Fréttamaður

Agnar Már Másson

Agnar Már er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Fara fram á lög­bann á Isavia

Verslunarmenn í Rammagerðinni segjast ætla að fara fram á lögbann á Isavia þar sem ríkisfyrirtækið hafi lokað verslun Rammagerðarinnar á Keflavíkurflugvelli í leyfisleysi. Isavia telur Rammagerðina skulda í leigu en Rammagerðin segir forsendur leigusamningsins löngu brostnar.

„Ekki rétt með farið að einka­reknu stöðvarnar séu að skara fram úr“

Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir það ekki rétt að einkareknar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu skari fram úr hinum opinberu. Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segist vilja auka heilbrigða samkeppni milli heilsugæslustöðva enda sé biðtími eftir lækni að meðaltali langur.

Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda

Bandaríkin senda nú um 2.500 bandaríska landgönguliða til Mið-Austurlanda. Enn halda árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran áfram og Íranir hafa ekki látið af árásum sínum á olíuflutningaskip í Persaflóa. 

Stofna fram­boð fyrir þá sem leggjast gegn sam­einingu

Framboðslistinn Framtíð Árneshrepps mun bjóða fram í hreppnum í komandi sveitarstjórnarkosningum en framboðið vill höfða til þeirra sem eru mótfallnir mögulegri sameiningu við Kaldrananeshrepp. Íbúar kjósa um sameininguna í mars en sveitarstjórnarkosningar eru í maí.

„Margir staðir og margir sak­borningar“

Hið minnsta fimmtán manns eru sakborningar í þeim nítján málum sem tengjast skipulögðum fíkniefnahring á Raufarhöfn og víðar. Lögreglan fyrir norðan hefur lagt hald á kannabis í kílóavís og hafa fleiri en hundrað rannsóknarúrskurðir verið kveðnir.

Noem rekin

Kristi Noem hefur verið rekin sem heimavarnaráðherra Bandaríkjanna. Öldungadeildarþingmaðurinn Markwayne Mullin tekur við af henni. Noem verður sett í glænýtt embætti.

Þau skipa lista Við­reisnar í Reykja­vík

Róbert Ragnarsson, fyrrverandi Bæjarstjóri Grindavíkur, og leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson skipa annað og þriðja sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Sjá meira