Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Undanfarnir dagar hafa verið úrkomusamir og spár gera ráð fyrir áframhaldandi rigningu um helgina, sér í lagi á norðvestan- og norðaustanverðu landinu. Líkur eru á grjóthruni og minni skriðum á svæðinu og fólki er ráðlagt að sýna aðgát. 7.8.2026 17:18
Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Forstjóri Fjarskiptastofu segir lokun 2G og 3G kerfanna mikla og flókna kerfisbreytingu sem hafi breytt útbreiðslu fjarskiptaþjónustu. Fjarskiptastofa og fjarskiptafélögin, SÝN, Síminn og NOVA, hafi unnið hörðum höndum í sumar við að aðlögun nýju 4G og 5G kerfanna. 7.8.2026 16:55
„Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Félagarnir og athafnamennirnir Jón Axel Ólafsson og Óskar Finnsson hittast reglulega í sánu sem Jón Axel er með á pallinum hjá sér og þeir slaka þar á og njóta svo góðra veitinga hjá Óskari sem er einn af virtustu matreiðslumönnum landsins. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og heimsótti þá félaga á palli Jóns Axels. 7.8.2026 15:36
Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur hrint af stað breytingum á námsmati í grunnskólum með það að markmiði að gera einkunnagjöf skýrari. Meðal áforma er að einkunnir verði birtar í tölustöfum í stað bókstafa. 7.8.2026 14:09
Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Samkynhneigðir karlar koma langverst út á vinnumarkaði þegar kemur að mismunun launa segir sviðsstjóri Fræðslu- og upplýsingasviðs ASÍ. Samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir ASÍ, BHM og BSRB árið 2023 um málefni hinsegin fólks á vinnumarkaði eru tekjur hinsegin karla þrjátíu prósentum lægri en tekjur gagnkynhneigðra karla á ársgrundvelli. Munur á tekjum hinsegin og gagnkynhneigðra kvenna er hins vegar hverfandi. 7.8.2026 11:37
Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa Engir minkar hafa ratað í gildrur í nágrenni við Dalsbú síðastliðna þrjá sólarhringa og aðgerðir hafa gengið vonum framar að sögn bæjarstjóra Mosfellsbæjar. 4.8.2026 12:40
Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Júlímánuður var óvenju úrkomusamur á suðvestur- og vesturhluta landsins, sérstaklega um miðjan mánuð, en óvenju þurr á Norðaustur- og Austurlandi. Í ár var blautasti júlímánuður í rúm 40 ár í Reykjavík en einn sá hlýjasti á Austfjörðum. 4.8.2026 09:26
Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Í dag má búast við hægri breytilegri átt og bjartviðri sunnan heiða og sums staðar norðanlands. Skýjað verður með köflum annars staðar og líkur eru á stöku skúrum vestan til og inn til landsins. Hiti verður á bilinu níu til tuttugu stig. 4.8.2026 07:27
Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Rúmlega sextíu þúsund manns hafa yfirgefið heimili sín í Washington-ríki á vesturströnd Bandaríkjanna vegna gróðurelda á svæðinu. Hundruð bygginga hafa eyðilagst og víða er rafmagnslaust. 4.8.2026 06:55
Enn eitt innbrotið í miðbænum Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrotsþjóf í heimahúsi í miðborg Reykjavíkur í nótt. Þjófurinn var staðinn að verki við að brjótast inn í mannlausa íbúð en nágrannar yfirbuguðu hann og héldu honum þar til lögregla kom á vettvang. 4.8.2026 06:31