Samið við Icelandair um lágmarksflugsamgöngur í sumar Til greina kemur að bæta flugferðum til Kaupmannahafnar og New York við ferðir til Boston, London og Stokkhólms með nýjum samningi sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur gert við Icelandair. Samningurinn er sagður tryggja lágmarksflugferðir til Evrópu og Bandaríkjanna fram undir lok júní. 15.5.2020 19:48
Fasteignasala í borginni dróst saman um meira en 50% í apríl Rúmlega helmingi færri kaupsamningar voru gerðir í apríl en í mars. Fasteignasali segist ekki hafa séð slíkan samdrátt áður og rekur hann til kórónuveirufaraldursins. Hann segist bjartsýnn á að sala taki aftur við sér fljótt. 15.5.2020 18:54
Aðstandendur fá að fylgja konum á kvennadeild eftir helgi Opnað verður fyrir að aðstandendur fái að fylgja konum á meðgöngu, fæðingu og sængurlegu á Landspítalanum í flestum tilfellum frá og með mánudeginum 18. maí, þar á meðal í ómskoðun og eftir fæðingu. Ákveðnar takmarkanir verða þó áfram í gildi. 15.5.2020 17:36
Meðferð Ungverja á hælisleitendum talin ólögleg Hælisleitendum sem hefur verið haldið á bráðabirgðasvæðum í Ungverjalandi gæti verið sleppt eftir að Evrópudómstóllinn dæmdi slíkt varðhald ólöglegt í dag. Skipaði dómstóllinn ríkisstjórn Viktors Orban að semja nýjar reglur um hælisleitendur. 14.5.2020 23:41
Fyrirtæki Trump hefur fengið meira en 140 milljónir frá skattgreiðendum Bandaríska alríkisstjórnin hefur greitt fyrirtæki Donalds Trump forseta og æðsta stjórnanda hennar að minnsta kosti rúmlega 140 milljónir króna fyrir gistingu á hótelum og klúbbum hans frá því að Trump tók við embætti fyrir rúmum þremur árum. Útgjöldin tengjast nær öll ferðalögum Trump, fjölskyldu hans og æðstu embættismanna. 14.5.2020 22:54
Ætla að segja upp samningi við Thorsil í Helguvík Samningi Reykjaneshafnar og Thorsil ehf. um uppbyggingu kísilverksmiðju á Helguvík verður sagt upp. Stjórn Reykjaneshafnar fól hafnarstjóra að rifta samningnum frá og með mánaðamótum á fundi sínum í dag. 14.5.2020 21:09
Kórónuveira greindist í stærstu flóttamannabúðum í heimi Tveir róhingjar í stærstu flóttamannabúðum í heimi í Bangladess greindust smitaðir af nýju afbrigði kórónuveiru sem veldur Covid-19-sjúkdómnum. Um milljón róhingjar hafast við í búðunum við þröngan kost. 14.5.2020 20:46
Þingmaður afsalar sér formennsku vegna rannsóknar á innherjasvikum Öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins ætlar að stíga til hliðar sem formaður leyniþjónustunefndar öldungadeildarinnar á meðan rannsókn stendur yfir á hlutabréfaviðskiptum hans um það leyti sem markaðir hrundu vegna kórónuveirufaraldursins. 14.5.2020 18:42
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Staðan í viðræðum flugmanna og Icelandair, opnun landamæra Íslands og nýr íslenskur bíll á Grænlandi er á meðal efnis kvöldfrétta Stöðvar 2 sem hefjast klukkan 18:30. 14.5.2020 17:58
Segja innheimtufélag smálánafyrirtækja hafa brotið lög Úrskurðarnefnd lögmanna er sögð hafa komist að þeirri niðurstöðu að Almenn innheimta, sem starfað hefur fyrir smálánafyrirtæki, hafið brotið innheimtulög. Neytendasamtökin segja að engu að síður sé engin leið til þess að stöðva það sem þau telja ólöglega innheimtu smálána. 14.5.2020 17:54