

Jens Stoltenberg mun taka við embætti fjármálaráðherra í ríkisstjórn norska Verkamannaflokksins í dag.
Jonas Gahr Støre kynnti nýja ríkisstjórn Verkamannaflokks hans og Miðflokksins í dag. Flokkarnir eru sammála um að halda áfram að leita að og vinna olíu og gas næstu árin.
Þrír flokkra af vinstri væng og miðju norskra stjórnmála koma saman til síns fyrsta fundar til að ræða mögulega stjórnarmyndun í dag. Framtíð olíuiðnaðarins, skattamál og samskiptin við Evrópusambandið eru talin helstu ágreiningsmál flokkanna.
Rauði flokkurinn sem er lengst til vinstri í norskum stjórnmálum vann stórsigur í þingkosningunum í Noregi í gær. Flokkurinn fékk átta menn kjörna en fékk einn í síðustu kosningum. Meðal þeirra sem var kosinn í gær er hálfíslenskur karlmaður búsettur í Stafangri.
Jonas Gahr Støre, formaður norska Verkamannaflokksins, var sigurreifur er hann ávarpaði flokksmenn sína eftir að ljóst var að vinstri blokkin í norskum stjórnmálum hafði unnið sigur í norsku þingkosningunum í kvöld. Erna Solberg forsætisráðherra og formaður Íhaldsflokksins hefur viðurkennt ósigur.
Fyrstu tölur í þingkosningunum í Noregi benda til þess að Verkamannaflokkur Jonasar Gahr Støre verði stærsti flokkurinn á þingi. Útlit er fyrir að ríkisstjórn Ernu Solbergs forsætisráðherra muni falla.
Skoðanakannanir benda til þess að dagar Ernu Solberg sem forsætisráðherra Noregs gætu verið taldir. Norðmenn gengu að kjörborðinu í dag en loftslagsbreytingar og ójöfnuður í samfélaginu hafa verið efst á baugi í kosningabaráttunni.
Verkamannaflokkurinn beið afhroð í norsku sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru í gær. Hlaut flokkurinn verstu kosningu í sögunni og tapaði 8,2 prósentum frá því í síðustu sveitarstjórnarkosningum sem fóru fram árið 2015.
Hægri stjórn Ernu Sólberg í Noregi gæti fallið á næstu dögum en Kristilegi þjóðarflokkurinn ákveður á morgun hvort hann stendur með stjórnarflokknum eða hallar sér til vinstri. Forsætisráðherrann er þó bjartsýn á að hún haldi forsætisráðherrastólnum. Heimir Már er í Osló.
Venstre munu fá þrjú ráðherraembætti í nýrri stjórn.
Formenn Hægriflokksins, Framfaraflokksins og Venstre hafa náð samkomulagi um myndun nýrrar ríkisstjórn í Noregi.
Stjórnarmyndun gæti reynst þrautin þyngri hjá núverandi stjórnarflokkunum.
Flest bendir til þess að hægristjórn Ernu Solberg, formanns Hægriflokksins í Noregi og forsætisráðherra, haldi meirihluta sínum á norska þinginu en kjörstöðum í landinu var lokað klukkan 19 að íslenskum tíma í kvöld.
Hægrimenn halda meirihluta sínum á norska þinginu samkvæmt útgönguspám allra helstu fjölmiðla Noregs.
Kjörstaðir loka klukkan 19 að íslenskum tíma og verða þá útgönguspár birtar.
Ríkisstjórn Íhaldsflokksins og Framfaraflokksins undir forystu Ernu Solberg forsætisráðherra og með stuðningi Kristilegra demókrata og Frjálslynda flokksins heldur samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem TV2 birti um helgina.
Verkamannaflokkurinn undir forystu Jonas Gahr Støre mælist stærstur í aðdraganda norsku þingkosninganna, með 28,1 prósents fylgi. Þetta er niðurstaða könnunar sem TNS gerði fyrir TV2 og birtist í gær. Íhaldsflokkur forsætisráðherrans Ernu Solberg mælist með 23,4 prósenta stuðning.
Yrðu úrslit kosninganna í takt við nýja könnun NRK myndu borgaralegu flokkarnir naumlega halda meirihluta sínum á norska þinginu.
Innflytjendamálaráðherra Noregs var á leið til Stokkhólms í dag þegar ráðherra innflytjendamála Svíþjóðar aflýsti fyrirhuguðum fundi ráðherranna.
Norðmenn munu kjósa sér nýtt þing mánudaginn 11. september þar sem vinstri flokkarnir undir forystu Jonas Gahr Støre munu leitast við að fella ríkisstjórn Ernu Solberg.
Norðmenn ganga til þingkosninga þann 11. september næstkomandi.
Rødt fengi samkvæmt könnuninni 4,7 prósent fylgi, en þröskuldurinn til að ná mönnum inn á norska þingið er fjögur prósent.