í þaki hússins.

Eldur logar í frægu listasafni í Lundúnum
Eldur logar í hinu víðfræga Somerset-húsi í miðborg Lundúna og eru um 125 slökkviliðsmenn á vettvangi.

Rauðu örvarnar koma síðdegis til Keflavíkur
Listflugsveit breska flughersins, Rauðu örvarnar, er væntanleg til Keflavíkurflugvallar síðdegis. Utanríkisráðuneytið segir núna að vegna flugskilyrða frá Bretlandi sé mjög ólíklegt að um verði að ræða eiginlega flugsýningu við komu sveitarinnar til Íslands.

Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi
Rauðu örvarnar, listflugsveit breska flughersins, hefur viðdvöl á Íslandi um helgina á leið sinni vestur yfir Atlantshaf. Áformað er að sveitin leiki listir sínar yfir Keflavíkurflugvelli síðdegis á laugardag, þótt flugsýning hérlendis sé ekki á formlegri dagskrá sveitarinnar.

Óttast aukna útbreiðslu sýklalyfjaónæmra lekandabaktería
Heilbrigðisyfirvöld í Englandi hafa áhyggjur af fjölgun tilvika sýklalyfjaónæmra lekandasýkinga. Nokkrir hafa þurft að leggjast inn þar sem hefðbundin sýklalyf virkuðu ekki gegn sýkingunni.

Kálhaus féll ekki í kramið
Liz Truss fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands var ekki skemmt og gekk af sviðinu þegar mótmælendur birtu mynd af kálböggli og skilaboð um slælega efnahagsstjórn hennar þá stuttu tíð sem hún var forsætisráðherra.

Molly Mae og Tommy Fury hætt saman
Love Island stjörnurnar Molly Mae og Tommy Fury eru hætt saman eftir fimm ára samband. Molly Mae tilkynnir þetta í Instagram færslu þar sem hún segist aldrei á ævi sinni hafa trúað því að hún yrði að gefa út slíka yfirlýsingu um sambandið.

Ævintýralegt glæsibrúðkaup Rakelar og Andra í Bretlandi
Rakel Rúnarsdóttir, fagurkeri og rekstrarhagfræðingur, og Andri Ford kírópraktor og sjúkraþjálfari gengu í hnapphelduna við fallega athöfn undir berum himni í Bretlandi í gær.

Ætla aftur til Íslands til að græða sárin
Breskir ferðamenn sem slösuðust alvarlega í bílslysi á Íslandi í apríl ætla að heimsækja landið aftur í október. Ferðamennirnir þeir Zak Nelson og Elliot Griffiths lentu í hörðum árekstri á hringveginum og trúlofuðu sig svo á Landspítalanum þar sem hlúð var að þeim.

Maður ákærður fyrir stunguárás á ellefu ára stúlku í Lundúnum í gær
Ioan Pintaru, 32 ára, hefur verið ákærður fyrir að hafa stungið ellefu ára gamla stúlku á Leicester-torgi í Lundúnum í gær. Þá er hann einnig ákærður fyrir að gera á sér eggvopn.

Stúlka og kona stungnar á Leicester torgi
Ellefu ára gömul stúlka og 34 ára gömul kona voru stungnar á Leicester torgi í miðborg London í morgun. Þær hafa verið færðar á sjúkrahús, ekki í lífshættu, og hefur árásarmaðurinn verið handtekinn.

Hvað segir Biggi Óli Sigmundsson eftir 14 ár í Englandi?
Eins og allir vel vakandi og fróðleiksfúsir lesendur hér á Vísi vita, birti ég grein með fyrirsögninni „Brexit og ný aðför þjóðernissinna og hægri öfgamanna að velferð og öryggi landsins“ hér á Vísis-vefnum í gær.

Varð vitni að árásinni sem varð systur hennar að bana
Foreldrar Bebe King, sex ára stúlku sem var stungin til bana í árásinni í Southport í Bretlandi í lok júlímánaðar, segja eldri systur hennar hafa orðið vitni að árásinni en komist undan.

Brexit og ný aðför þjóðernissinna og hægri öfgamanna að velferð og öryggi landsins
Ég hygg, að allir þeir, sem eitthvað kunna og skilja, allir sannir sagnfræðingar og fræðimenn, séu sammála um, að Brexit hafi orðið bresku þjóðinni verulegt efnhagslegt áfall. Hagur Breta og afkoma, velferð, væri meiri, ef ekki hefði til Brexit, útgöngu úr ESB, komið.

Tveir handteknir fyrir að dreifa röngum upplýsingum á netinu
Lögregluyfirvöld á Bretlandseyjum hafa handtekið 55 ára konu fyrir að birta færslu á samfélagsmiðlum með röngum upplýsingum um árásarmanninn sem varð þremur stúlkum að bana í Southport í síðustu viku.

Þúsundir gagn-mótmælenda kæfðu boðaðar óeirðir
Þúsundir Breta söfnuðust saman í borgum víða um Bretland í gær og tóku höndum saman til að vernda miðstöðvar fyrir flóttamenn og aðra staði þar sem óttast var að óeirðarseggir myndu koma saman.