Fréttir

Fréttamynd

Hlé verði gert á kjarnorkuviðræðum

Hlé verður gert á morgun á viðræðum Norður-Kóreu við Rússa, Bandaríkjamenn, Suður-Kóreumenn, Kínverja og Japana um að Norður-Kórea láti af kjarnorkuáætlunum sínum ef ekki tekst að ná samkomulagi nú með kvöldinu. Fundir hafa staðið á milli þjóðanna hátt á annan mánuð og lítið hefur þokast í samningsátt.

Erlent
Fréttamynd

Grútur yfir gljáfægðan brúðarbíl

Glansinn hvarf heldur betur af gljáfægðum væntanlegum brúðarbíl þegar hann mætti vörubíl með grútarfarmi á Ólafsfjarðarvegi í gærkvöldi. Í sama mund rann hluti farmsins af vörubílnum með þeim afleiðingum að brúðarbíllinn varð löðrandi í grút og fitu og lagði af honum mikinn fnyk langar leiðir.

Innlent
Fréttamynd

Gengisvísitala nærri lágmarki

Krónan styrktist um 0,45 prósent í gær og er gengisvísitalan nú við sögulegt lágmark, en eftir því sem vísitalan er lægri er krónan sterkari. Dollarinn er nú kominn niður undir 62 krónur, evran í tæpar 76 og pundið í rúmar 112 krónur. Einu sinni áður hefur krónan verði álíka sterk, en það var í í mars á þessu ári.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Erlendir starfsmenn óvíða fleiri

Erlendir ríkisborgarar á Íslandi eru tvöfalt fleiri nú en fyrir áratug. Hlutfall erlends vinnuafls er með því sem mest þekkist á Norðurlöndunum og töluvert hærra en í Danmörku. Tæp 3.000 störf eru laus á Íslandi. Sigríður Dögg Auðunsdóttir ræddi við sérfræðinga og rýndi í nýjar tölur. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

57% vilja Vilhjálm í fyrsta sætið

52 prósent sjálfstæðsimanna í Reykjavík vilja sjá Gísla Martein Baldursson skipa fyrsta sæti á lista flokksins við komandi borgarstjórnarkosningar og 48 prósent Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson. Þetta er niðurstaða könnunar sem Gallup vann fyrir einkafyrirtæki og birt er í <em>Morgunblaðinu</em>. Dæmið snýst hins vegar við þegar borgarbúar úr öllum flokkum voru spurðir. Þá völdu rúmlega 57 prósent Vilhjálm og tæp 43 prósent Gísla Martein.

Innlent
Fréttamynd

Á tvöföldum hámarkshraða á Sæbraut

Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í nótt ökumann á Sæbraut á 132 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 60. Han var því á ríflega tvöföldum hámarkshraða og var hann sviptur ökuréttindum á staðnum.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðisflokkurinn fengi 53,9%

52 prósent Sjálfstæðismanna í Reykjavík vilja sjá Gísla Martein Baldursson skipa fyrsta sæti á lista flokksins í komandi borgarstjórnarkosningum og 48 prósent Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson. Þá mælist fylgi Sjálfstæðisflokksins í borginni tæplega 54 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Unglingar til starfa á leikskólum

Sautján ára unglingar og fólk sem talar litla íslensku hefur verið ráðið til starfa í leikskólum á höfuðborgarsvæðinu undanfarið. Dæmi eru um að foreldrar hafi þurft að senda börn sín til Vestmannaeyja vegna manneklu á leikskólum.

Innlent
Fréttamynd

Herjólfur sigli tvisvar á dag

Herjólfur fer tvær ferðir daglega milli lands og Vestmannaeyja frá og með næstu áramótum. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur beint þeim tilmælum til yfirmanna Vegagerðarinnar að þeir semji við Samskip um að fjölga ferðum. Þær eru nú 590 á ári, eða rúmlega ein og hálf ferð á dag að meðaltali. Samgönguráðherra hefur jafnframt skipað Guðjón Hjörleifsson, þingmann og fyrrverandi bæjarstjóra Vestmannaeyja, sem formann nýrrar nefndar sem á að leita leiða til að efla ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum.

Innlent
Fréttamynd

Íslenskir fjárfestar kaupa Merlin

Hópur íslenskra fjárfesta undir forystu íslenska fjárfestingarfélagsins Árdegis tilkynnti í dag um kaup sín á raftækjaverslanakeðjunni Merlin af danska fyrirtækinu FDB. Fjárfestahópurinn samanstendur af Árdegi, Milestone og Baugi Group.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Í úrslit Nýmiðlunarverðlauna SÞ

DVD-Kids leiktækið frá íslenska fyrirtækinu 3-PLUS er komið í úrslit í flokki rafrænnar afþreyingar í keppni um Nýmiðlunarverðlaun Sameinuðu þjóðanna. Alls voru sex verkefni valin úr um þúsund tilnefningum frá 168 löndum og er 3-PLUS eina fyrirtækið frá Norðurlöndum sem kemst í úrslit. DVD-KIDS er þráðlaust leiktæki fyrir börn sem breytir DVD-spilara í leikjavél fyrir börn frá þriggja ára aldri.

Innlent
Fréttamynd

Rannsaka hús vegna hryðjuverka

Lögreglumenn í borginni Leeds á Englandi rannsaka nú tvær verslanir og eina íbúð í tenglsum við hryðjuverkin 7. júlí. Verslunirnar og íbúðin eru í nágrenni heimila þriggja sprengjumannanna. Nágrannar segja að einn verslunareigandinn hafi verið handtekinn og yfirheyrður á lögreglustöð en síðan sleppt. Rannsókn hryðjuverkanna er að sögn Scotland Yard langt á veg komin. 52 létust í London þann 7. júlí.

Erlent
Fréttamynd

Markaðurinn réttir við sér

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur hækkað um 1,5 prósent það sem af er degi og því er ljóst að lækkunarhrinu síðustu daga er lokið. Mesta hækkunin hefur orðið á bréfum í Landsbankanum og Straumi, eða um 3,5 prósent.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hnattrænni hlýnun ekki snúið við

Vísindamenn óttast nú að svo mikið af ísnum á norðurpólnum hafi bráðnað að hnattrænni hlýnun verði ekki snúið við. Frá þessu er greint í breska blaðinu <em>Independent</em> í dag. Við gervihnattarmælingar á umfangi íssins í lok ágúst kom í ljós að umfang heimskautaíssins hefur aldrei verið minna og sú bráðnun sem varð í mánuðinum á sér ekki fordæmi í hundruð ef ekki þúsund ár.

Erlent
Fréttamynd

Tveggja frambjóðenda barátta

Tuttugu og fimm flokkar bjóða fram í þingkosningunum í Þýskalandi, allt frá flokki bókstafstrúaðra kristinna til stjórnleysingjaflokksins. En baráttan stendur í raun á milli tveggja flokka - eða jafnvel bara tveggja frambjóðenda.

Erlent
Fréttamynd

Sagði offitu stríð á hendur

Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, sagði í dag offitu stríð á hendur þegar hann undirritaði lög sem banna tiltekinn skyndibita í menntaskólum landsins. Schwarzenegger, sem er þekktur líkamsræktarkappi, sagði við undirritun laganna að Kaliforníuríki stæði frammi fyrir offitufaraldri og nú væri kominn tími til að spyrna við fótum.

Erlent
Fréttamynd

Lýsti yfir framboði Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna

"Að endingu, herra forseti, er það trú okkar að Ísland geti lagt sitt af mörkum til friðar og velferðar allra aðildarríkjanna. Þess vegna sækist Ísland í fyrsta skipti eftir sæti í öryggisráðinu á kjörtímabilinu 2009-2010," sagði Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra í ávarpi sem hann flutti leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í New York í kvöld.

Erlent
Fréttamynd

Enn einn frambjóðandinn myrtur

Uppreisnarmenn úr röðum talibana skutu í nótt frambjóðanda til þingkosinga í Afganistan til bana. Árásarmennirnir kölluðu nafn mannsins fyrir utan heimili hans og sátu svo fyrir honum þegar hann kom út og hófu skothríð. Kosningarnar í Afganistan fara fram um helgina, en þegar er búið að myrða sjö frambjóðendur.

Erlent
Fréttamynd

Pókeræði á Íslandi

Pókeræði geisar nú meðal landsmanna og nóg er um tækifæri til að taka þátt í ólöglegum fjárhættuspilum segir Sveinbjörn Kr. Þorkelsson, ráðgjafi hjá SÁÁ. Hann segir spilaklúbba og spilavíti færð reglulega á milli staða svo lögreglan komist ekki á sporið. Íslendingar eyða miklu fé í fjárhættuspil, en árlega velta lögleg fjárhættuspil rúmlega milljarði króna og ólöglegu spilavítin bætast þar á ofan.

Innlent
Fréttamynd

Endurheimtu málverk eftir fimm ár

Danska lögreglan endurheimti í dag sjálfsmynd af hollenska listmálaranum Rembrandt sem rænt var á sænska þjóðminjasafninu fyrir nærri fimm árum. Um leið handtók hún fjóra menn sem höfðu reynt að selja myndina á hóteli í Kaupmannahöfn. Myndin, sem er frá 18. öld, er metin á 2,4 milljarða króna, en vopnað gengi rændi henni ásamt tveimur öðrum meistaraverkum eftir franska impressjónistann Renoir í desember árið 2000.

Erlent
Fréttamynd

26 umferðaróhöpp í Reykjavík í gær

26 umferðaróhöpp urðu í Reykjavík í gær þrátt fyrir að akstursskilyrði væru hin ákjósanlegustu. Þetta er langt umfram allt meðaltal og kann lögregla enga sérstaka skýringu á þessari óhappahrynu. Enginn meiddist alvarlega en eignatjón hleypur á milljónum króna.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdir fyrir að skjóta á pilt

Tveir menn voru dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag fyrir að skjóta að pilti úr lítilli loftbyssu í apríl. Mennirnir hlutu 8 og 5 mánaða fangelsi. Þeir létu fórnarlambið afklæðast á berangri á Vaðlaheiði og skutu á það alls sautján sinnum. fjórar kúlur voru fjarlægðar úr líkama hans.

Innlent
Fréttamynd

Einkavæðing og lægri skattar

Íhaldsmenn í stjórnarandstöðu í Póllandi hafa lýst því yfir að þeir muni fremur leitast eftir samsteypuríkisstjórn, jafnvel þótt þeir næðu hreinum meirihluta í þingkosningunum 25. september næstkomandi.

Erlent
Fréttamynd

Lagði hald á tæki slippstöðvar

Fjármögnunarfyrirtæki lagði í nótt hald á hluta af tækjabúnaði sem Slippstöðin á Akureyri hefur notað við Kárahnjúka. Lögfræðingur Slippstöðvarinnar vill ekki staðfesta að fyrirtækið hafi átt tækin. Slippstöðin hefur séð um vinnu við rör inni í göngunum til Fljótsdals, en vinna þar hefur legið niðri eftir að tækin voru fjarlægð.

Innlent
Fréttamynd

Baunir og hnetur gegn krabbameini

Þeir sem eru duglegir við að borða baunir, hnetur og gróft kornmeti, virðast ólíklegri en aðrir til að fá krabbamein. Ný rannsókn breskra lækna bendir til að efni sem finnist í þessum matvælum dragi úr virkni ensíms sem myndar æxli. Rannsakendur binda jafnvel vonir við að mögulegt sé að vinna lyf úr efninu góða sem myndi nýtast krabbameinssjúklingum.

Erlent
Fréttamynd

Ráðist á verkamenn í Írak

Uppreisnarmenn í Írak skutu þrjá verkamenn til bana í Bagdad í morgun og særðu fimmtán til viðbótar. Aðeins tveir dagar eru síðan sjálfsmorðsárásarmaður ók að hópi verkamanna á svipuðum slóðum í höfuðborginni með þeim afleiðingum að meira en hundrað létu lífið. Hrina árása er hafin í landinu eftir að Abu Musab al-Zarqawi, yfirmaður al-Qaida í Írak, lýsti yfir stríði á hendur sjítum í fyrradag.

Erlent
Fréttamynd

Sigldu bátnum af skerinu

Eigandi skemmtibátsins sem fórst um síðustu helgi og eiginkona hans njóta stöðu sakborninga í rannsókn lögreglu á slysinu. Báturinn sat í fyrstu á skerinu, en var svo siglt af því og sökk á sundinu. Símasamband var við bátinn í rúman hálftíma.

Innlent
Fréttamynd

Enn ein mannskæð árás í Írak

Ellefu létust og 24 særðust þegar sjálfsmorðssprengjuárásarmaður sprengdi sig í loft upp fyrir utan mosku sjíta í bæ norður af Bagdad. Fjöldi fólks var á leið úr moskunni eftir föstudagsbæn þegar árásin var gerð, en hún er sú nýjasta í hrinu árása sem gerðar hafa verið í Írak síðustu daga.

Erlent