Fréttir
Mistök hjá Seðlabanka Íslands Bæði Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins telja vaxtahækkun Seðlabanka Íslands í dag misráðna. ASÍ spáir harðri lendingu á næsta ári og SA segja bankann vinna gegn aðgerðum aðila vinnumarkaðarins. Innlent 16.8.2006 22:30
Síamstvíburar á leið í aðgerð Hópur lækna á Roosevelt-sjúkrahúsinu í Gvatemala-borg í Gvatemala reyna nú eftir fremsta megni að aðskilja tveggja mánaða systur sem eru samvaxnar á kvið. Erlent 16.8.2006 22:43
Atlantis á loft í ágúst Bandaríska geimferðastofnunin, NASA, hefur ákveðið að skjóta geimskutlunni Atlantis á loft tuttugasta og sjöunda þessa mánaðar. Erlent 16.8.2006 22:38
Ríkisstjórn Jiris Paroubek hefur beðist lausnar Ríkisstjórn Jiris Paroubek í Tékklandi hefur beðist lausnar og hefur Vaclav Klaus forseti þegar skipað hægrimanninn Mirek Topolanek í embætti forsætisráðherra. Erlent 16.8.2006 22:35
Hvetur göngufólk að búa sig vel Páll Ásgeir Ásgeirsson, blaðamaður og höfundur leiðsögubóka um hálendið, ráðleggur göngufólki að hætta sér ekki í íshellana við Hrafntinnusker þar sem erlendur ferðamaður lést í morgun. Hann segir að fólk verði að vera við öllu búið í ferðum um hálendi Íslands. Innlent 16.8.2006 22:19
Gæta friðar í Líbanon Frakkar munu fara fyrir friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna í Suður-Líbanon fram í febrúar á næsta ári. Varnarmálaráðherra Frakka greindi frá þessu í kvöld. Þau skilyrði eru þó sett að gæsluliðið hafi skýrt umboð og verði nægilega öflugt. Erlent 16.8.2006 22:17
Þyrla á leið að sækja sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið út á Halamið norð-vestur af Vestjörðum að sækja sjómann. Ekki er enn vitað hvað amar að honum. Innlent 16.8.2006 21:14
Alvarlegt umferðarslys á Garðskagavegi Bílslys varð á Garðskagavegi rétt norðan við Sandgerði laust eftir klukkan sjö í kvöld. Lögreglan í Keflavík segir slysið mjög alvarlegt. Þrír eru alvarlega slasaðir. Um er að ræða tveggja bíla árekstur. Vegurinn verður lokaður fram eftir kvöldi og er lögregla enn á slysstað. Innlent 16.8.2006 20:35
Jón Ásgeir boðaður í yfirheyrslu Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, var boðaður í yfirheyrslu hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra í morgun. Innlent 16.8.2006 19:28
Eldur verður hvolpum að bana Lögregla í bænum Lowell í Massachusetts í Bandaríkjunum rannsakar nú tildrög elds sem kviknaði í flutningabíl með þeim afleiðingum að sextíu hvolpar drápust. Erlent 16.8.2006 18:30
Hizbollah-samtökin ætla ekki að afvopnast Hizbollah-samtökin ætla sér ekki að afvopnast heldur hyggjast þau einungis setja vopn sín í geymslur í bili. Ráðamenn fjölmargra þjóða vinna nú hörðum höndum að því að koma saman friðargæsluliði til að senda til Líbanons. Erlent 16.8.2006 19:06
Ráðið niðurlögum skógarelda á Spáni Slökkviliðsmönnum í Galasíu á norð-vestur Spáni hefur tekist að ráða niðurlögum skógerelda sem hafa logað þar á stóru svæði síðasta hálfa mánuðinn. Erlent 16.8.2006 18:27
Nauðsynlegt að breyta Íbúðalánasjóði fyrir áramót Seðlabankastjóri telur algjörlega nauðsynlegt fyrir efnahags- og hagstjórnina að gera breytingar á Íbúðalánasjóði fyrir áramót. Félagsmálaráðherra bíður eftir niðurstöðu starfshóps um málið. Innlent 16.8.2006 18:53
Vinna þarf deiliskipulag fyrir Ellingsen-reit aftur Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála hefur fellt úr gildi deiliskipulag á svokölluðum Ellingssen-reit í vesturbæ Reykjavíkur á þeim forsendum að það samræmist ekki ákvæðum um aðalskipulag Reykjavíkurborgar. Úrskurðurinn hefur í för með sér að framkvæmdum á reitnum seinkar líklega um marga mánuði. Innlent 16.8.2006 18:57
Rannsaka lifnaðarhætti hvala Vísindamenn á bátnum Söngur hvalsins eða "Song of the Whale" hafa lokið rannsóknum sínum á hvölum við strendur Íslands. Við tekur úrvinnsla gagna en í stað þess að veiða hvali í vísindaskyni skoða þeir lifnaðarhætti þeirra í sjónum, hljóðrita söng þeirra og mynda þá með neðansjávarmyndavélum. Innlent 16.8.2006 18:55
Plánetum sólkerfisins gæti fjölgað úr níu í tólf Plánetum sólkerfisins fjölgar úr níu í tólf á næstunni ef stjörnufræðingar ákveða að víkka út skilgreininguna á fyrirbærinu á þingi sínu í Prag. Málið er umdeilt þar sem búast má við að fjöldi reikistjarna muni margfaldast í kjölfarið. Erlent 16.8.2006 18:55
Gerir alvarlegar athugasemdir við Kárahnjúkastíflu Bandarískur vatnsaflsverkfræðingur gerir alvarlegar athugasemdir við Kárahnjúkastíflu og óttast að hún sé ótraust. Þrjár stíflur sömu tegundar, annars staðar í heiminum, leka og ein þeirra er ónýt. Í júlí hefti The New Scientist er sagt frá því að í Brasilíu hafi brostið göng í samskonar stíflu og Kárahnjúkastíflu með þeim afleiðingum að hún lak. Innlent 16.8.2006 18:52
Bandarísk flugvél látin lenda vegna óróa um borð Vél United flugfélagsins bandaríska sem var á leið til Washington frá Lundúnum var látin lenda í Boston í dag vegna óróa um borð í vélinni. Erlent 16.8.2006 18:48
Gætu þurft að fresta afplánun einhverra dóma Fangelsi landsins eru yfirfull og ef fram heldur sem horfir þurfa fangelsisyfirvöld að fresta afplánun dóma sumra manna vegna plássleysis. Norrænir fangelsisstjórar ræða meðal annars leiðir til að senda erlenda fanga til síns heima til afplánunar og reyna þannig að taka á vandanum. Innlent 16.8.2006 18:48
Olía í sjóinn eftir loftárás Ísraela Fimmtán þúsund tonn af olíu hafa lekið í sjóinn undan ströndum Líbanons eftir að Ísraelsher gerði loftárá á bæinn Byblos, sem stendur um þrjátíu og fimm kílómetrum norður af Beirút. Erlent 16.8.2006 18:21
Alcoa kærir fjórtán mótmælendur Vinna lá niðri hjá fjórtán hundruð manns hjá Alcoa-Fjarðaáli á Reyðarfirði í morgun. Lögregla klifraði upp í krana til að ná mótmælendum niður. Alcoa Fjarðaál hefur kært fjórtán einstaklinga til lögreglunnar á Eskifirði og upplýsingafulltrúi fyrirtækisins segir þetta ekki verða liðið. Innlent 16.8.2006 17:32
Þingeyrarflugvöllur vígður Þingeyrarflugvöllur, sem hefur verið endurbyggður, verður vígður 19. ágúst af Sturlu Böðvarssyni, samgönguráðherra. Innlent 16.8.2006 17:26
Mikill viðbúnaður vegna Menningarnætur Menningarnótt er stærsti viðburður landsins og er gert ráð fyrir að þeir sem líti við í miðborginni verði á bilinu 60-100 þúsund talsins. Síðustu fjögur ár hefur verið starfandi aðgerðarstjórn milli Höfuðborgarstofu og þeirra sem koma að öryggismálum á hátíðinni og hittust fulltrúar þeirra í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð í dag til að fara yfir helstu mál. Slökkviliðið og Lögreglan verða með sameiginlega aðstöðu fyrir viðbragðslið sitt í Ingólfsstræti og eiga gestir að geta leitað þanngað fari eitthvað úrskeiðis. Öflug umferðargæsla verður allan daginn í borginni og verður fjölmörgum götum lokað vegna dagskráratriða og Reykjavíkurmaraþonsins. Ökumenn eru því hvattir til að kynna sér umferðatakmarkanir á heimasíðu lögreglunnar logreglan.is en þar má einnig sjá upplýsingar hugsanleg bílastæði í nágrenni miðborgarinnar. Foreldrar og aðstandendur barna eru beðnir um að hafa sérstaka á gát á þeim í mannþrönginni en athvarf fyrir týnd börn verður staðsett í húsi Unglingasmiðjunnar við Amtmannsstíg 5a og verður símanúmer Reykjavíkur borgar símanúmer athvarfsins það er 4 11 11 11. Eftir miðnætti verður opnað athvarf í Foreldrahúsinu í Vonarstræti og verða börn yngri en 16 ára færð þanngað ef þau eru úti eftir lögboðin útivistartíma, sem og þau sem ekki hafa náð 18 ára aldri en eru undir áhrifum áfengis. Í fyrra brutust út mikil slagsmál milli unglinga og vildi Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn Reykjavíkur brýna fyrir foreldrum að "nesta" unglinga sína ekki upp af áfengi á Menningarnótt eða öðrum dögum. Innlent 16.8.2006 17:23
Eldur kviknaði hjá Ingvari Helgasyni Eldur kviknaði í bíl á verkstæði Ingars Helgasonar rétt fyrir klukkan fimm í dag. Kviknað hafði í klæðningu á vélarhlíf. Innlent 16.8.2006 17:17
Tap hjá Dagsbrún á fyrri helmingi ársins Dagsbrún tapaði rúmum 1,5 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma í fyrra skilaði félagið 321 milljóna króna hagnaði. Tap félagsins á öðrum ársfjórðungi nam rúmum 1,3 milljörðum króna. Tekjur félagsins námu hins vegar tæpum 20,2 milljörðum króna á sama tímabili og er það 188 prósenta aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Viðskipti innlent 16.8.2006 16:57
Vinstri hreyfingin grænt vill rannsókn á hönnun Kárahnjúkavirkjunnar Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs tekur undir kröfu Náttúruverndar Íslands um að hrint verði af stað óháðri og gagnsærri rannsókn á þeirri áhættu sem tekin er með byggingu Kárahnjúkavirkjunnar áður en byrjað verði að safna vatni í Hálslón. Innlent 16.8.2006 16:55
Lokað vegna malbikunar Hringvegur 1 er lokaður til suðurs frá Grundartangavegi að Akrafjallsvegi við Hvalfjarðargöng næstu þrjá daga vegna malbikunar. Akrein til suðurs verður lokuð frá klukkan 7:30 til klukkan 20:00 á þessu tímabili. Vegfarendum er bent á að aka Akrafjallsveg. Innlent 16.8.2006 16:37
Olía lækkar í verði Hráolíuverð lækkaði nokkuð á helstu mörkuðum í dag í kjölfar fregna frá bandaríska orkumálaráðuneytinu þess efnis að þótt olíubirgðir hefðu dregist saman á milli vikna þá væru þær nokkuð yfir meðallagi. Viðskipti erlent 16.8.2006 16:33
Danskir dagar í Stykkishólmi Hinir árlega bæjarhátíð Danskir dagar verður haldin í Stykkishólmi dagana 18. til 20. ágúst. Innlent 16.8.2006 16:25
Rafmagn komið á að nýju Rafmagn er komið á aftur í Hálsahverfi á Krókhálsi og Grafarholti. Rafmagnslaust varð þar skömmu fyrir þrjú í dag þegar grafið var í háspennustreng á framkvæmdasvæði við Korpu. Innlent 16.8.2006 16:05