Fréttir Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli sektuð um 60 milljónir Flugþjónustunni á Keflavíkurflugvelli hefur verið gert að greiða um 60 milljónir í stjórnvaldssekt fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína við afgreiðslu farþegaflugvéla. Innlent 7.7.2006 15:01 IGS sektað um 60 milljónir króna Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá því í marslok þar sem Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli (IGS) var sektuð fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína. Áfrýjunarnefndin lækkaði þó sekt fyrirtækisins úr 80 milljónum króna í 60 milljónir. Viðskipti innlent 7.7.2006 14:03 Stefán Eiríksson nýr lögreglustjóri Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra hefur skipað Stefán Eiríksson, skrifstofustjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, í embætti lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins frá og með 15. júlí næst komandi. Um er að ræða nýtt embætti sem varð til með sameiningu nokkurra lögregluembætta á höfuðborgarsvæðinu, þegar lögregluembættum landsins var fækkað. Innlent 7.7.2006 13:02 Nýr framkvæmdarstjóri Nýsköpunarsjóðs Stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins samþykkti á fundi sínum í gær, 6. júlí, að ráða Finnboga Jónsson, sem framkvæmdastjóra sjóðsins. Finnbogi er fæddur á Akureyri 18. janúar 1950 . Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1970, fyrrihlutaprófi í eðlisverkfræði frá HÍ 1973, lokaprófi í eðlisverkfræði frá Tækniháskólanum í Lundi í Svíþjóð 1978 og lokaprófi í rekstrarhagfræði frá Háskólanum í Lundi sama ár. Innlent 7.7.2006 12:58 Telja stjórnvöld hafa rétt til að ráða Hamas-leiðtoga af dögum Ísraelsher hélt áfram árásum sínum á Gaza-ströndina í morgun, bæði úr lofti og á landi. Þorri ísraelsks almennings telur að stjórnvöld hafi rétt til að ráða leiðtoga Hamas-samtakanna af dögum. Erlent 7.7.2006 12:25 Páll Bragi Kristjónsson hættur hjá Eddu Páll Bragi Kristjónsson, sem verið hefur forstjóri Eddu útgáfu í þrjú ár og stjórnarformaður félagsins í eitt ár þar á undan, hefur ákveðið að láta af störfum. Edda hefur um árabil átt við erfiðan rekstur að etja, þótt verulega hafi miðað í rétta átt síðustu ár, að sögn stjórnenda. Innlent 7.7.2006 12:18 Ræða ráðstöfun mannvirkja varnarliðsins Ráðstöfun mannvirkja á Keflavíkurflugvelli er aðal umræðuefnið í varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjanna, sem var fram haldið í Þjóðmenningarhúsinu í morgun, eftir hlé síðan í apríl. Ekki er búist við að Bandaríkjamenn leggi fram varnaráætlun fyrir Ísland á fundinum, þótt þetta sé nefnt Varnarviðræður. Innlent 7.7.2006 12:16 Dagbækur Columbine morðingjanna gerðar opinbera Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa gert opinber gögn frá fjölskyldum drengjanna tveggja sem myrtu 12 skólafélaga sína og kennara í gagnfræðiskólanum Columbine árið 1998. Meðal þess sem var gert opinbert eru dagbókafærslur drengjanna. Erlent 7.7.2006 12:21 Símafyrirtækin hefðu getað stöðvað tölvuþrjóta Íslensk símafyrirtæki hefðu getað komið í veg fyrir að erlendir tölvuþrjótar rændu umtalsverðum fjárhæðum úr heimabanka Íslendings. Þetta segir Friðrik Skúlason tölvufræðingur sem rannsakaði málið upp á eigin spítur og telur sig hafa komið upp um tölvuþrjótin. Innlent 7.7.2006 12:10 Gripnir með 12 kíló af amfetamíni Lögreglu-og tollgæslumenn fundu tólf kíló af amfetamíni falin í bíl, sem kom með ferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar í gærmorgun og er þetta lang mesta magn, sem vitað er til að reynt hafi verið að smygla með skipinu í einu. Innlent 7.7.2006 12:05 Sigurjón hættur á Fréttablaðinu Sigurjón M Egilsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins, hætti störfum þar í morgun og tekur við ritstjórn Blaðsins. Hann segist kveðja Fréttablaðið með söknuði. Það var á fréttafundi snemma í morgun sem Sigurjón tilkynnti samstarfsfólki sínu að hann hyggðist söðla um og taka við ritstjórn Blaðsins. Sigurjón, sem er gamall sjómaður, hefur staðið í stafni Fréttablaðsins allt frá endurreisn blaðsins. Innlent 7.7.2006 12:00 Seðlar og ávísanir úr sögunni 2010? Svo gæti farið að seðlar og ávísanir verði úreltur greiðslumáti eftir fjögur ár gangi spá Stewarts MacKinnons, formanns írsku greiðslustofnunarinnar, eftir. MacKinnon segir markvisst unnið að því að minnka notkun ávísana og seðla og sé horft til þess að kort og rafrænn greiðslumáti taki við frá og með 2010. Viðskipti innlent 7.7.2006 11:19 Enginn varnarsamningur Varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjanna hófust í Þjóðmenningarhúsinu í dag, eftir hlé síðan í apríl. Fundurinn hófst klukkan níu í morgun. Ekki er búist við að Bandaríkjamenn leggi fram varnaráætlun fyrir Ísland á fundinum, heldur verði frekar rætt um ráðstöfun mannvirkja og annarra eigna á varnarsvæðinu. Þar eru meðal annars rúmlega 800 íbúðir og eru yfir 500 þeirra nú þegar tómar. Þá eru þar margvíslegar þjónustubyggingar auk hernaðarmannvirkja og slökkvibifreiða flugvsallarins en ekki hefur rætt um varnarsamning eins og vonir stóðu til. Innlent 7.7.2006 10:40 Sigurjón M. Egilsson hættur sem fréttaritstjóri Fréttablaðsins Sigurjón M Egilsson, fréttastjóri Fréttablaðsins, hætti störfum þar í morgun og tekur við ritstjórn Blaðsins. Sigurjón tilkynnti samstarfsfólki sínu þetta á fundi í morgun. Mikill sjónarmissir verður af Sigurjóni sem verið hefur fréttaritstjóri Fréttablaðsins allt frá endurreisn blaðsins. Þá er ljóst að samkeppni á fríblaðsmarkaðnum mun harðna mjög komu Sigurjóns á Blaðið. Samkvæmt heimildum NFS mun Sigurjóni verða gefna frjálsar hendur með það hvernig hann þróar Blaðið. Ekki liggur fyrir hvað verður um Ásgeir Sverrisson, núverandi ritstjóra Blaðsins. Innlent 7.7.2006 10:14 Fjárfestir í föðurlandinu Viðskipti erlent 7.7.2006 10:07 Tólf kíló af fíkniefnum fundust í Norrænu Lögreglu-og tollgæslumenn fundu tólf kíló af amfetamíni falin í bíl, sem kom með ferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar í gærmorgun og er þetta lang mesta magn, sem vitað er til að reynt hafi verið að smygla með skipinu í einu. Tveir Litháar, sem voru á bílnum voru handteknir og verður krafist gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þeim í dag. Óskar Bjartmars, yfirlögregluþjónn vill ekki staðfesta að ábending hafi leitt til fundarins, en eftir að efnið fannst naut tollgæsla og lögregla heimamanna, aðstoðar manna frá Ríkislögreglustjóra, lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli og tollgæslunnar i Reykjavík, sem staddir voru eystra vegna skipakomunnar. Innlent 7.7.2006 10:06 Sluppu eftir fjölda velta Tvær stúlkur sluppu lítið meiddar þegar bíll þeirra valt undir Ingólfsfjalli austanverðu á sjöunda tímanum í morgun og valt nokkrar veltur. Þær komust sjálfar út úr bílflakinu en voru fluttar á Slysadeild Borgarspítalans til aðhlynningar. Báðar voru í bílbeltum. Sú sem ók mun hafa misst bílinn út fyrir slitlagið og reynt að rykkja honum inn á aftur, en við það snérist bíllinn og valt.- Innlent 7.7.2006 09:59 Ellefu manns handteknir vegna fíkniefna Ellefu manns á aldrinum 16 til 35 ára voru handteknir í Kópavogi og Hafnarfirði í nótt í tengslum við átta fíkniefnamál, sem upp komu í sameiginlegu átaki lögreglu í báðum bæjunum. Lagt var hald á anfetamín, hass, marijuana, kókaín, E-pillur og ýmis lyf, auk vopna. Flest málin voru svonefnd neyslumál, en í örðum tilvikum leikur grunur á sölu og dreyfingu. Ekki er lengra síðan en í fyrrinótt, að fjögur fíkniefnamál komu upp í Kópavogi.- Innlent 7.7.2006 09:51 Vill að alþjóðasamfélagið stöðvi aðgerðir Ísraelshers Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, vill að alþjóðasamfélagið reyni að stöðva aðgerðir Ísraela á Gaza svæðinu. Að minnsta kosti tuttugu og tveir Palestínumenn féllu í árásum Ísraelshers á Gazasvæðið í gærkvöld sem var einn versti átakadagur á svæðinu frá því að Ísraelsmenn réðust þar inn í leit að hermanni sem er í haldi Palestínumanna. Loftárásir Ísraela héldu áfram í nótt og í morgun og hefur Haniyeh, kallað stórsóknina glæpi gegn mannkyninu. að sögn Ísraelsher beinast aðgerðir þeirra gegn vopnuðum Palestínumönnum. Aðgerðir Ísraelsá Gaza að undanförnu eru þær umfangsmestu síðan Ísraelsher yfirgaf Gazasvæðið fyrir tæplega ári síðan. Erlent 7.7.2006 09:44 Símafyrirtækin brugðust Verulegu fé var nýverið stolið úr heimabanka íslendings með því að bandarískir tölvuþrjótar sendu SMS skilaboð til mannsins, sem hann fór eftir, en þannig komust þeir inn í tölvu mannsins og gátu millifært út úr einkabanka hans. OgVodafone og Síminn hefðu getað komið í veg fyrir þetta, segir Friðrik Skúlason, tölvufærðingur, en hann rekur fyrirtæki, sem sérhæfir sig í Vírusvörnum. Lögreglan hefur málið til rannsóknar . Innlent 7.7.2006 09:16 Bush Bandaríkjaforseti kominn á sjötugsaldur George Bush, Bandaríkjaforseti, er sextugur í dag. Hann ætlar þó ekki að halda daginn hátíðlega. Bush gerði lítið úr aldri sínum í dag og sagði að kvöldið yrði notað til að snæða kvöldverð með stjórnmálamönnum í Chicago, þess á meðal borgarstjóranum og demókratanum Richard Daley. Erlent 6.7.2006 23:06 Vill að alþjóðasamfélagið stöðvi aðgerðir Ísraela Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, vill að alþjóðasamfélagið reyni að stöðva aðgerðir Ísraela á Gaza svæðinu. Haniyeh segir árásirnar glæpi gegn mannkyninu en hann heimsótti fórnarlömb árásanna á Shifa spítalann í Gaza borg í kvöld. Erlent 6.7.2006 22:58 Drengur missti meðvitund við inntöku helíums Drengur missti meðvitund og hlaut áverka á höfði eftir að hafa leikið sér að því að anda að sér helíum. Sjóvá Forvarnarhús vill brýna fyrir foreldrum að útskýra fyrir börnum sínum hætturnar sem fylgt geta misnotkun á helíumblöðrum. Innlent 6.7.2006 22:54 Heiðars Þórarins minnst í Heiðmörk Minningarathöfn var haldin í Heiðmörk í kvöld um látna mótorhjólamenn. Mikill fjöldi fólks var samankominn á vökunni og langflestir á hjólum. Athöfnin hófst um níuleytið en tilefni athafnarinnar var lát Heiðars Þórarins Jóhannssonar í bifhjólaslysi í Öræfasveit annan júlí síðastliðinn. Innlent 6.7.2006 22:42 Bandarískur hermaður játaði nauðgun og morð Steven Green, fyrrverandi bandarískur hermaður, játaði í dag að hafa nauðgað stúlku í Írak og drepið hana og fjölskyldu hennar. Maðurinn sem er 21 árs var leystur frá störfum í hernum þar sem hann var sagður þjást af persónuleikaröskun. Erlent 6.7.2006 22:42 Sautján látnir í átökum á Gaza í dag Að minnsta kosti sextán Palestínumenn féllu í árásum Ísraelshers á Gazasvæðið í kvöld. Herinn hefur fengið skipanir um að ráðast enn lengra inn á Gazasvæðið. Ofbeldið í dag er það mesta síðan Ísraelsher yfirgaf Gazasvæðið fyrir tæplega ári síðan. Erlent 6.7.2006 20:52 Sigur Rós á leið í tónleikaferð um Ísland Hljómsveitin Sigur Rós er sú íslenska hljómsveit sem er hvað þekktust í heiminum um þessar mundir. Sigur Rós hefur verið á tónleikaferðalagi í um ár en hljómsveitarmeðlimir ætla að koma heim í lok mánaðarins og spila fyrir Íslendinga. Lífið 6.7.2006 20:16 Offituaðgerðir borga sig fyrir samfélagið Ríkið sparar verulega á offituaðgerðum. Aðgerðin borgar sig upp á nokkrum árum, þrátt fyrir að henni fylgi fimm vikna meðferð hjá hópi sérfræðinga og í aðgerðinni sjálfri sé notast við rándýr einnota tæki. Innlent 6.7.2006 19:11 Ferðamaður sleit vöðva í Jökulsárgljúfri Erlend kona komst í hann krappann í Jökulsárgljúfri um hádegisbilið í dag. Hún var með gönguhópi rétt norðan Dettifoss þegar hún datt og sleit vöðva. Björgunarsveitir voru kallaðar út og komu konunni undir læknishendur. Að sögn lögreglunnar á Húsavík fóru um 30 björgunarsveitarmenn á staðinn. Innlent 6.7.2006 17:50 Bílvelta á Uxahryggjum Bílvelta varð nú laust eftir klukkan fjögur á Uxahryggjum ofan við Þingvelli. Talið er að bíllinn hafi farið tvær veltur og var sjúkrabíll sendur á staðinn. Farþegarnir tveir, erlendir ferðamenn, reyndust þó einungis lítilsháttar meiddir. Innlent 6.7.2006 17:30 « ‹ ›
Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli sektuð um 60 milljónir Flugþjónustunni á Keflavíkurflugvelli hefur verið gert að greiða um 60 milljónir í stjórnvaldssekt fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína við afgreiðslu farþegaflugvéla. Innlent 7.7.2006 15:01
IGS sektað um 60 milljónir króna Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá því í marslok þar sem Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli (IGS) var sektuð fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína. Áfrýjunarnefndin lækkaði þó sekt fyrirtækisins úr 80 milljónum króna í 60 milljónir. Viðskipti innlent 7.7.2006 14:03
Stefán Eiríksson nýr lögreglustjóri Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra hefur skipað Stefán Eiríksson, skrifstofustjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, í embætti lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins frá og með 15. júlí næst komandi. Um er að ræða nýtt embætti sem varð til með sameiningu nokkurra lögregluembætta á höfuðborgarsvæðinu, þegar lögregluembættum landsins var fækkað. Innlent 7.7.2006 13:02
Nýr framkvæmdarstjóri Nýsköpunarsjóðs Stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins samþykkti á fundi sínum í gær, 6. júlí, að ráða Finnboga Jónsson, sem framkvæmdastjóra sjóðsins. Finnbogi er fæddur á Akureyri 18. janúar 1950 . Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1970, fyrrihlutaprófi í eðlisverkfræði frá HÍ 1973, lokaprófi í eðlisverkfræði frá Tækniháskólanum í Lundi í Svíþjóð 1978 og lokaprófi í rekstrarhagfræði frá Háskólanum í Lundi sama ár. Innlent 7.7.2006 12:58
Telja stjórnvöld hafa rétt til að ráða Hamas-leiðtoga af dögum Ísraelsher hélt áfram árásum sínum á Gaza-ströndina í morgun, bæði úr lofti og á landi. Þorri ísraelsks almennings telur að stjórnvöld hafi rétt til að ráða leiðtoga Hamas-samtakanna af dögum. Erlent 7.7.2006 12:25
Páll Bragi Kristjónsson hættur hjá Eddu Páll Bragi Kristjónsson, sem verið hefur forstjóri Eddu útgáfu í þrjú ár og stjórnarformaður félagsins í eitt ár þar á undan, hefur ákveðið að láta af störfum. Edda hefur um árabil átt við erfiðan rekstur að etja, þótt verulega hafi miðað í rétta átt síðustu ár, að sögn stjórnenda. Innlent 7.7.2006 12:18
Ræða ráðstöfun mannvirkja varnarliðsins Ráðstöfun mannvirkja á Keflavíkurflugvelli er aðal umræðuefnið í varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjanna, sem var fram haldið í Þjóðmenningarhúsinu í morgun, eftir hlé síðan í apríl. Ekki er búist við að Bandaríkjamenn leggi fram varnaráætlun fyrir Ísland á fundinum, þótt þetta sé nefnt Varnarviðræður. Innlent 7.7.2006 12:16
Dagbækur Columbine morðingjanna gerðar opinbera Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa gert opinber gögn frá fjölskyldum drengjanna tveggja sem myrtu 12 skólafélaga sína og kennara í gagnfræðiskólanum Columbine árið 1998. Meðal þess sem var gert opinbert eru dagbókafærslur drengjanna. Erlent 7.7.2006 12:21
Símafyrirtækin hefðu getað stöðvað tölvuþrjóta Íslensk símafyrirtæki hefðu getað komið í veg fyrir að erlendir tölvuþrjótar rændu umtalsverðum fjárhæðum úr heimabanka Íslendings. Þetta segir Friðrik Skúlason tölvufræðingur sem rannsakaði málið upp á eigin spítur og telur sig hafa komið upp um tölvuþrjótin. Innlent 7.7.2006 12:10
Gripnir með 12 kíló af amfetamíni Lögreglu-og tollgæslumenn fundu tólf kíló af amfetamíni falin í bíl, sem kom með ferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar í gærmorgun og er þetta lang mesta magn, sem vitað er til að reynt hafi verið að smygla með skipinu í einu. Innlent 7.7.2006 12:05
Sigurjón hættur á Fréttablaðinu Sigurjón M Egilsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins, hætti störfum þar í morgun og tekur við ritstjórn Blaðsins. Hann segist kveðja Fréttablaðið með söknuði. Það var á fréttafundi snemma í morgun sem Sigurjón tilkynnti samstarfsfólki sínu að hann hyggðist söðla um og taka við ritstjórn Blaðsins. Sigurjón, sem er gamall sjómaður, hefur staðið í stafni Fréttablaðsins allt frá endurreisn blaðsins. Innlent 7.7.2006 12:00
Seðlar og ávísanir úr sögunni 2010? Svo gæti farið að seðlar og ávísanir verði úreltur greiðslumáti eftir fjögur ár gangi spá Stewarts MacKinnons, formanns írsku greiðslustofnunarinnar, eftir. MacKinnon segir markvisst unnið að því að minnka notkun ávísana og seðla og sé horft til þess að kort og rafrænn greiðslumáti taki við frá og með 2010. Viðskipti innlent 7.7.2006 11:19
Enginn varnarsamningur Varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjanna hófust í Þjóðmenningarhúsinu í dag, eftir hlé síðan í apríl. Fundurinn hófst klukkan níu í morgun. Ekki er búist við að Bandaríkjamenn leggi fram varnaráætlun fyrir Ísland á fundinum, heldur verði frekar rætt um ráðstöfun mannvirkja og annarra eigna á varnarsvæðinu. Þar eru meðal annars rúmlega 800 íbúðir og eru yfir 500 þeirra nú þegar tómar. Þá eru þar margvíslegar þjónustubyggingar auk hernaðarmannvirkja og slökkvibifreiða flugvsallarins en ekki hefur rætt um varnarsamning eins og vonir stóðu til. Innlent 7.7.2006 10:40
Sigurjón M. Egilsson hættur sem fréttaritstjóri Fréttablaðsins Sigurjón M Egilsson, fréttastjóri Fréttablaðsins, hætti störfum þar í morgun og tekur við ritstjórn Blaðsins. Sigurjón tilkynnti samstarfsfólki sínu þetta á fundi í morgun. Mikill sjónarmissir verður af Sigurjóni sem verið hefur fréttaritstjóri Fréttablaðsins allt frá endurreisn blaðsins. Þá er ljóst að samkeppni á fríblaðsmarkaðnum mun harðna mjög komu Sigurjóns á Blaðið. Samkvæmt heimildum NFS mun Sigurjóni verða gefna frjálsar hendur með það hvernig hann þróar Blaðið. Ekki liggur fyrir hvað verður um Ásgeir Sverrisson, núverandi ritstjóra Blaðsins. Innlent 7.7.2006 10:14
Tólf kíló af fíkniefnum fundust í Norrænu Lögreglu-og tollgæslumenn fundu tólf kíló af amfetamíni falin í bíl, sem kom með ferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar í gærmorgun og er þetta lang mesta magn, sem vitað er til að reynt hafi verið að smygla með skipinu í einu. Tveir Litháar, sem voru á bílnum voru handteknir og verður krafist gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þeim í dag. Óskar Bjartmars, yfirlögregluþjónn vill ekki staðfesta að ábending hafi leitt til fundarins, en eftir að efnið fannst naut tollgæsla og lögregla heimamanna, aðstoðar manna frá Ríkislögreglustjóra, lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli og tollgæslunnar i Reykjavík, sem staddir voru eystra vegna skipakomunnar. Innlent 7.7.2006 10:06
Sluppu eftir fjölda velta Tvær stúlkur sluppu lítið meiddar þegar bíll þeirra valt undir Ingólfsfjalli austanverðu á sjöunda tímanum í morgun og valt nokkrar veltur. Þær komust sjálfar út úr bílflakinu en voru fluttar á Slysadeild Borgarspítalans til aðhlynningar. Báðar voru í bílbeltum. Sú sem ók mun hafa misst bílinn út fyrir slitlagið og reynt að rykkja honum inn á aftur, en við það snérist bíllinn og valt.- Innlent 7.7.2006 09:59
Ellefu manns handteknir vegna fíkniefna Ellefu manns á aldrinum 16 til 35 ára voru handteknir í Kópavogi og Hafnarfirði í nótt í tengslum við átta fíkniefnamál, sem upp komu í sameiginlegu átaki lögreglu í báðum bæjunum. Lagt var hald á anfetamín, hass, marijuana, kókaín, E-pillur og ýmis lyf, auk vopna. Flest málin voru svonefnd neyslumál, en í örðum tilvikum leikur grunur á sölu og dreyfingu. Ekki er lengra síðan en í fyrrinótt, að fjögur fíkniefnamál komu upp í Kópavogi.- Innlent 7.7.2006 09:51
Vill að alþjóðasamfélagið stöðvi aðgerðir Ísraelshers Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, vill að alþjóðasamfélagið reyni að stöðva aðgerðir Ísraela á Gaza svæðinu. Að minnsta kosti tuttugu og tveir Palestínumenn féllu í árásum Ísraelshers á Gazasvæðið í gærkvöld sem var einn versti átakadagur á svæðinu frá því að Ísraelsmenn réðust þar inn í leit að hermanni sem er í haldi Palestínumanna. Loftárásir Ísraela héldu áfram í nótt og í morgun og hefur Haniyeh, kallað stórsóknina glæpi gegn mannkyninu. að sögn Ísraelsher beinast aðgerðir þeirra gegn vopnuðum Palestínumönnum. Aðgerðir Ísraelsá Gaza að undanförnu eru þær umfangsmestu síðan Ísraelsher yfirgaf Gazasvæðið fyrir tæplega ári síðan. Erlent 7.7.2006 09:44
Símafyrirtækin brugðust Verulegu fé var nýverið stolið úr heimabanka íslendings með því að bandarískir tölvuþrjótar sendu SMS skilaboð til mannsins, sem hann fór eftir, en þannig komust þeir inn í tölvu mannsins og gátu millifært út úr einkabanka hans. OgVodafone og Síminn hefðu getað komið í veg fyrir þetta, segir Friðrik Skúlason, tölvufærðingur, en hann rekur fyrirtæki, sem sérhæfir sig í Vírusvörnum. Lögreglan hefur málið til rannsóknar . Innlent 7.7.2006 09:16
Bush Bandaríkjaforseti kominn á sjötugsaldur George Bush, Bandaríkjaforseti, er sextugur í dag. Hann ætlar þó ekki að halda daginn hátíðlega. Bush gerði lítið úr aldri sínum í dag og sagði að kvöldið yrði notað til að snæða kvöldverð með stjórnmálamönnum í Chicago, þess á meðal borgarstjóranum og demókratanum Richard Daley. Erlent 6.7.2006 23:06
Vill að alþjóðasamfélagið stöðvi aðgerðir Ísraela Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, vill að alþjóðasamfélagið reyni að stöðva aðgerðir Ísraela á Gaza svæðinu. Haniyeh segir árásirnar glæpi gegn mannkyninu en hann heimsótti fórnarlömb árásanna á Shifa spítalann í Gaza borg í kvöld. Erlent 6.7.2006 22:58
Drengur missti meðvitund við inntöku helíums Drengur missti meðvitund og hlaut áverka á höfði eftir að hafa leikið sér að því að anda að sér helíum. Sjóvá Forvarnarhús vill brýna fyrir foreldrum að útskýra fyrir börnum sínum hætturnar sem fylgt geta misnotkun á helíumblöðrum. Innlent 6.7.2006 22:54
Heiðars Þórarins minnst í Heiðmörk Minningarathöfn var haldin í Heiðmörk í kvöld um látna mótorhjólamenn. Mikill fjöldi fólks var samankominn á vökunni og langflestir á hjólum. Athöfnin hófst um níuleytið en tilefni athafnarinnar var lát Heiðars Þórarins Jóhannssonar í bifhjólaslysi í Öræfasveit annan júlí síðastliðinn. Innlent 6.7.2006 22:42
Bandarískur hermaður játaði nauðgun og morð Steven Green, fyrrverandi bandarískur hermaður, játaði í dag að hafa nauðgað stúlku í Írak og drepið hana og fjölskyldu hennar. Maðurinn sem er 21 árs var leystur frá störfum í hernum þar sem hann var sagður þjást af persónuleikaröskun. Erlent 6.7.2006 22:42
Sautján látnir í átökum á Gaza í dag Að minnsta kosti sextán Palestínumenn féllu í árásum Ísraelshers á Gazasvæðið í kvöld. Herinn hefur fengið skipanir um að ráðast enn lengra inn á Gazasvæðið. Ofbeldið í dag er það mesta síðan Ísraelsher yfirgaf Gazasvæðið fyrir tæplega ári síðan. Erlent 6.7.2006 20:52
Sigur Rós á leið í tónleikaferð um Ísland Hljómsveitin Sigur Rós er sú íslenska hljómsveit sem er hvað þekktust í heiminum um þessar mundir. Sigur Rós hefur verið á tónleikaferðalagi í um ár en hljómsveitarmeðlimir ætla að koma heim í lok mánaðarins og spila fyrir Íslendinga. Lífið 6.7.2006 20:16
Offituaðgerðir borga sig fyrir samfélagið Ríkið sparar verulega á offituaðgerðum. Aðgerðin borgar sig upp á nokkrum árum, þrátt fyrir að henni fylgi fimm vikna meðferð hjá hópi sérfræðinga og í aðgerðinni sjálfri sé notast við rándýr einnota tæki. Innlent 6.7.2006 19:11
Ferðamaður sleit vöðva í Jökulsárgljúfri Erlend kona komst í hann krappann í Jökulsárgljúfri um hádegisbilið í dag. Hún var með gönguhópi rétt norðan Dettifoss þegar hún datt og sleit vöðva. Björgunarsveitir voru kallaðar út og komu konunni undir læknishendur. Að sögn lögreglunnar á Húsavík fóru um 30 björgunarsveitarmenn á staðinn. Innlent 6.7.2006 17:50
Bílvelta á Uxahryggjum Bílvelta varð nú laust eftir klukkan fjögur á Uxahryggjum ofan við Þingvelli. Talið er að bíllinn hafi farið tvær veltur og var sjúkrabíll sendur á staðinn. Farþegarnir tveir, erlendir ferðamenn, reyndust þó einungis lítilsháttar meiddir. Innlent 6.7.2006 17:30