Hraun flæðir niður í Nátthaga „Það er víst. Hraunið er farið að renna niður í Nátthaga,“ segir Bogi Adolfsson, formaður Björgunarsveitarinnar Þorbjörns þegar fréttastofa hafði samband við hann. Mbl.is greindi fyrst frá. 22.5.2021 13:08
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar fjöllum við um gosstöðvarnar í Geldingadölum. Hraun tók að flæða yfir annan varnargarðanna í nótt og stefnir nú í átt að Nátthaga. Fólk er beðið um að gæta varúðar á svæðinu en það gæti tekið nokkrar vikur fyrir hraunið að ná að Suðurstrandavegi. 22.5.2021 11:41
Ný slökkviskjóla tekin í gagnið Landhelgisgæslan keypti nýja slökkviskjólu frá Kanada eftir að skjóla gæslunnar eyðilagðist við slökkvistörf í Heiðmörk á dögunum. 22.5.2021 11:07
Gunnar Bragi hættir á þingi í haust Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokksins, ætlar ekki að sækjast eftir kjöri í komandi Alþingiskosningum. 22.5.2021 10:59
Tíu í haldi á Keflavíkurflugvelli Tíu manns, sem komu með flugi frá Spáni í gær, eru í haldi á Keflavíkurflugvelli þar sem þeir uppfylla ekki skilyrði þess að koma til landsins. 9.5.2021 15:18
Nemandi í Árskóla smitaður af Covid Nemandi í níunda bekk í Árskóla á Sauðárkróki er smitaður af kórónuveirunni. Þetta staðfestir Óskar G. Björnsson, skólastjóri Árskóla í samtali við fréttastofu. 9.5.2021 13:13
Fari hjól atvinnulífsins ekki að taka hratt við sér gæti þurft að ráðast í opinberar fjárfestingar Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra segir að þúsund ráðningarsamningar hafi orðið til og um fjögur þúsund séu í ferli vegna verkefnisins Hefjum störf. Fari hjól atvinnulífsins ekki að taka hratt við sér gæti þurft að ráðast í opinberar fjárfestingar. 9.5.2021 13:01
Hádegisfréttir Bylgjunnar kl.12:00 Tveir til viðbótar hafa greinst með kórónuveiruna í Skagafirði. Sveitarstjóri segir fleiri á leið í sóttkví og líkur á að skólum verði lokað. Við ræðum við sveitarstjóra Skagafjarðar í hádegisfréttum. 9.5.2021 11:58
Bæta við 300 leikskólaplássum með færanlegri lausn og leikskólarútu Reykjavíkurborg stefnir að því að bæta við 300 leikskólaplássum í haust með nýrri tímabundinni lausn sem felst í færanlegum leikskólum. Til skoðunar er að bjóða elstu leikskólabörnunum upp á ferðalög um borgina í svokölluðum ævintýrarútum. 8.5.2021 21:01
Gætu gripið til þess að loka skólum Hátt í 200 Skagfirðingar voru skimaðir fyrir kórónuveirunni í dag eftir að fjórir greindust með veiruna á svæðinu. Lögregla biðlar til fólks að halda sig til hlés en óvíst er með skólahald í næstu viku. 8.5.2021 18:39