Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Dóttir formanns velferðarnefndar er meðal undirritenda gagnrýninnar umsagnar Seðlabankans um leigubremsu ríkisstjórnarinnar. Bankinn varar við því að breytingarnar geti fækkað leiguíbúðum og dregið úr húsnæðisöryggi. Móðir hennar er framsögumaður nefndarinnar í málinu. Innlent 22.10.2026 13:50
Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Leiguverð heldur ekki í við verðbólgu samkvæmt nýrri greiningu HMS og leiguverð því að lækka að raunvirði. Þó virðast fleiri festast á leigumarkaði og mikil óvissa er framundan á fasteignamarkaði, meðal annars vegna vænts samdráttar í íbúðafjárfestingu. Viðskipti innlent 22.10.2026 06:56
Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Umræða um húsnæðismál snýst gjarnan um hversu margar íbúðir við byggjum og hvað kosti að byggja þær. Það er skiljanlegt. En við megum ekki gleyma húsunum sem þegar standa og fólkinu sem í þeim býr. Skoðun 21.10.2026 19:00
Ósamræmi og skekkjur í forsendum skipulagsyfirvalda dýru verði keyptar Umræðan 14.10.2026 08:20
Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent 13.10.2026 13:24
Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Eftir mikið uppbyggingarskeið í byggingariðnaði undanfarin ár hefur nú hægt verulega á nýbyggingum og horfur eru á að verkefnum í greininni fækki á næstu misserum. Skoðun 13. október 2026 09:00
Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Verðtryggð húsnæðislán verða almennt ekki veitt til lengri tíma en 25 ára frá næstu áramótum. Áformin taka til nýrra lánveitinga og gera ekki ráð fyrir að eldri lán verði stytt. Viðskipti innlent 12. október 2026 14:55
Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Ummæli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra um leigubremsu ríkisstjórnarinnar eru „fullkomlega óábyrg“, að mati Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Hann spurði á Alþingi í dag hvort seðlabankastjóri teldi stjórnvöld á Norðurlöndum ekki kunna grundvallarhagfræði og líkti stýrivöxtum við verðstýringu. Innlent 7. október 2026 15:26
Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Boðuð leigubremsa ríkisstjórnarinnar er „augljóslega mjög heimskuleg“, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann vonar að fallið verði frá henni og segir í samtali við fréttastofu að aðgerðin gæti gert illt verra. Innlent 7. október 2026 11:11
Gjöld og byggingarréttur geta kostað 445 þúsund á hvern fermetra íbúðar Sveitarfélögin, einkum á höfuðborgarsvæðinu, geta lagt verulega af mörkum til að draga úr verðbólgu til lengri tíma með auknu framboði byggingarlands, lægri kostnaði við byggingarrétt og hraðari skipulagsferlum. Reiknidæmi fyrir uppbyggingu í Reykjavík sýnir að byggingarréttur, gjöld, samningskvaðir og fjármagnskostnaður geta saman numið um 445 þúsund krónum á hvern sölufermetra íbúðar áður en kostnaður við bygginguna sjálfa kemur til. Innherji 5. október 2026 14:34
Sveitarfélögin geta skipulagt lækkun verðbólgu Auka þarf sveigjanleika vaxtarmarkanna svo sveitarfélögin geti brugðist tímanlega við íbúðaþörf og lýðþróun og nýtt raunhæfa uppbyggingarkosti innan eigin marka. Heimila þarf breytingar á mörkunum vegna einstakra verkefna þegar þörf og forsendur uppbyggingar liggja fyrir. Að halda mörkunum óbreyttum þrátt fyrir breyttar þarfir er ekki hlutlaus ákvörðun heldur ákvörðun um að viðhalda vandanum. Umræðan 5. október 2026 10:32
Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla „Ég varð bara mjög afbrýðisöm að heyra af Ragnhildi Þórðardóttur, betur þekkt sem Ragga nagli, sem einhvern veginn er búin að borga niður sextán milljónir króna af íbúðarláninu sínu sem hún tók fyrir tíu árum síðan,“ segir Helga Arnardóttir fjölmiðlakona en Ragnhildur er búsett í Danmörku. Neytendur 1. október 2026 16:24
Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Skatturinn stefnir að því að opna fyrir umsóknir fljótlega um ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána. Samkvæmt svörum frá embættinu er enn unnið að uppfærslum á kerfum sem eiga að halda utan um umsóknir vegna ráðstöfunarinnar. Viðskipti innlent 1. október 2026 06:36
„Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Tilkynnt var um niðurstöður nýs endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík á þriðjudag. Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segir nýjan tón hafi verið í samtali við stjórnvöld síðustu vikur og að hlustað hafi verið á reynslu og staðkunnáttu Grindvíkinga sjálfra. Innlent 24. september 2026 06:19
Kólnandi hagkerfi og háir vextir gætu reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins Óróleiki í alþjóðlegu efnahagslífi og hátt vaxtastig hér á landi samhliða minnkandi efnahagsumsvifum gæti „reynt á viðnámsþrótt“ fjármálakerfisins, að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Hún beinir sem fyrr einnig sjónum sínum að stöðunni á húsnæðismarkaði, sem einkennist af raunverðslækkunum og lengri sölutíma eigna, og segir þá þróun geta reynt á fyrirtæki í byggingariðnaði og aukið vanskil. Innherji 23. september 2026 08:57
Horfur á húsnæðismarkaði versna Íbúðum í byggingu hefur fækkað á sama tíma og nýjum óseldum íbúðum hefur fjölgað. Nýjar framkvæmdir á milli íbúðatalninga HMS hafa aldrei verið færri og ekki hafa færri íbúðir verið á fyrri framvindustigum. Horfur um íbúðauppbyggingu árin 2027 og 2028 hafa versnað frá því í mars. Viðskipti innlent 22. september 2026 12:08
Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Fulltrúar HMS fóru yfir niðurstöður síðustu talningar á íbúðum í byggingu á opnum fundi, sem hófst klukkan 12. Fundinn mátti sjá í beinni útsendingu hér að neðan. Viðskipti innlent 22. september 2026 11:47
Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Parkour-inniaðstaða á Sævarhöfða sem hefur verið nýtt af iðkendum jaðaríþróttarinnar í rúm fimm ár verður jöfnuð við jörðu innan nokkurra mánaða og enn hefur ekki fundist nýtt húsnæði fyrir starfsemina. Sjálfboðaliðar sem hafa leigt rýmið og boðið upp á kennslu sjá fram á að þurfa að færa það sem bjargað verður í gám og leggjast í dvala yfir veturinn. Innlent 20. september 2026 22:17
Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Fasteignamarkaðurinn kólnar enn og íbúðaverð hækkar áfram hóflega á milli mánaða. Þetta er mat fasteignasala og er greint frá í mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Þar segir að kaupsamningar um fyrstu fasteign hafi verið færri en síðustu ár, hlutdeild fyrstu kaupenda hafi þó verið há undanfarna mánuði sem áfram njóti í miklum mæli stuðnings frá nákomnum. Viðskipti innlent 17. september 2026 06:38
Þarf að toga í fleiri þræði á leigumarkaði? Nú þegar forsendur kjarasamninga eru brostnar heyrast ýmsar kröfur um frekari aðgerðir stjórnvalda til að bæta stöðu leigjenda. Skoðun 17. september 2026 06:03
Fimm aukaíbúðir þar sem aðeins mátti vera ein Eigendur einbýlishúss í Breiðholti verða að breyta húsinu eftir að fimm aukaíbúðir voru innréttaðar þar sem borgin leyfir aðeins eina. Borgin gaf þeim þó of skamman tíma til breytinganna og tók ekki nægilegt tillit til fólksins sem leigir íbúðirnar. Innlent 16. september 2026 15:37
Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Nýr Tækniskóli verður ekki í Hafnarfirði eftir að bæjaryfirvöld flöskuðu á að kaupa lóðir sem þau höfðu lofað. Varaformaður bæjarráðs segir það vonbrigði að missa skólann úr bænum. Innlent 15. september 2026 12:00
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Fjórar af hverjum fimm íbúðum seldust undir auglýstu verði í júlí. Leyfum fyrir ný íbúðarhús hefur fækkað um helming frá árunum 2021 til 2023, atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgað um 27 prósent og vanskil greinarinnar aukist hratt. Aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir boðaða skattahækkun geta leitt til þess að enn minna verði byggt. Viðskipti innlent 10. september 2026 13:43
Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Vaxtabætur verða felldar niður, viðmið barnabóta látin standa óbreytt og minna lagt til húsnæðisbóta en áætlað er að greiða í ár. Hagfræðingur BSRB segir aðhaldið bitna á heimilum, einkum þeim tekjulægstu og fólki með mikla húsnæðisbyrði. Innlent 9. september 2026 14:40
Fær að setja þessar fasteignir á sölu Nýtt fjárlagafrumvarp fjármálaráðherra veitir honum heimild til að selja fjölda fasteigna, þar á meðal húsnæði lögreglunnar við Hverfisgötu, húsnæði Listaháskólans og Tollhúsið. Innlent 7. september 2026 10:30
Útbreiddar vísitölutengingar sagðar geta gert verðbólguna þrálátari Hið opinbera ætti almennt að horfa frá því að vísitölubinda gjaldskrár og ganga ekki sjálfkrafa út frá því að samningar um opinber innkaup séu verðtryggðir. Þá kemur til álita að takmarka hversu oft leiguverð má taka breytingum og beina langtímafjárfestum, meðal annars lífeyrissjóðum, í auknum mæli að óverðtryggðum eignum með því að breyta „áherslum og hvötum þeirra.“ Innherji 3. september 2026 20:35