Dæmdur í tíu leikja bann fyrir rasisma Knattspyrnusamband Evrópu hefur dæmt Ondrej Kúdela, leikmann Slavia Prag, í tíu leikja bann fyrir að beita Glen Kamara, leikmann Rangers, kynþáttaníði í leik liðanna í Evrópudeildinni 19. mars. 14.4.2021 13:54
Stuðningsmenn Dortmund skutu upp flugeldum fyrir utan hótel Man. City Stuðningsmenn Borussia Dortmund reyndu að leggja sínum mönnum lið með því skjóta upp flugeldum fyrir utan hótelið sem Manchester City dvelur. Liðin mætast í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. 14.4.2021 13:31
Tuchel sagði Conceicao að „fokka sér“ Sergio Conceicao, knattspyrnustjóri Porto, segir að Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, hafi sagt sér að fara til fjandans eftir leik liðanna í Meistaradeild Evrópu í gær. 14.4.2021 12:30
Liverpool reynir aftur við ókleifan spænskan hamar Í annað sinn á þremur árum þarf Liverpool að vinna upp forskot spænsks stórliðs til að komast áfram í Meistaradeild Evrópu. 14.4.2021 11:00
Umfjöllun: Ísland - Ítalía 1-1 | Jafnt í Coverciano Ísland og Ítalía gerðu 1-1 jafntefli í seinni vináttulandsleik liðanna í Coverciano í Flórens í dag. Ítalir unnu fyrri leikinn, 1-0. 13.4.2021 16:05
Samherjar og stuðningsmenn CSKA Moskvu sendu Herði Björgvini batakveðjur á íslensku og rússnesku Hörður Björgvin Magnússon er greinilega í miklum metum hjá CSKA Moskvu en fyrir leikinn gegn Rotor Volgograd í gær sendu leikmenn og stuðningsmenn liðsins honum batakveðjur. 13.4.2021 14:45
„Tímaramminn leyfir okkur því miður ekki að klára allt sem við þurfum að klára“ Allar líkur eru á því að gera þurfi breytingar á mótafyrirkomulagi hjá HSÍ til að hægt verði að klára Íslandsmótið. Stefnt er að því að hefja keppni á ný í lok næstu viku. 13.4.2021 14:16
Engir áhorfendur leyfðir þegar íþróttir fara af stað á nýjan leik Áhorfendur verða ekki leyfðir á íþróttaviðburðum þegar íþróttir hér á landi fara af stað á nýjan leik. 13.4.2021 13:56
Yfirlýsing Stjörnunnar vegna draugamarksins: Það sem gerist inni á vellinum á að ráða úrslitum Handknattleiksdeild Stjörnunnar sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem farið er yfir ástæður þess að hún kærði úrslit leiksins gegn KA/Þór í Olís-deild kvenna 13. febrúar. 13.4.2021 13:31
Stefna á að byrja að spila í lok næstu viku og bikarkeppnin bíður væntanlega Körfuknattleikssamband Íslands ætlar að klára Íslandsmótið innan þess tímaramma sem búið var að setja. Stefnt er á að keppni hefjist aftur í lok næstu viku. 13.4.2021 12:40