Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Emma Roberts gengin í það heilaga

Leikkonan Emma Roberts giftist unnusta sínum, leikaranum Cody John, í gær en parið hefur verið saman í um fjögur ár, þar af trúlofuð í tvö ár. Athöfnin fór fram í Sun Valley í Idaho-ríki í Bandaríkjunum. 

Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“

Narendra Modi forsætisráðherra Indlands féllst á kröfur ungliðahreyfingar sem kallar sig Kakkalakkana sem höfðu staðið fyrir mótmælum í fimm vikur og meðal annars krafist afsagnar menntamálaráðherra landsins.

Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Ber­lín

Minnst einn lést og 14 særðust alvarlega í hátíðarhöldum hinsegin daga í Berlín, að sögn lögreglu þar í borg. Grunur er um að sendiferðabíl hafi verið ekið á mannfjölda í Tiergarten-garðinum í vesturhluta miðborgar Berlínar.

Hvass­viðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni

Lögreglan á Austurlandi segir ágætlega hafa gengið á tónlistarhátíðinni Bræðslunni sem haldin er á Borgarfirði eystra um helgina en veður hafi sett strik í reikninginn. Einhverjir gestir þurftu að leita skjóls í íþróttahúsi í gærnótt vegna hvassviðris og úrkomu og óttast er að komi til svipaðs ástands í nótt. 

Bolsonaro yngri til­kynnir forsetaframboð

Brasilíski öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro tilkynnti formlega framboð sitt til forseta Brasilíu í dag en hann er sonur fyrrverandi forseta landsins, Jair Bolsonaro.

Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fal­legt, fjallið er allt brunnið“

Íslensk-spænsk hjón sem eru búsett á Spáni þurftu að flýja heimili sitt í San Martín de Valdeiglesias í fyrradag vegna gróðurelda. Ragnar Bragason hefur verið búsettur á Spáni, ásamt eiginkonu sinni Mayte Santa Ceciliu, í um fjörutíu ár og segist ýmsu vanur. Gróðureldar séu hluti af daglegu lífi Spánverja á sumrin en þau hafi þó aldrei upplifað eins stóran eld á svæðinu. 

Einar Örn og Birna selja ein­býlis­húsið

Hjónin Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður á RÚV, og Birna Ósk Hansdóttir, verkefna- og viðburðastjóri, hafa sett 222 fermetra einbýlishús sitt á Seltjarnarnesi á sölu. Ásett verð hússins er 214,9 milljónir króna. 

Ekkert lát á á­rásum Banda­ríkjanna og Íran

Bandaríkin gerðu árás á kaupskip sem reyndi að rjúfa hafnarbann íranskra hafna, að sögn Bandaríkjahers. Jafnframt beindu Íranir áfram spjótum sínum að bandarískum herstöðvum og mannvirkjum á Persaflóa. Sádi-Arabar gerðu hefndarárás á Jemen fyrir árásir Húta á sádi-arabísk olíuskip.

Sjá meira