Fréttir
Kröfðust endurtalningu atkvæða Meira en 50 þúsund manns tóku þátt í göngu til stuðnings kröfu Lopez Obrador, forsetaframbjóðanda í Mexíkó, um að öll atkvæði í forsetakosningunum sem haldnar voru annan júlí síðastliðinn verði talin upp á nýtt. Erlent 21.8.2006 08:24
Réttarhöld yfir Saddam Hussein hafin að nýju Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, neitaði í dag að tjá sig um ákæruatriði saksóknara en ný réttarhöld hófust yfir honum í morgun. Erlent 21.8.2006 09:13
Miklir skógareldar í Suður-Tyrklandi Miklir hitar í Tyrklandi komu í gær í veg fyrir að næðist að slökkva skógarelda sem geisa við ströndina í Suður-Tyrklandi. Eldurinn blossaði upp nærri bænum Selcuk í gærmorgun en bærinn er fjölsóttur pílagrímsstaður. Erlent 21.8.2006 08:19
Vill að Menningarnótt verði færð á sunnudag Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, ætlar enn að hvetja til þess að hátíðarhöld á menningarnótt verði færð yfir á sunnudag, í stað laugardags. Þetta telur hann affarasælast til að koma í veg fyrir mikla unglingadrykkju í kjölfar listadagskrár menningarnætur. Innlent 21.8.2006 08:14
Kínverjinn á batavegi Kínverjinn sem ráðist var á, í vinnubúðum Impregilo við Kárahnjúka, er á batavegi og líklegt er að hann verði útskrifaður seinna í dag. Innlent 21.8.2006 08:08
Enn á gjörgæslu Maðurinn, sem slasaðist í umferðarslysi á Vesturlandsvegi í gærnótt er enn á gjörgæslu Landspítalans í Fossvogi. Maðurinn er alvarlega slasaður og er honum haldið sofandi í öndunarvél. Maður á fimmtudgsaldri lést í slysinu en það varð með þeim hætti að hross hljóp í veg fyrir bíl sem ekið var í átt til Reykjavíkur. Við það missti ökumaður stjórn á bílnum sem kastaðist yfir á öfugan vegarhelming og lenti á öðrum bíl. Innlent 21.8.2006 08:00
Eldurinn sást langar leiðir Töluverður eldur kviknaði þegar sprenging varð í gasleiðslu í Austur-Tyrklandi í gær. Sprengingin varð þar sem leiðslan liggur í gegnum Agri-hérað. Sprengingin mun hafa verið svo kröftug að nálæg hús hristust. Nálægri dælustöð var lokað. Eldinn mátti sjá loga í margra kílómetra fjarlægð. Erlent 20.8.2006 18:07
Leyniskyttur fella um 20 pílagríma Að minnsta kosti 20 pílagrímar féllu fyrir hendi leyniskyttna í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. 300 þeirra særðust. Sjíar voru þar á leið að helgidómi til að votta látnum trúarleiðtoga virðingu sína. Öfgamenn úr röðum súnnía eru sagðir standa að baki ódæðunum. Erlent 20.8.2006 18:02
Börn nota sprengjur sem leikföng Ótal virkar sprengjur af ýmsum gerðum er að finna á götum Suður-Líbanon og hafa þær limlest marga íbúa þar eða orðið þeim að fjörtjóni. Björgunarfólk hefur reynt að merkja sem flestar sprengjur kirfilega áður en sprengjusérfræðingar gera þær óvirkar. Erlent 20.8.2006 17:54
Meðhöndlaðir sem landráðamenn Líbönsk stjórnvöld segja að hart verði tekið á þeim sem rjúfi vopnahlé Ísraela og Hizbollah-skæruliða. Ísraelar halda fast við þá skýringu að áhlaup á Austur-Líbanon í gær hafi verið gert til að stöðva vopnasendingu til skæruliða. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir Ísraela hafa brotið gegn skilmálum vopnahlésins. Erlent 20.8.2006 17:46
Maður á fimmtugsaldri þungt haldinn Starfsmaður Impregilo við Kárahnjúkavirkjun varð fyrir alvarlegri líkamsárás á vinnusvæðinu í morgun. Hann var fluttur mikið slasaður með flugi til Reykjavíkur um klukkan ellefu. Samvkæmt upplýsingafulltrúa Impregilo virðist sem ráðist hafi verið á manninn í svefni með bareflum. Lokað hefur verið fyrir alla umferð úr starfsmannabúðum á meðan málið er í rannsókn lögreglu. Maðurinn, sem er kínverskur og á fimmtugsaldri, mun hafa misst mikið blóð og er hann með töluverða áverka á höfði.töluverða áverka á höfði. Innlent 20.8.2006 14:15
Bankaræningi tekin höndum Lögreglan í Portúgal handtók í fyrradag mann sem tók annan mann í gíslingu þegar sá fyrri reyndi að ræna banka í Almada, úthverfi Lissabon. Manninum, sem er starfsmaður bankans, var sleppt úr gíslingu eftir að lögregla skarst í leikinn. Ekki liggur fyrir hvernig lögregla fékk gíslatökumanninn til að láta manninn lausann. Látið var til skarar skríða eftir að erfiðlega hafði gengið að semja um lausn mannsins. Umsátrið stóð í þrjár klukkustundir og var nágrenni bankans girt af á meðan reynt var að semja við bankaræningjann. Bankinn sem hér um ræðir hefur verið rændur fjórum sinnum áður. Erlent 20.8.2006 12:59
Fyrsti unginn í átta ár Starfsmenn dýragarðsins í Cincinnati í Bandaríkjunum fögnuðu á dögunum fæðingu fyrstu górillunnar þar í átta ár. Muke fæddi þar heilbrigða, karlkyns górillu og er það þriðja fæðing hennar. Muke er tuttugu og fjögurra ára en faðirinn, Jomo, er fimmtán ára og lánaður frá dýragarðinum í Toronto. Górillurnar í dýragarðinum í Cincinnatti hafa verið nokkuð duglegar við að eignast afkvæmi og höfðu tæplega fimmtíu fæðst þar fram til ársins 1998 en þá bættist ekkert í hópinn, þar til fyrir viku. Innlent 20.8.2006 11:51
Ólöglegur innflytjandi leitar hælis í kirkju Umsátursástand hefur skapast fyrir utan kirkju í Chicago í Bandaríkjunum þar sem kona sem komst ólöglega inn í landið hefur leitað hælis. Fulltrúar bandaríska innflytjendaeftirlitsins bíða fyrir utan kirkjuna en þeim er ætlað að fylgja henni aftur til Mexíkó. Stuðningmenn konunnar, Elviru Arellano, krefjast þess að yfirvöld fresti því að vísa að konunni úr landi. Ef það fáist ekki séu allar líkur til þess að yfirvöld sæki hana með valdi inn í kirkjuna. Konan heldur þar til ásamt sjö ára syni sínum sem er bandarískur ríkisborgari. Elvira hefur nokkrum sinnum komist ólöglega yfir landamærin síðan 1997 og frá árinu 2003 hafa yfirvöld þrisvar frestað því að vísa henni úr landi. Elvira segist vilja dvelja áfram í landinu til að tryggja syni sínum betra líf. Erlent 20.8.2006 11:19
Eldur í íbúðarhúsi í Hörðalandi Slökkviðliðið var kallað að íbúðarhúsi í götunni Hörðalandi á ellefta tímanum í morgun eftir að tilkynnt hafði verið um reykjaskynjara í gangi og að reykj legði út um glugga. Vitað var að ein kona var inn í húsinu og voru þrjár stöðvar ræstar út. Þegar komið var á vettvang var konan komin út af sjálfsdáðum. Í ljós kom að pottu hefði verið skilinn eftir á eldavél og var eldur því lítill en reykræsta þurfti húsið. Innlent 20.8.2006 10:42
Nítíu þúsund manns fylgdust með flugeldasýningunni Níutíuþúsund manns fylgdust með flugeldasýningunni við Hafnarbakkann í Reykjavík á menningarnótt. Ölvun var mikil í miðbænum og töluvert um ryskingar. Talið er að flestir hafi haldið heim á leið að flugeldasýningunni lokinni en að um fimmtán þúsund hafi orðið eftir í miðbænum. Övun var nokkuð mikil eða með svipuðum hætti og á síðasta ári. Mikið var um riskingar og höfðu sjúkraflutningamenn í nógu að snúast við að flytja fólk með skurði og skrámur á slysadeild. Engin slasaðist þó alvarlega. Mest var að gera hjá lögregunni á milli klukkan tólf og fjögur í nótt og voru áttatíu lögreglumenn á vakt þegar mest var. Varðstjóri lögreglunnar í Reykjavík þakkar mikilli löggæslu að engar alvarlegar árásir hafi orðið í nótt. Á áttunda og níunda tímanum í morgun var lögreglan að hriða upp þá síðustu sem höfðu sofnað hér og þar um bæinn sökum ölvunar. Þá flutti lögreglan tuttugu ungmenni í foreldrahúsið í Vonarstæti þangað sem forráðamenn voru fengnir til að sækja þau og fóru þau síðustu heim klukkan fimm í nótt. Innlent 20.8.2006 09:55
Lést í umferðarslysi á Vesturlandsvegi Maður á fimmtugsaldri lést í umferðarslysi á Vesturlandsvegi eftir að bifreið ók á hross sem hljóp yfir veginn um miðnætti í nótt. Einn var fluttur alvarlega slasaður og gekkst hann undir aðgerð í nótt. Að sögn vakthafandi læknis á gjörgæslu Landspítalans er hann í öndunarvél. Innlent 20.8.2006 09:47
Ekki búið að selja kvótann „Þetta er allt í stoppi núna,“ segir Óli Bjarni Ólason, útgerðarmaður í Grímsey, en hann vinnur að sölu aflaheimilda sinna sem eru um tólf hundruð þorskígildistonn. Málið er mjög stórt fyrir Grímseyinga þar sem aflaheimildir Óla nema fjörutíu prósentum allra aflaheimilda í eynni. Innlent 20.8.2006 01:40
Ætum vírusum dreift á mat Bandarísk heilbrigðisyfirvöld hafa leyft notkun á blöndu vírusa sem úðað verður á kjötálegg, pylsur og kjúklinga. Vírusarnir éta bakteríur sem geta valdið lífshættulegum sýkingum. Erlent 20.8.2006 01:51
Framkvæmdirnar njóta stuðnings Forsætisráðherra heimsótti virkjanasvæði Kárahnjúka í gær ásamt Ómari Ragnarssyni. Ráðherrann sá stóran hluta þess svæðis sem fer undir vatn í fyrsta sinn. Innlent 20.8.2006 01:55
Boðar samstöðu og sættir flokksmanna Jón Sigurðsson, nýr formaður Framsóknarflokksins, ætlar að gera allt sem í hans valdi stendur til að jafna ágreining innan flokksins. Guðni Ágústsson var endurkjörinn varaformaður og Sæunn Stefánsdóttir var kosin ritari. Innlent 20.8.2006 01:36
Stjórnvöld á Srí Lanka fagna fjölgun eftirlitsmanna Stjórnvöld á Srí Lanka fagna þeirri ákvörðun íslenskra stjórnvalda að tvöfalda fjölda Íslendinga í norræna friðareftirlitinu í landinu. Í yfirlýsingu frá stjórnvöldum á Srí Lanka segir að íslensk stjórnvöld hafi sýnt staðfestu gagnvart skuldbindingu þeirra um að tryggja friðarferlið á Srí Lanka. Erlent 19.8.2006 17:59
Vopnahlésbrot segja Líbanar Ísraelar gerðu snemma í morgun skyndiáhlaup á bæinn Boudai í Austur-Líbanon, að sögn til að koma í veg fyrir flutning vopna til Hizbollah-skæruliða. Forsætisráðherra Líbanons segir þetta freklegt brot á vopnahlé í landinu en Ísraelar segjast þvert á móti vera að fylgja skilmálum þess. Erlent 19.8.2006 17:55
Nýjar upplýsingar um sjávardvöl laxsins Upplýsingar um sjávardvöl laxins, sem aldrei áður hafa fengist, skiluðu sér til Veiðimálastofnunar í vikunni þegar þrír laxar með rafeindamerki komu úr sjóferð sinni í Kiðafellsá í Kjós. Innlent 19.8.2006 17:39
Sæunn nýr ritari Framsóknarflokksins Sæunn Stefánsdóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður heilbrigis- og tryggingamálaráðherra, er nýr ritari Framsóknarflokksins en hún var kjörinn í það embætti á flokksþingi fyrir stundu. Sæunn hlaut afgerandi kosningu eða 75,43% atkvæða en mótframbjóðandi hennar, Haukur Logi Karlsson, hlaut 14,19% atkvæða. Innlent 19.8.2006 14:50
Ísraelsher handtekur varaforsætisráðherra Palestínu Ísraelskir hermenn handtóku í dag varaforsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar í Ramallah á Vesturbakkanum. Hermenn réðust inn á heimili Nasser Shaer og járnuðu hann. Eiginkona hans segir mann sinn hafa farið huldu höfði síðan Ísraelsmenn hófu að handtaka þingmenn Hamas-liða og ráðherra þeirra í heimastjórninni í júní eftir að palestínskir byssum rændu hermanni á Gaza-svæðinu. Þar með eru fjórir ráðherrar í stjórn Hamas í haldi Ísraelsmanna og tuttugu og átta þingmenn. Fjórir ráðherrar hafa einnig verið teknir höndum en þeim síðan sleppt. Ísraelski hermaðurinn Gilad Shalit er enn í haldi mannræningja sinna. Ísraelar segja handtökurnar ekki tengjast mannráninu, aðeins sé verið að handtaka þá sem grunur leiki á að hafi átt þátt í hryðjuverkum. Erlent 19.8.2006 14:34
Grunaður um að hafa komið fyrir sprengjum í lestum Lögreglan í Þýskalandi handtók í morgun mann sem er grunaður um að hafa átt þátt í að koma fyrir sprengjum í tveimur lestum þar í landi í síðasta mánuði. Sprengjurnar fundust í lestum í borgununum Dortmund og Koblenz. Maðurinn talinn annar tveggja sem sést á upptöku í öryggismyndavél á aðallestarstöðinni í Köln en báðar lestirnar fóru um hana. Maðurinn var handtekinn á aðallestarstöðinni í Kiel í norðurhluta Þýskalands. Í gær greindu þýsk lögregluyfirvöld frá því að grunur léki á að þeir sem komu sprengjunum fyrir tengdust hryðjuverkasamtökum. Erlent 19.8.2006 14:28
Íranar með stórfelldar heræfingar Íransher hóf stórfelldar heræfingar í landinu í dag. Þeim er ætlað að ýta úr vör nýrri varnarstefnu landsins að sögn íranskra fjölmiðla. Æft verður í fjórtán af þrjátíu héruðum landsins og áætlað að æfingarnar standi í allt að fimm vikur. Íranar eru enn beittir þrýstingi af alþjóðasamfélaginu vegna kjarnorkuáætlunar sinnar og ásakaðir um að styðja við skæruliða Hizbollah í Líbanon. Því hafa Íranar neitað og auk þess sagst ælta að nota kjarnorku í friðsamlegum tilgangi. Erlent 19.8.2006 14:20
Árás á olíuleiðslu Herskáir andspyrnumenn gerðu í morgun árás á olíuleiðslu suður af Bagdad, höfuðborg Íraks. Þykkan reyk lagði frá árásarstaðnum. Leiðslan flytur olíu til orkuversins í Musayyib og hefur áður verið skotmark andspyrnumanna. Íbúar í nágrenninu hafa krafist þess að stjórnvöld verji leiðsluna af ótta við umhverfismengun og sýkingarhættu. Andspyrnumann hafa gert árásir á olíuleiðslur víða í Írak til að reyna að tefja fyrir flutningum og skaða olíuverslun Íraka Erlent 19.8.2006 14:15
Mikill fjöldi í miðbænum Mikill fjöldi gesta er í miðbæ Reykjavíkur til berja dagskrárliði menningarnætur augum. Búið er að loka fjölda gatna, þar á meðal Laugarveginum en þar er komið heljarmikið tónlistarsvið þar sem hinir ýmsu hæfileikamenn troða upp í dag. Mælt er með því að þeir sem koma á einkabílum leiti sér að stæðum við Háskólann eða við Sæbraut. Hinn virðulegi farskjóti Menningarstrætó þykir einnig góður kostur en upplýsingar um ferðir hans má meðal annars nálgast á vefsíðunni menningarnott.is. Innlent 19.8.2006 13:44