Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ „Það er augljóst að ef farið verður í þessar breytingar þá munu breytingarnar ganga út á það að Ríkisútvarpið, sem er eini fjölmiðillinn sem er vel haldinn af fjármunum, verði jafnsett en skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á.“ 18.9.2026 08:30
Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Afgreiðslu tillögu um að afturkalla lóðarúthlutun til tveggja trúfélaga var frestað á fundi borgarráðs í morgun. Borgarráði barst póstur frá Félagi múslíma á Íslandi á meðan á fundinum stóð. Félagið kom af fjöllum um að mál þeirra væri til afgreiðslu á fundinum. 17.9.2026 15:38
Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Sex stöðugildi hafa verið lögð niður og var starfsfólki hjá dómsmálaráðuneytinu sagt upp í dag. Freyr Gígja Gunnarsson, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. 17.9.2026 14:04
Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið „Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) lýsir yfir þungum áhyggjum vegna fjárlagafrumvarps ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, sem lagt var fram í liðinni viku. Framganga ríkisstjórnarinnar, ekki síst í ljósi krefjandi aðstæðna sem forsendubrestur kjarasamninga hefur skapað, er með öllu óskiljanleg og kallar á viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar.“ 17.9.2026 13:26
Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Talsmenn Félags múslíma á Íslandi og rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar hér á landi segjast alfarið koma af fjöllum hvað varðar áform Reykjavíkurborgar um að afturkalla lóðarúthlutun til trúfélaganna. Félögin segja ekkert erindi þess efnis hafa borist frá borginni. 17.9.2026 11:53
Bein útsending: Daði Már gangsetti vindmyllur Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra gangsetti nýjar vindmyllur Vaðölduvers í dag rétt fyrir klukkan þrjú. Tómas Arnar fréttamaður var á svæðinu og fylgist með athöfninni í beinni útsendingu. 15.9.2026 14:00
Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Móðir sem lagði fram kæru gegn starfsmanni leikskóla í Múlaborgarmálinu segir það hafa verið enn eitt áfallið að sjá brotamanninn fyrir utan heimili sitt tæpum fimm mánuðum eftir að maðurinn var fundinn sekur um kynferðisbrot gegn barni. 15.9.2026 12:02
Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Árni Stefán Árnason, dýraverndarlögfræðingur sem hefur lengi staðið í deilum við Matvælastofnun (MAST), var handtekinn í síðustu viku í tengslum við rannsókn lögreglu á innbrotum í svínabú, hænsnabú og minkabú á þessu ári. 14.9.2026 14:19
„Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Formaður heimastjórnar Múlaþings segir það hafa komið sér og öðrum fulltrúum Múlaþings í opna skjöldu að starfsleyfi hafi verið gefið út til fiskeldis í firðinum. Það séu vonbrigði að frumvarp um breytingar á lögum um lagareldi hafi ekki gengið í gegn á síðasta vorþingi. 14.9.2026 12:01
Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Tveir hópferðabílar skullu saman við gatnamót Suðurlandsbrautar og Reykjavegar sem leiðir inn í Laugardal. Atvikið átti sér stað rétt fyrir klukkan tíu. 14.9.2026 10:00