Fréttamaður

Sigurgeir Þorkelsson

Sigurgeir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Fjór­falt fleiri lög­reglu­menn vakta Vest­firði

Á venjulegum miðvikudegi í ágúst væru sex lögreglumenn á vakt á öllum Vestfjörðum. Sem viðbragð við almyrkvanum 12. ágúst verður lögregluþjónum á vakt fjölgað um sextán sem er nánast fjórfalt á við venjulegan dag. Umferðarstýring verður víða og verður að hámarki þrjú þúsund bílum leyft að keyra vestur að Látrabjargi.

Gripinn með stolið kredit­kort og hand­tekinn

Lögreglu barst tilkynning um aðila sem reynt hafði að greiða með stolnu kreditkorti í verslun miðsvæðis í Reykjavík. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að aðilinn var með þýfi á sér úr annarri verslun og var hann handtekinn. Maðurinn var einnig með meint fíkniefni á sér.

Sigur­jón Sig­hvats­son hlýtur heiðurs­verð­laun

Sigurjón Sighvatsson, kvikmynda- og sjónvarpsþáttaframleiðandi, var í kvöld heiðraður með Raimondo Rezzonico-verðlaununum á Locarno-kvikmyndahátíðinni í Sviss fyrir framlag sitt til alþjóðlegrar kvikmyndagerðar.

„Evrópu­sam­bandið er ekki konfektkassi“

„Evrópusambandið er ekki konfektkassi þar sem við getum farið og valið okkur bestu molana og sagt nei við hinum,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Guðrún segir vegferð ríkisstjórnarflokkanna dapurlega og að ESB-umræðan sé fyrst og fremst ætluð til að breiða yfir stöðu efnahagsmála.

Slökktu eld á Kársnesi

Eldur kom upp við Kópavogshöfn á Kársnesi nú á tíunda tímanum. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi tvo bíla á staðinn en þegar þangað var komið sást eldur í ruslahrúgu.

Þjófar herja á fyrir­tæki borgarinnar

Áfram var nokkuð um innbrot og þjófnaði miðsvæðis í Reykjavík í dag, samkvæmt skrá lögreglu yfir verkefni dagsins. Þá gerðust tveir ökumenn á höfuðborgarsvæðinu sekir um það að vera í þriðja skipti teknir án ökuréttinda.

Fer frá lax­eldi í eldri borgara

Jónas Heiðar Birgisson hefur verið ráðinn sem fjármálastjóri Sjómannadagsráðs en undir ráðið heyra Hrafnistuheimilin, DAS íbúðir, og Happdrætti Das. Jónas Heiðar tekur við af Kristjáni Björgvinssyni, sem lætur nú af störfum eftir átta ár hjá Sjómannadagsráði.

Far­þegum fækkaði milli ára

Farþegum Icelandair fækkaði um tvö prósent milli ára í júlímánuði. Í ár voru fluttir 599 þúsund farþegar en í fyrra, júlí 2025, voru þeir 611 þúsund. Sætanýting var 88 prósent og stendur hún í stað milli ára. Þá var stundvísi 77,1 prósent samkvæmt mælingum félagsins.

Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða

Sundagarðar verða lokaðir milli Sundaborga og Sundabakka föstudaginn 7. ágúst. Til stendur að fræsa akrein ef veður leyfir. Framkvæmdir myndu þá standa yfir frá tólf á hádegi fram til fjögur síðdegis.

Sjá meira