Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Bandaríska stjarnan Hunter Schafer var stödd hér á landi á dögunum. Miðað við myndir hennar hefur dvöl hennar hérlendis verið ævintýri líkust og leikkonan virðist lítið hafa kippt sér upp við það þótt veðrið hafi ekki alltaf leikið við hana meðan á dvöl hennar stóð. 16.8.2026 10:33
Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fimm særðust í skotárás í Ríkisháskóla Virginíu (Virginia State University). Grunur leikur á að fleiri en einn hafi verið að verki og er einn hinna særðu í lífshættu. 15.8.2026 23:08
Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrum varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra, er tekin til starfa sem sendiherra Íslands í Lundúnum. 15.8.2026 21:41
Fagnað á götum Kabúl Ríkisstjórn Talíbana í Afganistan fagnaði því í dag að fimm ár eru liðin frá því að höfuðborg landsins, Kabúl, var hertekin. Brynvarðir bílar skreyttir fánum keyrðu um stræti og fulltrúar ríkisstjórnarinnar tjáðu sig fjálglega um árangur hennar. 15.8.2026 20:39
Fjöldi ökumanna á von á kæru Lögregluþjónar á Lögreglustöð 3, sem sinnir Kópavogi og Breiðholti, áfengismældu ökumenn í dag. Þá var kallað var eftir aðstoð lögreglu miðsvæðis í Reykjavík þegar farþegi leigubifreiðar neitaði að greiða far sitt en hann má eiga von á kæru fyrir fjársvik eftir athæfi sitt. 15.8.2026 18:47
Dorrit sendir rabbínanum tóninn Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú, sendir rabbínanum Shmuley Boteach tóninn í færslu á samfélagsmiðlinum Threads. 13.8.2026 17:05
Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Tónlistarhátíðin Echolalia – Sólmyrkvahátíð Bjarkar og Smekkleysu fór fram á Víðistaðatúni í Hafnarfirði í gær. Kona sem býr í nágrenni við Víðistaðatún lýsir vonbrigðum og reiði yfir tónlistarhátíðinni. Hún hafi rofið dýrmæta kyrrð sem átti að ríkja á degi sem íbúar hverfisins höfðu leyft sér að hlakka til árum saman. 13.8.2026 16:32
Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Kvika banki hagnaðist um 1545 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi. Hagnaður sama tímabils í fyrra, árið 2025, var rúmir tveir milljarðar og lækkar hagnaður um 24 prósent milli ára. 13.8.2026 11:59
Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Almyrkvi á sólu sést á vestanverðu Íslandi síðdegis í dag. Við fylgjumst með í vaktinni hér á Vísi. 12.8.2026 06:00
Maðurinn fundinn Maðurinn sem lögregla auglýsti eftir í gær er fundinn, heill á húfi. Lögregla þakkar veitta aðstoð. Fréttin hefur verið uppfærð. 11.8.2026 21:17