

Sigur Emmanuel Macron í forsetakosningunum í Frakklandi er sigur fyrir hefðbundið evrópskt frjálslynt lýðræði. Óvíst er þó hvort að hann muni hafa mikil áhrif sem forseti þar flokkur hans á ekkert sæti á þingi.
Um 93 prósent þeirra sem kusu utankjörstaðar á Íslandi í frönsku forsetakosningunum í gær kusu sigurvegara gærkvöldsins, miðjumanninn Emmanuel Macron.
Emmanuel Macron var spáð sigri í frönsku forsetakosningunum strax og fyrstu tölur birtust. Hann tekur við embætti þann 14. maí næstkomandi. Macron sagði nýjan kafla skrifaðan í sögu landsins. Le Pen vill leiða stjórnarandstöðuna.
Le Pen laut í lægra haldi fyrir mótframbjóðanda sínum, Emmanuel Macron, í forsetakosningunum í dag. Hún sletti þó úr klaufunum í kvöld ásamt stuðningsmönnum sínum.
Gengi evrunnar gagnvart dollaranum var í dag hæst um 1,102 en það hefur ekki verið hærra síðan eftir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember á síðasta ári. Fjárfestar anda nú léttar.
Emmanuel Macron, nýkjörinn forseti Frakklands, ávarpaði um fimmtánþúsund manns sem saman voru komnir við Louvre-safnið í París í kvöld.
Forsetinn óskaði Macron „til hamingju með stóran sigur,“ og bætti við að hann „hlakkaði mjög til að vinna með honum.“ Athygli vekur að í viðtali við Associated Press í apríl sagði Trump Le Pen "sterkasta“ frambjóðandann.
Sigurræða Macron var alvarleg, stutt og yfirveguð.
Marine Le Pen hefur játað ósigur í frönsku forsetakosningunum eftir að fyrstu tölur birtust í dag. Hún óskaði Emmanuel Macron, sigurvegara kosninganna, góðs gengis með áskoranirnar sem Frakkland stendur frammi fyrir þegar hún ávarpaði stuðningsmenn sína fyrir stuttu.
Þjóðarleiðtogar heimsins keppast nú við að óska næsta frakklandsforseta til hamingju með sigurinn.
Marine Le Pen hefur viðurkennt ósigur í forsetakosningunum í Frakklandi.
Allir kjörstaðir hafa nú lokað í Frakklandi og benda fyrstu tölur til þess að Emmanuel Macron muni verða 25. forseti Frakklands.
Kosningaþátttakan er umtalsvert minni en í síðustu forsetakosningum sem haldnar voru árið 2012.
Franski forsetaframbjóðandinn Emmanuel Macron mælist með rúmlega sextíu prósent fylgi samkvæmt niðurstöðum fjögurra skoðanakannanna sem hafa verið gerðar í dag.
Um hádegisbil í Frakklandi höfðu 28,2 prósent kjósenda greitt atkvæði sitt og er þátttakan minni en í síðustu kosningum líkt og spáð hafði verið.
Frakkar ganga að kjörborðinu í dag til að kjósa sér nýjan forseta og hafa frambjóðendurnir tveir sem kosið er um nú báðir greitt atkvæði sitt.
Frakkar munu í dag kjósa sér nýjan forseta þar sem kosið er á milli miðjumannsins Emmanuel Macron og Marine Le Pen, forsetaefnis Þjóðfylkingarinnar.
Forseti Frakklands, Francois Hollande, hefur heitið því að „svara fyrir“ árás tölvuþrjóta á herbúðir Emmanuel Macron, annars frambjóðenda forsetakosninganna sem fram fara á morgun í Frakklandi.
Bannað er að há kosningabaráttu daginn fyrir kosningar í Frakklandi, þar sem dagurinn er ætlaður kjósendum til umhugsunar.
Segir hakkara reyna að grafa undan framboði hans.
Macron mælist með 62 prósent fylgi en Le Pen 38 prósent í nýrri könnun Elabe.
Miðjumaðurinn Emmanuel Macron, sem leiðir í könnunum, ætlar að heimsækja borgina Rodez í dag sem er í suðurhluta landsins.
Forsetaframbjóðandi í Frakklandi sakaður um að eiga aflandsfélag. Neitar ásökunum og ætlar í mál gegn síðum sem halda því fram. Andstæðingur hans vakti máls á meintu aflandsfélagi í sjónvarpskappræðum þeirra.
"Ég veit að þið standið frammi fyrir miklum áskorunum og ég vil að allir vinir mínir í Frakklandi viti hve mikið ég óska ykkur velfarnaðar.“
Talsmaður Marine Le Pen þvertekur fyrir að um ritstuld hafi verið að ræða og segir að hún hafi aðeins verið að vísa í orð Repúblikanans Francois Fillon.
Emmanuel Macron og Marine Le Pen skutu föstum skotum í ræðum sínum á degi verkalýðsins. Þá brutust út átök á milli mótmælenda og lögreglu í París, höfuðborg Frakklands, samhliða verkalýðsgöngum í borginni.
Franski forsetaframbjóðandinn Emmanuel Macron segir að Evrópusambandið verði að breytast ef forðast eigi útgöngu Frakklands úr sambandinu. .
Franski herinn segist hafa fellt og handsamað að minnsta kosti tuttugu skæruliða sem héldu til í skógi á landamærum Malí og Búrkína Fasó í Vestur-Afríku um helgina.
Þýsk flugfélög hafa nú ákveðið að afnema reglu um að tveir aðilar þurfi að vera í flugstjórnarklefanum öllum stundum
Jean-François Jalkhhefur látið af störfum sem formaður frönsku Þjóðfylkingarinnar.