
Besta aðfangadagskvöld í heimi: „Allt var svo fullkomið og ég var svo hamingjusöm“
Athafnakonan og tískubloggarinn Elísabet Gunnarsdóttir hefur upplifað jólin í hinum ýmsu löndum og er hún óhrædd við að skapa sínar eigin jólahefðir með fjölskyldu sinni. Elísabet er viðmælandi í Jólamola dagsins.