Fréttir

Fréttamynd

Segja lítinn áhuga á hvalkjöti innan lands sem utan

Einungis 1,1 prósent Íslendinga neytir hvalkjöts einu sinni í viku eða oftar en 82,4% prósent fólks á aldrinum 16-24 ára leggur sér ekki hvalkjöt til munns. Þetta eru niðurstöður úr árlegri neyslukönnun Gallup sem gerð var í júní og júlí fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands og Alþjóðadýraverndunarsjóðinni.

Innlent
Fréttamynd

Hrein eign lífeyrissjóðanna minnkar

Hrein eign lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris nam um 1350 milljörðum króna í lok júlí en það er 8,4 milljarða króna samdráttur á milli mánaðasamkvæmt tölum sem Seðlabankinn birti í gær.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stórt skref aftur á bak að skipta menntaráði upp

Félag leikskólakennara og Kennarafélag Reykjavíkur telja það stórt skref aftur á bak að skipta menntaráði Reykjavíkurborgar upp í tvö ráð og menntasviði upp í tvö svið. Mælast félögin eindregið til þess að fallið verði frá breytingunni strax.

Innlent
Fréttamynd

Dagsbrún skipt upp

Stjórn Dagsbrúnar hf. samþykkti á fundi sínum í dag að leggja til við hluthafafund að Dagsbrún verði skipt upp í tvö rekstrarfélög sem bæði verði skráð í Kauphöll Íslands. Félögin verði annars vegar fjölmiðlafélag, 365 hf. og hins vegar fjarskipta- og upplýsingatæknifélag, Teymi hf.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Heildarafli aldrei minni en á nýliðnu fiskveiðiári

Heildarafli hefur aldrei verið minni en á síðasta fiskveiðiári samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu sem birtar eru á vef stofnunarinnar. Tæplega 1300 þúsund tonn veiddust á fiskveiðiárinu 2005-2006 en það er rúmlega 350 þúsund tonnum minna en fiskveiðiárið þar á undan.

Innlent
Fréttamynd

Sprengingar á flugeldamarkaði í Mexíkó

Eldur olli töluverðum sprengingum á stærsta flugeldamarkaðinum í Mexíkó í gærkvöldi. Fjölmargir sölubásar í Tultepec, skammt utan við Mexíkó-borg eyðilögðust þegar flugeldarnir fuðruðu upp.

Erlent
Fréttamynd

Felldu þrjá árásarmenn í Damascus

Sýrlenskar öryggissveitir felldu þrjá hryðjuverkamenn sem sprengdu bíl í loft upp fyrir utan bandaríska sendiráðið í Damascus í Sýrlandi í morgun. Innanríkisráðherra Sýrlands segir fjórða árásarmanninn hafa særst í átökum en ekki fallið eins og ranglega hafi verið hermt. Minnst tveir sýrlenskir öryggisverðir féllu í átökum við árásarmennina.

Erlent
Fréttamynd

Kveikt á minningarljósum í New York

Kveikt var á minningarljósum í gærkvöldi þar sem Tvíburaturnarnir stóðu í New York til minningar um hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin fyrir fimm árum. Hér má sjá ljósgeislum beint til himins til minningar um turnana og þá sem fórust þegar þeir hrundu.

Erlent
Fréttamynd

Verðbólga eykst í Bretlandi

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,1 prósentustig í Bretlandi í ágúst og mælist verðbólga í landinu 2,5 prósent. Þetta er fjórði mánuðirinn í röð sem hún stendur yfir 2 prósenta verðbólgumarkmiðum Englandsbanka.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Hótar frekari árásum

Ayman Al-Zawahri, næstráðandi hjá al-Kaída hryðjuverkasamtökunum, varar við árásum á þau ríki við Persaflóann sem styðji Bandaríkjamenn. Þetta kemur fram á nýju myndbandi með honum sem birt var í gærkvöldi. Hann segir Bandaríkjamenn ekki hafa viljað semja um vopnahlé.

Erlent
Fréttamynd

Viðskipti stöðvuð með bréf Dagsbrúnar

Viðskipti voru stöðvuð með bréf Dagsbrúnar í Kauphöll Íslands í morgun þar sem von sé á fréttum frá fyrirtækinu. Dagsbrún hefur boðað til kynningarfundar fyrir fjárfesta og fjölmiðla vegna málsins í Salnum í Kópavogi klukkan 11 í dag.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fleiri Frakkar til Líbanons

Um 100 franskir friðargæsluliðar komu til Líbanons í morgun. Þeir bætast í hóp friðargæsluliða sem eru þar fyrir á vegum Sameinuðu þjóðanna. 13 skriðdrekar og önnur hergögn voru einnig flutt til Líbanons.

Erlent
Fréttamynd

Dregur úr verðbólgu milli mánaða

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,61 prósent frá fyrra mánuði samkvæmt nýjum upplýsingum frá Hagstofunni. Hefur vísitala neysluverðs hækkað um 7,6 prósent síðustu mánuði sem þýðir að dregið hefur úr verðbólgu í landinu um eitt prósentustig frá síðasta mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Verðbólgan mælist 7,6 prósent

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,61 prósent í síðasta mánuði og jafngildir þetta því að verðbólga hafi mælst 7,6 prósent í september, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Atlantis tengd við geimstöðina

Geimferjan Atlantis tengdist alþjóðlegu geimstöðinni í gær. Ferjunni var skotið á loft frá Flórída í Bandaríkjunum um liðna helgi. Verkefni geimfara þar um borð verður að byggja við stöðina en ekki hefur verið bætt við hana í þrjú og hálft ár.

Erlent
Fréttamynd

Hryðjuverkaárás hrundið

Einn sýrlenskur öryggisvörður féll þegar fjórir hryðjuverkamenn, vopnaðir handsprengjum og byssum, réðust á sendiráð Bandaríkjamanna í miðborg Damascus í Sýrlandi í morgun. Árásarmennirnir voru allir felldir. Engan bandarískan sendiráðsstarfsmann sakaði.

Erlent
Fréttamynd

25 fastir í jarðgöngum

Um 230 slökkviliðs- og byggingaverkamenn reyna nú hvað þeir geta til að bjarga 25 vegavinnumönnum sem sitja fastir eftir að gögn hrundu í suð-vestur Kína í gær. Göngin liggja á fjölfarinni leið millin Guangnan og Yansjan í Yunnan-kantónu.

Erlent
Fréttamynd

Stríðinu ekki lokið

Bush Bandaríkjaforseti hvatti í gærkvöldi Bandaríkjamenn til dáða í baráttunni við hryðjuverkamenn og sagði hann stríðinu gegn þeim ekki lokið. Bush ávarpaði þjóð sína í sjónvarpi í tilefni þess að fimm ár voru í gær liðin frá hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin.

Erlent
Fréttamynd

Hryðjuverkaárás á sendiráð Bandaríkjamanna í Damascus

All bendir til þess að hryðjuverkaárás hafi verið gerð á sendiráð Bandaríkjamanna í miðborg Damascus í Sýrlandi í morgun. Sýrlenskar öryggissveitir hafa umkringt bygginguna og að sögn Reuters fréttastofunnar má sjá svartan reyk leggja frá byggingunni auk þess sem heyra megi skothríð í næsta nágrenni við hana.

Erlent
Fréttamynd

Segir stríðinu gegn hryðjuverkum ekki lokið

Bush Bandaríkjaforseti hvatti í kvöld Bandaríkjamenn til dáða í baráttunni við hryðjuverk og sagði hann stríðinu ekki lokið. Bush sagði í ræðu sinni, sem hann hélt í tilefni þess að fimm ár eru liðin frá hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin, að Bandaríkjamenn þyrftu að setja ágreiningsmál sín til hliðar til að geta einbeitt sér að sigri í baráttunni gegn hryðjuverkum. Bush sagði stríðinu ekki lokið og sigur myndi krefjast þess að Bandaríkjamenn legðust á eitt.

Erlent
Fréttamynd

Páfinn heimsækir fæðingabæ sinn

Benedikt páfi sextándi kom í dag til fæðingabæjar síns Marktl í Þýsklandi. Páfi hóf heimsókn sína um Þýskaland um helgina og fagnaði fjöldi fólks honum þegar hann kom í fæðingarbæ sinn í dag. Páfinn tók sér góðan tíma í að heilsa þeim sem safnast höfðu saman. Fyrr í dag messaði páfi í Altoetting þar sem sjötíu þúsund manns hlýddu á hann. Við messuna sagði hann mikilvægt almenningur gleymdi ekki kristilegum gildum. Ferð páfa um Þýskaland stendur í sex daga.

Erlent
Fréttamynd

Skip ferst með 30 manns í Indlandshafi

Yfir þrjátíu manns er saknað eftir að skip fórst milli Madagaskar og Comros í Indlandshafi. Yfirvöld á Madagaskar segja að yfir fimmtíu manns hafi verið um borð í skipinu og tekist hafi að bjarga um tuttugu. Áhöfn á frönsku skipi var sú fyrsta á staðinn en björgunaraðgerðir standa yfir.

Erlent
Fréttamynd

Missti stjórn á bíl sínum í Kömbunum

Ökumaður fólksbíls missti stjórn á bíl sínum í Kömbunum á Hellisheiðinni á níunda tímanum í kvöld og hafnaði utan vegar. Ökumaður slapp með skrekkinn en draga þurfti bíl hans í burtu þar sem hann var nokkuð skemmdur.

Innlent
Fréttamynd

Fimm ár frá hryðjuverkunum 11. september 2001

Þess var minnst í fjórgang með mínútu þögn í dag þegar farþegavélarnar skullu á Tvíburaturnunum í New York fyrir 5 árum með þeim afleiðingum að þeir hrundu til grunna. Tæplega 3000 manns af hátt í 40 þjóðernum fórust í árásunum og heimurinn hefur ekki verið samur eftir það.

Erlent
Fréttamynd

Fjöldi erlendra starfsmanna Bónus tvöfaldast

Starfsmannastjóri stærstu matvöruverslanakeðju landsins segist sjá fram á tvöföldun í ráðningu erlends starfsfólks í láglaunastörf á næstunni. Skortur á fólki er það mikill að núverandi starfsfólk fær 100 þúsund krónur ef það finnur fólk í lausar stöður.

Innlent
Fréttamynd

Mesti smánarblettur á sögu íslenska lýðveldisins

Stuðningur Íslands við Íraksstríðið er mesti smánarblettur á sögu íslenska lýðveldisins að mati Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra. Hann segir ákvörðunina algjörlega óréttlætanlega.

Innlent
Fréttamynd

Tók bankalán og stofnaði starfþjálfunarstöð

Starfsendurhæfingarstöð fyrir óvirka alkóhólista, fíkniefnaneytendur og öryrkja er tilbúin til notkunar í Kópavogi. Upphafsmaðurinn og hugmyndasmiðurinn er sjálfur óvirkur alkóhólisti sem sá þörfina, tók bankalán, keypti húsnæði og treystir nú á að fá fjármagn til þess að reka stöðina.

Innlent
Fréttamynd

Um 90% flugfarþega telja flugþjónusta mikilvæga fyrir byggðarlag sitt

Um 90% farþegar í innanlandsflugi á Íslandi telja flugþjónustu mjög mikilvæga fyrir byggðalagið sitt samkvæmt nýrri könnun sem Land-Ráð sf. vann í mars og apríl síðastliðnum fyrir Samgönguráðuneytið. Könnunin var unnin í samvinnu við Flugfélag Íslands og Landsflug en alls tóku 570 farþegar þátt í könnuninni.

Innlent