Ofbeldi gegn börnum

Blöskrar að fólk leyfi sér að réttlæta ofbeldi á samfélagsmiðlum
Baráttukonu fyrir réttindum barna í skólakerfinu blöskrar umræða um mál fjórtán ára stúlku í Dalvíkurskóla sem lenti í átökum við kennara. Fólk leyfi sér að réttlæta ofbeldi gegn börnum á samfélagsmiðlum en líti fram hjá hinu raunverulega vandamáli: kerfi sem bregðist börnum í vanda.

Þegar grunnskólakennarar, leikskólakennarar, stuðningsfulltrúar, félagsráðgjafar og annað fólk samþykkir ofbeldi gegn barni
Eftir að kennara voru dæmdar bætur vegna ólögmætrar uppsagnar má segja að samfélagið hafi skipst í tvær fylkingar; með og á móti ofbeldi gegn barni.

„Kennari bæði sviptur ærunni og lífsviðurværi“
Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara segir að áminning í starfi hefði verið meira viðeigandi en brottrekstur í máli kennarans á Dalvík.

Kennari rekinn eftir stimpingar við nemanda og fær bætur
Grunnskólakennara við Dalvíkurskóla hafa verið dæmdar átta milljónir í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Kennarinn var rekinn eftir að hafa lent í stimpingum við nemanda skólans.

Þriggja mánaða fangelsi eftir tálbeituaðgerð: Taldi sig hafa verið að tala við fjórtán ára stúlku
Karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa verið í samskiptum við einstakling á vefsíðunni Einkamál, sem hann hélt að væri fjórtán ára stúlka. Maðurinn sendi meðal annars mynd af getnaðarlim sínum og fór á fund einstaklingsins, sem hann hélt að væri unga stúlkan.

Sex ára stúlka fannst í leyniherbergi tveimur árum eftir mannrán
Sex ára bandarísk stúlka fannst í sérstaklega útbúnu herbergi undir stiga íbúðarhúss eftir að hafa verið leitað í tvö ár. Stúlkunni heilsast vel og er nú komin í faðm lögráðamanna og eldri systur.

Myndbönd í dreifingu af ofbeldi barna á Selfossi
Vísbendingar eru um að börn á Selfossi boði til átaka, taki þau upp og deili svo á samfélagsmiðlum eða á öðrum vefsíðum á Internetinu.

Umboðsmaður safnar og birtir upplýsingar um biðtíma barna eftir þjónustu
Eins og stendur bíða 738 börn á aldrinum 6 til 18 ára eftir greiningu hjá Þroska- og hegðunarmiðstöð. Meðal biðtími eru 12 til 14 mánuðir en 544 börn hafa beðið lengur en þrjá mánuði eftir þjónustu.

Chelsea borgar skaðabætur vegna ofbeldis sem fyrrverandi leikmenn félagsins urðu fyrir
Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur ákveðið að borga fjórum fyrrverandi leikmönnum félagsins skaðabætur vegna kynþáttaníðs sem þeir urðu fyrir af hálfu þjálfara sinna á tíunda áratug síðustu aldar.

Brotið gegn börnum
Samantekt Barnaverndarstofu um fjölda tilkynninga til Barnaverndarnefnda um brot gegn börnum á árunum 2019-2021 leiðir í ljós að tilkynningum hefur fjölgað um 16,9% á covid árunum 2020-2021.

Flestar beiðnir um nektarmyndir koma frá ókunnugum
Algengast er að börn og ungmenni séu beðin um það af ókunnugum að senda eða deila af sér nektarmyndum. Fjögur af hverjum tíu börnum í 8. til 10. bekk hafa verið beðin um að senda af sér nektarmynd og meira en helmingur ungmenna á framhaldsskólaaldri.

Stöðvum ofbeldi
Í dag mælti ég fyrir þingsályktunartillögu um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál. Um er að ræða endurflutning en Silja Dögg Gunnarsdóttir fyrrverandi þingmaður Framsóknar hefur lagt málið tvisvar áður fram. Hér er um að ræða samfélagslega mikilvægt mál sem mér finnst brýnt að komist í gegnum þingið.

Maxwell óskar eftir nýjum réttarhöldum
Breska athafnakonan Ghislaine Maxwell hefur óskað eftir því að réttað verði í máli hennar að nýju. Hún var í lok desember sakfelld fyrir mansal á börnum og að hafa útvegað bandaríska auðkýfingnum Jeffrey Epstein ungar stúlkur sem hann misnotaði kynferðislega.

Rannsókn á máli Gylfa loks að ljúka
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton og íslenska landsliðsins í knattspyrnu, verður áfram laus gegn tryggingu fram í miðja næstu viku. Þá ætti að skýrast hvort lögregla ætli að leggja fram kæru á hendur Gylfa en hann grunaður um kynferðisbrot gegn ólögráða stúlku.

Áfram laus gegn tryggingu
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður enska knattspyrnuliðsins Everton, verður áfram laus gegn tryggingu fram til miðvikudagsins í næstu viku, 19. janúar.

Aldrei meira barnaníðsefni fundist á netinu
Bresku samtökin Internet Watch Foundation segja árið 2021 hafa verið það versta frá upphafi þegar kemur að barnaníð á netinu. Magn efnis þar sem börn á aldrinum sjö til tíu ára séu misnotuð hafi þrefaldast.

Átján mánaða fangelsi fyrir ítrekað ofbeldi gegn fjórum dætrum sínum
Karlmaður var á föstudag dæmdur í átján mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir ofbeldi og illa meðferð á fjórum dætrum sínum síðustu ár. Kona hans og móðir stúlknanna var dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Skýrslur teknar af um tuttugu börnum vegna manns sem grunaður er um fjölmörg brot
Búið er að framlengja gæsluvarðhald yfir karlmanni á sjötugsaldri sem grunaður er um fjölmörg brot gegn börnum. Féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á kröfu lögreglunnar um að það yrði framlengt um fjórar vikur. Maðurinn var upphaflega dæmdur í fjögurra vikna gæsluvarðhald í desember og rann það út í gær.

Gripinn með gríðarlegt magn barnakláms sem uppgötvaðist fyrir tilviljun
Karlmaður búsettur á höfuðborgarsvæðinu hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi, þar af fimmtán mánuði skilorðsbundna, fyrir að hafa 132 þúsund ljósmyndir og rúmlega fimm þúsund kvikmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfengin hátt í vörslum sínum.

Maxwell sakfelld fyrir mansal og gæti átt yfir höfði sér 65 ára fangelsi
Ghislaine Maxwell var í dag sakfelld í New York fyrir mansal á börnum og að hafa útvegað Jeffrey Epstein ungar stúlkur sem hann misnotaði kynferðislega.

Jólahugvekja
Hátíðirnar geta verið tími gleði, hláturs, eftirvæntingar og hefða sem vekja hjá okkur hugljúfar minningar með ástvinum okkar. Jólatónlist, jólatré, gjafir, spil, góður matur og dýrmætar samverustundir með fjölskyldu og vinum.

Líf án ofbeldis fordæmir aðfarargerð í heimilisofbeldismálum
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið til meðferðar beiðni um aðfarargerð til að knýja fram úrskurð um lögheimili barns hjá föður gegn vilja barnsins. Samtökin Líf án ofbeldis vöktu nýlega athygli á málinu þar sem rökstuddur grunur er um langvarandi andlegt og líkamlegt ofbeldi föðurins gagnvart börnunum og móður þeirra.

Stjúpmóðir sökuð um að hafa haft stjúpbörn sín í nauðungarvinnu
Kona hefur verið ákærð fyrir mannsal en hún er sökuð um að hafa haft fjögur stjúpbörn sín í þrælkunarvinnu. Málið var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrr í þessum mánuði, eftir ákæru héraðssaksóknara.

Dómur þyngdur í Danmörku yfir íslenskum manni sem nauðgaði dóttur sinni
Eystri Landsréttur í Danmörku hefur þyngt dóm yfir íslenskum karlmanni, sem var sakfelldur fyrir að misnota og nauðga barnungri dóttur sinni ítrekað, um tvö ár. Kvað dómurinn það upp að manninum skyldi vísað úr landi að lokinni afplánun og fær hann aldrei að stíga fæti inn í Danmörku aftur.

Fjölmörg börn á aldrinum ellefu til sextán ára þolendur í máli mannsins
Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni á sjötugsaldri sem grunaður er um fjölmörg blygðunarsemisbrot gegn börnum og barnaverndarlagabrot. Hann er meðal annars grunaður um að hafa reynt að mæla sér mót við ellefu ára gamalt barn eftir að hafa sent því klámfengin skilaboð.

Segja milljónir barna seldar í þræla- og kynlífsvinnu
Alþjóðlegu hjálparsamtökin Lumos, sem voru stofnuð af rithöfundinum J.K. Rowling, segja um 5,4 milljónir barna út um allan heim búa á barnaheimilum þar sem þarfir þeirra eru vanræktar og þau eru misnotuð.

Á skilorði grunaður um að hafa nauðgað fjórtán ára stúlku
Karlmaður á fertugsaldri, sem er grunaður um að hafa frelsissvipt og nauðgað fjórtán ára stúlku um síðustu helgi, er á skilorði eftir að hafa verði dæmdur fyrir tilraun til kynferðislegrar áreitni gegn barni árið 2020.

Laus úr haldi grunaður um frelsissviptingu og nauðgun
Karlmaður á fertugsaldri, sem grunaður er um að hafa frelsissvipt og nauðgað fjórtán ára stúlku á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi, er laus úr gæsluvarðhaldi.

Í gæsluvarðhald grunaður um fjölmörg brot gegn börnum
Karlmaður á sjötugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald til 6. janúar, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Hjalteyrarmálið: Reiknar með að starfshópurinn skili af sér í janúar
Vigdís Häsler Sveinsdóttir, formaður nýskipaðs starfshóps um Hjalteyrarmálið, reiknar með að hópurinn geti lokið sinni vinnu undir lok næsta mánaðar.