Fréttamaður

Þórarinn Þórarinsson

Þórarinn er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Andar sig reyk­laus í gegnum kosninga­baráttuna

„Það eru komnir átta dagar og ég finn fyrir of­boðs­legu frelsi og er að springa úr monti,“ segir Birna Gunn­laugs­dóttir, menntunar­fræðingur og fram­bjóðandi Sósíalista, sem eftir tæp­lega hálfa öld hefði sjálf­sagt getað valið betri tíma til að hætta að reykja en ætlar að hug­leiða og anda sig í gegnum kosninga­baráttuna.

Jón Pétur segir enga feðra­veldis­rembu í „ár­þúsunda náttúru­vali“

Jón Pétur Zimsen, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, segist með færslu sinni á X um geðheil­brigði ungra, ís­lenskra kvenna alls ekki vera að leggja til að kynja­hlut­verkin verði færð aftur um 100 ár með orðum sínum um að ómögu­legt sé að bæla „niður árþúsunda náttúru­val vegna skoðana framsækinna háskóla­manna af hug­vísinda­deildum.“

Jónas upp­lifði pot Ás­dísar ekki sem á­rás

„Ég upp­lifði þetta pot ekki sem mikla árás,“ segir Jónas Már Torfa­son, odd­viti Sam­fylkingarinnar í Kópa­vogi, sem tók ekki eftir því þegar Ás­dís Kristjáns­dóttir, bæjar­stjóri og odd­viti Sjálf­stæðis­flokks, ýtti tvisvar við honum þegar þau tókust á um orðið í heitum um­ræðum á Sprengi­sandi í gær.

Há­tindur Net­flix réttur staður fyrir Baltasar

Fyrstu viðbrögð gagn­rýn­enda við Net­flix-myndinni Apex eftir Baltasar Kormák eru al­mennt jákvæð og hann sagður hafa skilað traustum óbyggða­trylli með hryllingsívafi. Þá upp­skera Charlize Theron og Taron Egger­ton mikið lof fyrir frammistöðu sína í myndinni.

Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar

Gunnar Smári Egils­son, fjölmiðla­maður og prímus mótor Sam­stöðvarinnar, glímir enn við af­leiðingar þeirra al­var­legu veikinda sem hafa í tví­gang lagt hann inn á hjarta­deild. Þeim sem í sumar­byrjun for­vitnast um líðan hans segist hann hafa það „skítt og lagó“ en hann verði góður í sumar.

Deilu­efni jafnað við jörðu í Kópa­vogi

Niður­rifi bygginga við Fann­borg er lokið og þar með eru gamla félags­heimilið og gömlu bæjar­skrif­stofurnar í Kópa­vogi horfin af yfir­borði jarðar og lítið stendur eftir af áralöngu deilu­efni annað en urð og grjót.

Yngsti bíla­sali landsins á láns­bíl frá mömmu

„Ég er enn að fá hingað fullt af fólki sem ætlar að fá sér ís,“ segir Teitur Árni Sigurðar­son, nítján ára at­hafna­maður sem var að opna bílasölu á Sel­tjarnar­nesinu þar sem ís­búðin Huppa var áður.

Tveir flokkar í Garða­bæ úti­loka sam­starf

Odd­vitar þeirra flokka sem bjóða fram í Garða­bæ fyrir komandi sveitar­stjórnar­kosningar tókust á í kosninga­pall­borði frétta­stofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar í dag.

Fok­sandur og ryk­agnir búa í þokunni

Margt býr í þokunni en að þessu sinni helst leifar af fok­sandi sem fauk út í hafs­auga eftir að hafa mengað loftið yfir höfuð­borgar­svæðinu á sunnu­daginn en snýr nú aftur vestan úr hafi og liggur þungt yfir Reykja­vík og nágrenni.

Tungu­málið gerir Ís­land að landi tæki­færanna

„Það besta sem ég hef gert síðan ég flutti til Ís­lands var að læra ís­lensku. Það að geta talað og skilið tungumálið hefur opnað mér fjölmörg tækifæri sem ég hefði annars aldrei getað ímyndað mér að stæðu mér til boða,“ segir Vincent John Andra­de sem fyrir þremur árum flutti til Ís­lands frá Filipps­eyjum.

Sjá meira