„Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ „Það eina sem ég get gert núna er bara að vara fólk við því að velja sér þennan áfanga af því að þetta er galið,“ segir Kristrún Sveinbjörnsdóttir sem ásamt 26 samnemendum kærði munnlegt próf í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands vegna „mjög svo niðurlægjandi framkomu kennara og prófdómara“. 14.5.2026 16:02
Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur leitt deiluna um framtíð spýtukofans við Lynghaga til farsælla lykta og hann fær að standa áfram með ósköp einfaldri lausn á því sem virðist hafa verið tilbúið kerfislægt vandamál og sannkallaður stormur í vatnsglasi. 13.5.2026 17:00
Íslenskur Counter Strike-meistari fékk stjörnumóttökur í Kasakstan „Þrátt fyrir erfið úrslit var þetta ein magnaðasta reynsla lífs míns,“ segir Þorsteinn Friðfinnsson, sigursælasti rafíþróttamaður Íslands, sem var að ljúka keppni á stórmótinu PGL Astana með Counter Strike-liði Fisher Collage í Boston þar sem hann dvelur á fullum námsstyrk sem afreksíþróttamaður. 13.5.2026 13:02
„Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Samstöðvarstjórinn Gunnar Smári Egilsson er allur að koma til eftir erfið veikindi og kallar eftir afstöðu stjórnmálaflokkanna til spýtukofans sem börn reistu við Lynghaga og til stendur að rífa. 8.5.2026 12:54
Leiðir skilja ekki hjá Charlize Theron og Balta Óskarsverðlaunaleikkonan Charlize Theron og brjálaði íslenski leikstjórinn, eins og hún lýsir Baltasar Kormáki, unnu svo vel saman við gerð Netflix-tryllisins Apex að þau hafa ákveðið að gera aðra mynd saman, Six Clean Kills, eftir samnefndri og óútkominni skáldsögu eftir Stan Parish. 8.5.2026 10:48
Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Kærunefnd húsamála hefur gert leigusala, sem vildi ráðstafa tryggingafé til viðgerðar á parketi vegna skemmda eftir pinnahæla, að endurgreiða fyrrverandi leigjendum sínum tæpan helming tryggingarinnar með vöxtum. 8.5.2026 08:03
Astró og Bix í góðu lagi en Norðquist hafnað Mannanafnanefnd hefur undanfarið meðal annarra lagt blessun sína yfir eiginnöfnin Jósmundur, Ván, Cameron og Bix en hafnað beiðnum um eiginnöfnin Viborg eða Norðquist. 7.5.2026 10:34
Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri „Jafnvel þótt það væri mikið tilstand og fyrirhöfn þá vildi ég flytja hana aftur heim,“ segir Gunnar Hnefill Örlygsson um ömmu sína, Emilíu Sigurjónsdóttur, sem var til moldar borin á æskuslóðum sínum í Flatey á Skjálfanda í liðinni viku þegar jarðsungið var frá Flateyjarkirkju í fyrsta sinn í 69 ár. 2.5.2026 07:03
Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég veit það bara að Ari getur ekki brugðist mér. Það er bara svoleiðis,“ segir Bubbi Morthens sem gat ekki verið viðstaddur jarðarför Björgvins Halldórssonar en segja má að með sígildri eftirhermu hafi Ari Eldjárn farið nærri því að fylla skarð hans. 30.4.2026 10:27
Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Regnbogafánar og lausaganga flokksgæðinga komu við sögu þegar oddvitar flokkanna sex sem bjóða fram fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Hafnarfirði mættust í fjörugum umræðum við kosningapallborð fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar í gær. Skotið var á oddvita fyrir brotthvarf úr ráðherrastól fyrir rúmlega þrjátíu árum. 30.4.2026 07:00