Stjórnsýsla

Persónuvernd gerir ráðuneytið afturreka
Persónuvernd hefur gefið út álit þar sem kemur fram að heilbrigðisráðuneytið skorti lagaheimild til að hefja öflun persónuupplýsinga í gegnum heilbrigðisstofnanir, sem ráðuneytið hafði stefnt á að ráðast í.

Forsætisráðherra undirbýr úttekt á aðgerðum stjórnvalda í faraldrinum
Forsætisráðherra segir mikilvægt að gerð verði úttekt á aðgerðum sem gripið var til í kórónuveirufaraldrinum og að dreginn verði lærdómur af honum. Endanlegt fyrirkomulag úttektarinnar liggur ekki fyrir, en ráðherra lítur til nágrannalanda okkar.

Fyrrverandi upplýsingafulltrúi fer fram á 23 milljónir
Björn Þorláksson, fjölmiðlamaður og fyrrverandi upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar, hefur höfðað bótamál á hendur íslenska ríkinu á grundvelli þess að staða hans hjá Umhverfisstofnun hafi verið lögð niður með ólögmætum hætti. Hann fer fram á tveggja ára laun og miskabætur, en krafan nemur samtals 23 milljónum króna.

Umsóknir um vegabréf hafa sexfaldast á síðustu vikum
Umsóknir um vegabréf hafa sexfaldast á síðustu vikum hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.

Segir ríkið færa Pétri í Eykt fúlgur fjár á silfurfati
Ríkiseignir hafa gert leigusamning til þrjátíu ára við Íþöku; um húsnæði sem á að hýsa starfsemi Skattsins og Fjársýslu ríkisins.

Fögnum stafrænni byltingu hins opinbera
Öll eigum við sögur af samskiptum sem við höfum átt við opinberar stofnanir og sveitarfélög, í þeim tilgangi að sækja þjónustu eða réttindi. Þjónustunálgunin hingað til hjá mörgum þeirra hefur verið eyðublöð á pappír, símtöl á símatíma, fyrirspurnir um stöðu mála í tölvupósti, og flakk á milli bæjarfélaga til að safna fylgigögnum.

Hættir á skrifstofu borgarstjóra vegna Vigdísar
Helga Björg Ragnarsdóttir, fyrrum skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjóra, hefur verið færð til í starfi að eigin ósk. Hún segist hafa orðið fyrir stöðugu áreiti og ofsóknum af hálfu borgarfulltrúa Miðflokksins, Vigdísar Hauksdóttur. Hún telur að kerfið hafi brugðist sér í málinu.

Þessi sóttu um stöðu upplýsingafulltrúa dómsmálaráðuneytisins
Alls bárust 34 umsóknir um stöðu upplýsingafulltrúa dómsmálaráðuneytisins sem auglýst var þann 14. maí 2021. Greint er frá þessu á vef Stjórnarráðsins en umsóknarfrestur rann út 25. maí síðastliðinn.

Ítarlegir álagningarseðlar aðgengilegir á skattur.is
Nýir og breyttir álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á vefnum skattur.is en á þeim má sjá á myndrænan hátt hvernig sköttum sem lagðir eru á tekjur einstaklinga er skipt á milli ríkis og sveitarfélaga og í hvaða málaflokka þeir renna.

Áslaug Arna leitar að nýjum upplýsingafulltrúa
Dómsmálaráðuneytið auglýsir nú eftir upplýsingafulltrúa. Umsóknarfrestur vegna starfsins rennur út í lok dags.

Þrettán sóttu um stöðu ráðuneytisstjóra
Alls bárust þrettán umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis sem auglýst var þann 30. apríl 2021.

Bein útsending: Nýr vefur sýslumanna
Ný þjónusta sýslumanna sem framvegis verður á Ísland.is verður kynntur í beinni útseningu á fundi fjármálaráðuneytisins og Stafræns Íslands sem hefst núna klukkan 11:30.

Benedikt Bogason með 423 þúsund krónur á mánuði hjá HÍ
Samkvæmt upplýsingum frá Háskóla Íslands er Benedikt Bogason forseti Hæstaréttar prófessor í 48 prósenta starfshlutfalli og þiggur fyrir það mánaðarlaun sem nema 423.003 krónum.

Átök og eldræða í borgarstjórn: „Sjálfstæðisflokkurinn er kýli á samfélaginu“
Átök brutust út á fundi borgarstjórnar í kvöld þegar rætt var um nýbirtan ársreikning Reykjavíkurborgar. Mikil spenna var milli fulltrúa minnihluta og meirihluta þar sem þeir fyrrnefndu gagnrýndu harðlega rekstrarniðurstöðu borgarinnar.

Ójafn leikur: TR gegn einstaklingi
Tryggingastofnun ríkisins er ekki að gera gott mót – enn einu sinni. Henni var í upphafi ætlað að vera þjónustustofnun sem fólk setti traust sitt á.

Af viðskiptum við eftirlitskerfi Matvælastofnunar – Fjórði hluti
Hér er fjórði kafli umfjöllunar minnar um það hvernig það er að eiga hross á höfuðborgarsvæðinu, bæði úti og inni og eiga þar allt undir sérkennilegri framgöngu eftirlistmanna MAST.

Af viðskiptum við eftirlitskerfi Matvælastofnunar – Þriðji hluti
Enn held ég áfram umfjöllun um hvernig það er að eiga hross á höfuðborgarsvæðinu, bæði úti og inni og eiga þar allt undir sérkennilegri framgöngu eftirlitsmanna MAST.

Stofna skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar
Veðurstofu Íslands hefur verið falið að veita nýjum samstarfsvettvangi fagstofnana um loftsagsbreytingar og aðlögun að þeim forystu. Skrifstofa loftslagsþjónustu og aðlögunar á að styðja stefnu stjórnvalda um aðlögun að loftslagsbreytingum og miðla gögnum, rannsóknum og þekkingu til að takast á við loftslagsbreytingar.

Af viðskiptum við eftirlitskerfi Matvælastofnunar – Annar hluti
Ég held hér áfram umfjöllun um hvernig það er að eiga hross á höfuðborgarsvæðinu, bæði úti og inni og eiga þar allt undir sérkennilegri framgöngu eftirlitsmanna MAST.

Sauðfjár- og geitabændur mega nú slátra sjálfir
Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra segir að í dag sé verið að ná ákveðnum áfanga, ganga frá regluverki sem gerir sauðfjár- og geitabændum sem vilja slátra sjálfir og markaðssetja vöru sína, það kleift.

Af viðskiptum við eftirlitskerfi Matvælastofnunar
Ég ætla að fara hérna yfir það á gagnrýninn hátt hvernig það er að eiga hross á höfuðborgarsvæðinu, bæði úti og inni. Sérstaklega mun ég taka til umfjöllunar eltingaleik Matvælastofnunar og furðulega framkomu starfsfólks stofnunarinnar við mig og aðra.

Getur tekið heilt ár að fá „hillupláss“ í Vínbúðinni
Ríkisvaldið þarf að rífa sig upp úr skotgröfum og laga regluverkið til að liðka fyrir innlendum bjórframleiðendum og brugghúsum. Þetta segir Ásmundur Sveinsson, eigandi KORS-heildsölu og Session Craft bar. Hann segir það geta tekið bjórframleiðendur allt upp í eitt ár að koma vörum sínum að hjá Vínbúðinni.

„Ásættanlegur“ hallarekstur Árborgar nam rúmlega hálfum milljarði
Sveitarfélagið Árborg var rekið með 578 samkvæmt samstæðureikningi fyrir árið 2020. Stóran hluta þar af, eða um 460 milljónir, má rekja til heimsfaraldurs covid-19 að því er segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu í kvöld um ársreikning síðasta árs. Sveitarfélagið segir niðurstöðuna ásættanlega í ljósi aðstæðna.

Sjálfstæðismenn skamma Mörtu: „Alltaf gamla nornin sem tapar“
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og fleiri þekktir Sjálfstæðismenn hafa gert ummæli Mörtu Guðjónsdóttur, borgarfulltrúa flokksins, um Gísla Martein Baldursson að umræðuefni á samfélagsmiðlum í dag þar sem orð Mörtu í garð Gísla eru harðlega gagnrýnd. Grein eftir Mörtu sem birtist á Vísi í morgun hefur vakið mikla athygli en þar kallar hún Gísla meðal annars „pjakk“ og „prinsessu“ og sakar hann um að fara með ítrekuð ósannindi.

Opið bréf til menntamálaráðherra: Fagþekkingin liggur hjá okkur
„Ég fagna því að fleiri vilji taka þátt í þessari vinnu og það eru allir velkomnir að borðinu,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra í forsíðuviðtali við eitt iðnfélaganna í mars í fyrra. Hún hafði verið spurð hvers vegna fulltrúar launamanna hefðu ekki verið hafðir með í ráðum þegar tillögur voru mótaðar um eflingu iðn- og tæknináms.

Meint klámhögg Brynjars og meintur grátur Guðmundar
Þingmenn takast hart á um umdeild ummæli sem féllu þar sem heiðurslaun listamanna voru notuð til dæmis. Sem segir talsvert um átakalínur í íslenskri pólitík, ef að er gáð.

Alþjóðahugverkadagurinn 2021: Frá hugmynd að verðmætum
Lítil og meðalstór fyrirtæki eru burðarás íslensks efnahags, nýsköpunar og verðmætasköpunar. Það er því ánægjulegt að á alþjóðahugverkadeginum, World IP Day, sem haldinn er 26. apríl ár hvert, er í ár sérstaklega horft til hins mikilvæga hlutverks lítilla og meðalstórra fyrirtækja í samfélaginu og hvernig þau geta nýtt hugverkaréttindi til að koma hugmynd sinni á markað.

Ólögmætar ráðningar hafa kostað samfélagið sitt í fjármunum og atgervi
Langhæstu bæturnar sem ríkið hefur mátt greiða vegna ólögmætra ráðninga undanfarinn áratug fóru til Ólínu Þorvarðardóttur rithöfundar eða sem nemur helmingi upphæðarinnar sem í heild nema um 40 milljónum króna.

Þegar réttur eins kann að skaða annan
Ráðningar hins opinbera eru reglulega til umfjöllunar í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Stundum í framhaldi af umfjöllun dómstóla þar sem hið tæknilega lögformlega ferli er til skoðunar.

Frammistaða Samgöngustofu í eftirliti með WOW hafði áhrif á að staða forstjóra var auglýst
Samgönguráðherra segir ófullnægjandi framgöngu Samgöngustofu í eftirliti með fjárhagsstöðu WOW Air hafa haft áhrif á ákvörðun hans um að auglýsa stöðu forstjóra stofnunarinnar lausa til umsóknar. Þáverandi forstjóri var einn umsækjenda en var ekki endurráðinn.