Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Mikið tjón er á íbúð við Klapparstíg eftir að eldur kom þar upp í morgun, að sögn slökkviliðs. Einn var fluttur með sjúkrabíl til athugunar. 20.6.2026 07:29
Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Maður í Noregi er sagður þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo í borginni Molde í dag. 19.6.2026 23:26
Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Umboðsmenn og tónleikahaldarar eru margir hverjir gáttaðir á umræðunni í kringum tónleikana Bergmál sem haldnir verða á Þingvöllum um helgina. Það sé fullkomlega eðlilegt að ekki megi taka með sér eigin veitingar eða stóla á tónleika. Einn spyr hvort engin takmörk séu fyrir leiðindum þjóðarinnar. 19.6.2026 22:27
James Burrows látinn Bandaríski leikstjórinn James Burrows er látinn 85 ára að aldri en hann leikstýrði meðal annars þáttum af Friends, Big Bang Theory, Staupasteini (Cheers), Frasier, Will & Grace og Taxi. Áhrif hans á grín- og gamanþætti voru gríðarleg. 19.6.2026 21:17
„Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur átta sinnum lagt fram frumvarp að lögum sem fela í sér að dreifing ösku verði gerð frjáls. Það var svo loks samþykkt á þingfundi í dag. 19.6.2026 20:11
Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ráðherrar í ríkisstjórn breska forsætisráðherrans Keirs Starmer eru sagðir hafa beðið forsætisráðherrann að segja af sér, bæði sem formaður Verkamannaflokksins og sem leiðtogi ríkisstjórnarinnar. Rísandi stjarna í flokknum hefur orðuð við að leysa hann af hólmi. 19.6.2026 19:12
Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Nova hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í félaginu Ofar og leitar nú að nýjum framkvæmdastjóra. Heildarvirði kaupanna er talið um 4,3 milljarðar króna. 19.6.2026 17:48
Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Björgunarmenn á Suðurlandi voru síðdegis í dag ræstir út að Háafossi í Þjórsárdal þar sem göngumaður virtist hafa brotnað á fæti. Göngumaðurinn hefur verið sóttur. 19.6.2026 17:38
Þingið komið í sumarfrí Þingi hefur verið frestað og ganga alþingismenn nú út í sumarfrí. Lengsta umræðan á yfirstöðnu þingi fjallaði um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þing kemur saman á ný 8. september. 19.6.2026 17:19
Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ Yngri systir Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni í samráði við eiginmann sinn á Edition-hótelinu í Reykjavík, segir að dóttir þeirra hjóna hafi ekki verið sjálfstæð og raunar hafi hún virst háð foreldrum sínum. Ming Ting hefur haldið því fram að dóttirin hafi sjálfviljug leyft foreldrum sínum að svipta sig lífi. 18.6.2026 14:17