„Fólk er ekki heimskt“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir nú góðan tíma fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið en það njóti góðs af stöðu heimsmála. Hún segist hafa áhyggjur af gangi mála í Evrópu og að ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland sé mikið áhyggjuefni. Markmiðið sé að fá já þann 29. ágúst en sjálf sé hún gagnrýnin á Evrópusambandið. 27.7.2026 12:44
Hlýjast sunnan heiða og hiti allt að átján stigum Í dag má búast við norðlægri eða breytilegri átt, fimm til þrettán metrum á sekúndu. Bjart verður með köflum og yfirleitt þurrt en lítilsháttar væta norðaustan- og austantil fram eftir morgni og aftur í kvöld. Hiti verður á bilinu níu til átján stig, hlýjast sunnan heiða. 27.7.2026 10:06
Banaslys í Þrengslunum Laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi barst lögreglunni á Suðurlandi tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Þrengslavegi austan Litla-Sandfells. Einn lést í slysinu. 27.7.2026 09:23
Stór skjálfti á Nesjavöllum Skjálfti að stærðinni 4,1 mældist við Nesjavelli klukkan tuttugu og fimm mínútur í eitt í nótt. 27.7.2026 00:40
Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Alls hafa 330 þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna gróðurelda sem geisað hafa í vikunni í Frakklandi og á Spáni. 27.7.2026 00:05
Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Nítíu og þrír, eða helmingur farþega vélar Icelandair urðu eftir á flugvelli í Alicante á Spáni í dag eftir að hún var rýmd vegna bilunar í neyðarútgangi vélarinnar. Flestir þurftu að fljúga heim í fleiri en einum fluglegg. Flogið var til Íslands með hinn helming farþega vélar Icelandair eftir einhverja seinkun en barnafjölskyldur voru settar í forgang. 26.7.2026 22:43
Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Dómsmálaráðherra segir ekki gott að möguleg brot á lögum um sölu áfengis hafi fengið að „malla“ árunum saman. Staðan nú sé hvorki góð fyrir stjórnvöld né lögreglu og almenningur spyrji sig hvers vegna ekkert hafi verið gert. Málið sé hinsvegar rammpólitískt og mjög skiptar skoðanir séu um hvaða leið sé best að fara í þessum efnum. 26.7.2026 21:59
Einn í sjálfheldu í Emstrum og annar fótbrotnaði á Falljökli Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur haft í nægu að snúast í kvöld en hún hefur sinnt minnst þremur útköllum það sem af er kvöldi. 26.7.2026 20:28
„Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Bræðslustjóri segir tónleikahald á Bræðslunni á Borgarfirði eystra hafa gengið vel þrátt fyrir leiðindaveður. Hann þakkar viðbragðsaðilum fyrir vel unnin störf og að það þýði ekkert að velta sér of mikið upp úr veðurspánni. 26.7.2026 19:48
Emma Roberts gengin í það heilaga Leikkonan Emma Roberts giftist unnusta sínum, leikaranum Cody John, í gær en parið hefur verið saman í um fjögur ár, þar af trúlofuð í tvö ár. Athöfnin fór fram í Sun Valley í Idaho-ríki í Bandaríkjunum. 26.7.2026 18:51