

Ekki verður hjá því komist að ráðast í heildarendurskoðun á allri stjórnsýslu Seðlabanka Íslands, meðferð mála innan bankans og með hvaða hætti bankinn hefur á umliðnum árum farið með það opinbera vald sem honum hefur verið falið lögum samkvæmt.
Kröfum náttúruverndarsamtaka og veiðifélaga hafnað í tveimur málum sem varða samtals 1.700 tonna seiðaeldi í kerum á landi á Árskógssandi og í Þorlákshöfn.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, breytti reglugerð um vinnslu og heilbrigðiseftirlit með hvalaafurðum tíu dögum eftir að Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf. sendi ráðherranum tölvupóst þar sem þess var óskað.
Tölvupóstur sem Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf., sendi Kristjáni Þór Júlíussyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þann 15. maí 2018 sýnir að forstjórinn óskaði eftir því að ráðherrann myndi breyta reglugerð um vinnslu og heilbrigðiseftirlit með hvalaafurðum.
Helgi Seljan sjónvapsmaður segir enga vernd fyrir uppljóstarara vera í lögum hér á landi.
Tap fyrirtækisins minnkaði á milli ára en það nam 134 milljónum norskra króna á árinu 2017, sem jafngildir um 1,9 milljörðum íslenskra króna.
Veðurstofan hefur varað við að von sé á óvenjulega mikilli ölduhæð vegna hinnar djúpu læðgar sem nálgast nú landið.
Fjárfesting TM í Arnarlaxi skilaði tryggingafélaginu árlegri ávöxtun upp á ríflega fimmtíu prósent.
Norska hugbúnaðarfyrirtækið Maritech hefur keypt um helmings hlut í íslenska sprotafyrirtækinu Sea Data Center.
Íslendingar halda áfram hvalveiðum og verður heimilt að veiða allt að 209 langreyðar og allt að 217 hrefnur á ári næstu fimm ár, samkvæmt ákvörðun sjávarútvegsráðherra.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur í dag gefið út reglugerð sem heimilar áframhaldandi veiðar á langreyði og hrefnu árin 2019 til 2023.
Sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra vonast til að geta lagt fram lagafrumvörp um fiskeldi innan tveggja vikna.
Búið er að finna um 300 þúsund tonn af loðnu. Fimm skip eru við loðnuleit, þar af eitt grænlenskt og tvö norsk fyrir austan land. Ekki enn búið að finna nægilegt magn til að hægt sé að gefa út kvóta. Vertíðin gæti því orðið sn
Tekjur þjóðarbúsins af laxeldi gætu margfaldast á næstu árum, miðað við það svigrúm sem áhættumat vísindamanna gefur á auknu sjókvíaeldi.
Áætlað er að tekjur ríkissjóðs af fiskeldi verði einn milljarður króna árið 2023 samkvæmt frumvarpsdrögum sjávarútvegsráðherra. Hátt í tuttugu umsagnir eru um frumvarpið í Samráðsgátt stjórnvalda meðal annars frá Arnarlaxi sem gerir athugasemdir við gjaldið og segir það íþyngjandi og ótímabært. Varaformaður atvinnuveganefndar Alþingis segir löngu tímabært að setja lög og reglur um fiskeldi hér á landi.
Arnarlax er komið í flokk verðmætustu fyrirtækja landsins og telst yfir tuttugu milljarða króna virði, miðað við yfirtökutilboð sem norska félagið Salmar þarf að gera öðrum eigendum Arnarlax.
Jón Kaldal segir söluvöruna í milljarða viðskiptum aðgang að íslenskri náttúru.
Norðmenn gera yfirtökutilboð í Arnarlax. Miklir fjármunir undir.
Landsréttur staðfesti í síðustu viku niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur og vísaði frá kröfu veiðirétthafa í Haffjarðará um að ógilda eigi starfs- og rekstrarleyfi fiskeldisfyrirtækisins Arnarlax.
Fyrrverandi stjórnarformaður IceProtein og Protis segir útreikninga framkvæmdastjóra Fisk Seafood ekki halda vatni.
Síldarvinnslan hf. hefur ákveðið að hætta starfsemi fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins í Helguvík.
Katrín segir fulltrúa fernra samtaka hafa óskað eftir fundi með sér um mótun matvælastefnu; Samtök iðnaðarins, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök ferðaþjónustunnar og Bændasamtök Íslands.
Hólmfríði Sveinsdóttur hefur verið sagt upp sem framkvæmdastjóra IceProtein og Protis á Sauðárkróki.
Leif Av Reyni hefur verið ráðinn verkefnastjóri sjó- og landeldis hjá fiskeldisfyrirtækinu Arctic Fish, sem starfar á sunnanverðum Vestfjörðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arctic Fish.
Í umræðum um laxeldi í sjókvíum við Ísland er stundum látið eins og þetta sé ný atvinnugrein hér við land.
Leifur Geir Hafsteinsson hefur verið ráðinn í nýtt starf mannauðsstjóra hjá Völku. Hann hefur víðtæka reynslu bæði sem stjórnandi og sérfræðingur í stjórnun og mannauðsstjórnun.
Þorsteinn Víglundsson furðar sig á tvískinnungi í málflutningi talsmanna útgerðarinnar.
Fyrir örfáum dögum kom enn ein tilkynningin um að fundist hefði gat á opinni sjókví sem innihélt vel á annað hundrað þúsund frjóa norska laxa.
Hefur störf 1. febrúar.
Réttaráhrifum veiðileyfasviptingu Kleifabergs RE-70 hefur verið frestað til 15. apríl næstkomandi á meðan unnið er úr kæru Brims á ákvörðun Fiskistofu. Andmælaréttur fyrirtækisins ekki virtur. Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi.