Listamannalaun

Keypti 600 Bónuspoka og gerði úr þeim listaverk um fátækt
Sæmundur Þór Helgason opnaði nýverið Af hverju er Ísland svona fátækt? í Nýlistasafninu. Hann segir að sýningunni sé „sú fegraða ímynd sem Ísland kynnir gjarnan út á við dregin í efa með því að varpa ljósi á ólíkar upplifanir mismunandi fólks í landinu.“

Bækur Gyrðis aldrei verið vinsælli
Ljóðabók Gyrðis Elíassonar, Dulstirni/Meðan glerið sefur er uppseld í helstu bókabúðum. Gyrðir hlaut ekki styrk úr launasjóði rithöfunda og bókin var ekki tilnefnd til bókmenntaverðlauna, en bóksali segir rithöfundinn aldrei hafa verið vinsælli.

Samþykkt að Kristján Jóhannsson fái heiðurslaun listamanna
Kristján Jóhannsson óperusöngvari mun á nýju ári bætast í hóp þeirra listamanna sem hljóta heiðurslaun. Alþingi samþykkti breytinguna á síðasta þingfundi fyrir jól sem fram fór í dag.

Þessir fá listamannalaun 2024
Úthlutunarnefndir Launasjóðs listamanna hafa lokið störfum vegna úthlutunar listamannalauna árið 2024.

Búið að úthluta listamannalaunum
Listamenn eru núna um þessar mundir að opna bréf frá Rannís en þar er þeim tilkynnt hvort þeir hreppi listamannalaun eða ekki.

Upphefð eða bjarnargreiði?
Hugleiðing um starfsskilyrði bæjarlistamanns Akureyrar.

Laun fyrir að kúka í kassa
Að gefnu tilefni, skoðun mín á mismunun á td. listamannalaunum og stöðu þeirra sem minnst mega sín í þjóðfélaginu.

Einar Kárason segist núll og nix í augum Rannís-fólks
Einar Kárason rithöfundur fékk við síðustu úthlutun listamannalauna, fyrir árið 2023, sex mánuði eða hálft ár. Einar telur það skítt fyrir mann sem hefur gert ritstörf að ævistarfi sínu. Og hann liggur ekki á þeirri skoðun sinni heldur lætur þá sem standa að úthlutuninni heyra það.

Þessi fá listamannalaunin 2023
Tilkynningar hafa verið sendar út til þeirra listamanna sem sóttu um starfslaun fyrir árið 2023 og hafa beðið milli vonar og ótta. Nú liggur fyrir hverjir fá listamannalaun og hverjir ekki.

Fjögur bætast við á lista þeirra sem fá heiðurslaun listamanna
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis hefur lagt til að listamennirnir Hildur Hákonardóttir, Kristín Þorkelsdóttir, Manfreð Vilhjálmsson og Þórhildur Þorleifsdóttir muni bætast á lista yfir þá sem njóta heiðurslaun listamanna.

Ekki verið rætt af alvöru að svipta Megas heiðurslaunum í ár
Heiðurslaunum listamanna verður úthlutað í ár þrátt fyrir að kerfið hafi verið gagnrýnt harðlega undanfarið. Í fyrsta sinn hefur verið óskað eftir tilnefningum frá almenningi. Margir gagnrýndu að tónlistarmaðurinn Megas væri enn á listanum, þrátt fyrir ásakanir um kynferðisbrot. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að fjarlægja neinn af listanum í ár að sögn formanns allsherjar- og menntamálanefndar.

Boðar miklar breytingar á listamannalaunum
Menningarmálaráðherra ætlar að gera miklar breytingar á öllu kerfi listamannalauna. Hún setur sig alfarið á móti nýju frumvarpi Sjálfstæðismanna og finnst málflutningur þeirra sorglegur.

Galin pæling að leggja niður heiðurslaun listamanna
Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja leggja niður heiðurslaun listamanna á Íslandi. Þeim finnst þau úrelt og ekki þjóna neinum tilgangi. Galin pæling, segir talsmaður listamanna.

Heiður í tölum
Ég sá Gunnar Þórðarson um helgina og það var auðséð að hann er ekki ungur enn.

Kallar eftir aldurskvóta á listamannalaun
Rithöfundur telur að koma ætti á einhvers konar aldurskvóta við úthlutun listamannalauna. Hann óttast að ungir og efnilegir listamenn leiti á önnur mið, verði kerfið ekki endurskoðað.

Listamannalaun, klassískir söngvarar og sviðslistafólk
Ég óska öllum listamönnum sem hlutu úthlutun í ár hjartanlega til hamingju sem og þjóðinni allri! Það verður spennandi að fylgjast með flottu listrænu starfi í öllum listgreinum á árinu og ljóst er að við munum öll góðs af njóta.

Þessi fá listamannalaun 2022
Starfslaunum til listamanna fyrir árið 2022 hefur verði úthlutað og fengu umsækjendur bréf frá Stjórn listamannalauna nú í morgun hvort þeir fengu eða ekki. Kætast þá margir eða eru svekktir eftir atvikum. Nú rétt í þessu var gefin út tilkynning um hverjir fá og má sjá lista yfir þá hér neðar.

Flestir sem fá listamannalaun eru á fimmtugs- og sextugsaldri
Rannís er um þessar mundir að senda út bréf til umsækjenda um starfslaun listamanna. Og bíða væntanlega margir þess spenntir að sjá hvað kemur á daginn í þeim efnum.

Listamannalaunin hækka um 80 þúsund krónur á árinu
Listamannalaunin hækkuðu um tæpar 20 þúsund krónur um áramótin, til samræmis við launa- og verðlagshækkun fjárlaga 2022. Þau munu hækka enn meira á árinu vegna ákvörðunar ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra um að hækka framlög til launasjóðs listamanna um 100 milljónir króna.

Megas eftir sem áður á heiðurslaunum listamanna
Tónlistarmaðurinn Megas verður áfram á heiðurslaunum listamanna en til greina kom að hann yrði sviptur laununum vegna ásakana um kynferðisofbeldi. Ekki verður fleirum bætt á lista yfir þá sem þiggja heiðurslaun listamanna.

Skorar á Alþingi að veita Magga Eiríks heiðurslaun listamanna
Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, þrýstir á allsherjar- og menntamálanefnd að veita Magnúsi Eiríkssyni heiðurslaun listamanna.

Alþingi í klípu vegna Megasarmála
Meðal dagskrárliða á fundi allsherjar- og menntamálanefndar (amen) í gær og aftur í dag eru heiðurslaun listamanna.

Harma að myndlistamenn tortyggi eigin fulltrúa
Samband íslenskra myndlistarmanna hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umræðu um úthlutunarnefnd starfslauna myndlistarmanna. Yfirlýsingin kemur í kjölfar gagnrýni Snorra Ásmundarsonar myndlistarmanns, sem telur vinagreiða ráða för við úthlutunina.

Snorri telur vinagreiða ráða við úthlutunum listamannalauna
Snorri Ásmundsson myndlistarmaður hefur sent Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra bréf þar sem hann bendir ráðherra á að hafa vakandi auga með úthlutun úr launasjóði myndlistarmanna.

Þessi fá listamannalaun árið 2021
Starfslaunum til listamanna fyrir árið 2021 hefur verið úthlutað og hafa tilkynningar til umsækjenda um listamannalaun verið að berast þeim í morgun og nú rétt í þessu var send út tilkynning um hvernig þetta skiptist milli listamannanna.

Listamenn fá 244 milljónir aukreitis vegna kórónuveiru
Aukaúthlutun úr Launasjóði listamanna hefur verið afgreidd.

„Þeir lesa í gamlar rúnir“ - rithöfundar í samfélagi listanna
Hjálmar H. Ragnarsson, fyrrverandi rektor Listaháskólans, skrifar um útdeilingu listamannalauna en hann telur þar rangt gefið.

Einar sakar Hjálmar um öfund og gamalkunnan æsing
Upp er risinn djúpstæður ágreiningur milli ólíkra stétta listamanna.

Gagnrýnir rithöfunda harðlega fyrir sérhyggju
Fyrrverandi rektor Listaháskólans sakar rithöfunda um gengdarlausa frekju vegna aukaúthlutunar listamannalauna.

Sviðnir sviðslistamenn við útdeilingu úr aðgerðapakkanum
Tónlistar- og sviðslistamenn ósáttir við hvernig útdeiling á aukafjárveitingu til listamanna skiptist.