

Menning
Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.

Flutti til Los Angeles til að setja tónlistina í fyrsta sæti
Tónlistarmaðurinn Magnús Gunnarsson er búsettur í Los Angeles. Á streymisveitunni Spotify er hann með um 400 þúsund mánaðarlega hlustendur og hefur fylgst með tölunum aukast að undanförnu. Blaðamaður hafði samband við Magnús vestur um haf og tók púlsinn á honum.

Bruce Willis greindur með málstol og hættir að leika
Leikarinn ástkæri Bruce Willis hefur greinst með málstol sem hefur áhrif á hugræna getu hans og kveður hann í kjölfarið leiklistarferilinn sinn. Fjölskylda leikarans tilkynnti fréttirnar á samfélagsmiðlum.

Víðtækar lokanir í miðbæ vegna kvikmyndatöku fyrir Netflix
Gal Gadot, Jamie Dornan og fleiri stórstjörnur verða við störf í miðbæ Reykjavíkur um helgina við tökur á kvikmyndinni Heart of Stone fyrir streymisveituna Netflix. Kvikmyndatökunum fylgja víðtækar lokanir, bæði fyrir akandi og gangandi vegfarendur.

Saga palestínskrar fjölskyldu á Íslandi sem býr við endalausa óvissu
Hljómsveitin BSÍ sendir frá nýtt myndband við lagið þeirra TAL 11. Leikstjóri myndbandsins er Erlendur Sveinsson en lagið er af fyrstu breiðskífunni BSÍ sem kom út í fyrra. Myndbandið lokar þar með hringnum í kringum útgáfu plötunnar þeirra „Stundum þunglynd ... en alltaf andfasísk“. Hér má sjá myndbandið:

Herdís og Gísli bræddu áhorfendur á blindu stefnumóti
Það vantaði ekki útgeislunina og glæsilegheitin í fyrsta þætti stefnumótaþáttarins Fyrsta blikið sem sýndur var síðasta föstudagskvöld á Stöð 2.

Tónlistarmínútur með Steinari Fjeldsted - nýtt og ferskt tónlistarfólk allsráðandi!
Steinar Fjeldsted hjá Albumm.is fer alla fimmtudaga yfir það helsta sem er að gerast í Íslenskri tónlist í Tónlistarmínútum hjá Ósk Gunnars á FM957.

Breskur doktor í taugavísindum og erfðafræði á toppnum í raftónlistinni
Tónlistarþátturinn PartyZone hefur sett saman lista yfir 30 bestu danstónlistarlög mars. Á toppnum trónir breski raftónlistarmaðurinn Floating Points frá Manchester. Hann er doktor í taugavísindum og erfðafræði og orðinn einn þekktasti raftónlistarmaður Breta.

Ný Tónlistarmiðstöð líti dagsins ljós á næsta ári
Áætlað er að ný Tónlistarmiðstöð taki til starfa í upphafi næsta árs. Henni er ætlað að sinna fræðslu og stuðningi við tónlistarfólk og tónlistarlistartengd fyrirtæki, styðja við uppbyggingu tónlistariðnaðarins, kynna íslenska tónlist og tónlistarfólk á erlendri grundu og vera nótnaveita fyrir íslensk tónverk.

Deep Water: Tilviljanir og heimska í glórulausri aðlögun
Það er eitthvað voðalega skakkt við aðlögun Adrian Lyne á skáldsögu Patriciu Highsmith, Deep Water, sem nú er hægt að sjá á Amazon Prime. Þar leika Ben Affleck og Ana De Armas einhver undarlegustu hjón sem sést hafa á skjánum lengi.

Ráðin kynningar- og markaðsstjóri Listasafns Reykjavíkur
Nathalía Druzin Halldórsdóttir hefur verið ráðin sem kynningar- og markaðsstjóri Listasafns Reykjavíkur.

Gervi-Íslendingur græðir á tá og fingri á Spotify
Íslenska tónlistarmanninn Ekfat kannast fæstir við en þrátt fyrir það er hann að fá milljónir hlustana á streymisveitunni Spotify. Lögin Polar Circle og Singapore með Ekfat eru samtals með yfir 5 milljónir hlustana.

Bál tímans og Bannað að eyðileggja tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Bækurnar Bál tímans og Bannað að eyðileggja eru þær íslensku bækur sem tilnefndar eru til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Alls eru þrettán norrænar mynda-, unglinga-, og ljóðabækur tilnefndar til verðlaunanna.

Reykjavíkurdætur halda sína fyrstu tónleika á Íslandi í þrjú ár
Vinsældir Reykjavíkurdætra hér á landi hafa sennilega aldrei verið meiri en núna. Hljómsveitin er strax byrjuð að bóka tónleika erlendis eftir að vekja mikla athygli fyrir þátttökuna í Söngvakeppninni.

Lisa Ekdahl með tónleika í Hörpu í sumar
Sænska söngkonan Lisa Ekdahl er á leiðinni til landsins og mun halda tónleika í Eldborg í Hörpu þann 6. júní í sumar.

Sigurður Hannesson nýr stjórnarformaður Sinfóníunnar
Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins hefur tekið við sem stjórnarformaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands af Sigurbirni Þorkelssyni, sem hefur sinnt stöðunni síðan 2014.

KÚNST: „Þessi stöðuga þörf til að gera eitthvað hefur skilað mér hvað mestum árangri“
Listamaðurinn Árni Már Erlingsson rekur Gallery Port á Laugavegi 32 og er með marga bolta á lofti. Hann er gestur í nýjasta þætti af KÚNST sem er að finna neðar í pistlinum.

Fordæma kinnhestinn sem verður rannsakaður
Bandaríska kvikmyndakademían hefur fordæmt hegðun leikarans Wills Smith á nýafstaðinni Óskarsverðlaunafhendingu, þar sem Smith gaf grínistanum Chris Rock kinnhest í beinni útsendingu.

Megan Thee Stallion stal senunni í Encanto atriði
Lagið We Don't Talk About Bruno úr Encanto var flutt á hátíðinni í gær í sérstakri Óskarsútgáfu. Megan Thee Stallion fór þar á kostum.

Óskarsverðlaunaflutningur Billie Eilish og Finneas O'Connell
Systkinin Billie Eilish og Finneas O'Connell unnu Óskarsverðlaunin í ár fyrir besta frumsamda lagið. Bond lagið þeirra No Time to Die var valið það besta úr kvikmyndum síðasta árs.

Blue Ivy kom fram í Óskarsatriði Beyoncé
Beyoncé ljómaði eins og sólin í stórkostlegu atriði í nótt. Söngkonan Beyoncé opnaði Óskarsverðlaunin með flutningi á laginu Be Alive úr kvikmyndinni King Richard.

Billie Eilish hreppir Óskarinn fyrir besta frumsamda lagið
Tónlistarkonan Billie Eilish var rétt í þessu að vinna Óskarsverðlaun fyrir besta frumsamda lagið ásamt bróður sínum Finneas Eilish. Lagið sem um ræðir heitir No Time To Die og er titillag nýjustu James Bond kvikmyndarinnar.

Ariana DeBose skráði sig í sögubækurnar
Ariana DeBose skráði sig í sögubækurnar á Óskarsverðlaununum nú í nótt. DeBose er fyrsta dökka opinberlega hinsegin konan til að vinna til Óskarsverðlauna fyrir leik í kvikmynd.

Myndirnar sem eru tilnefndar sem besta myndin á Óskarnum í kvöld
Það hefur eflaust reynst mörgum erfitt að reyna að ná að horfa á allar þær myndir sem tilnefndar eru til Óskarsins sem besta myndin í kvöld. Lífið á Vísi tók saman það allra helsta um hverja mynd fyrir sig til þess að auðvelda málið.

Stemning á opnun Stockfish kvikmyndahátíðarinnar
Það var heilmikil stemning í Bíó Paradís við opnun Stockfish kvikmyndahátíðarinnar fyrir helgi. Fólk úr kvikmyndabransanum og aðrir góðir gestir fjölmenntu og nutu þess að skála og spjalla án fjölda- og fjarlægðatakmarkana.

Útgáfurisinn Universal gefur út íslenska kórtónlist
Útgáfurisinn Universal hefur nýverið gefið út plötuna Vökuró í samstarfi við dömukórinn Graduale Nobili. Platan er gefin út undir formerkjum Decca plötuútgáfu Universal. Í þessu felst gríðarlega mikil útrás fyrir íslenska kórtónlist, sem sífellt er að verða vinsælli erlendis.

Magnaðar ljósmyndir á gömlu almenningssalerni
Í Núllinu í miðbæ Reykjavíkur var áður almenningssalerni, en nú er starfrækt þar listastúdíó. Þessi dægrin má þar finna ljósmyndasýningu sem hverfist um Úkraínu, sögu landsins og stríðið sem geisað hefur þar síðasta rúma mánuðinn.

Alexandra Sif í tökum með lagahöfundi Beyoncé
Alexandra Sif Tryggvadóttir vinnur hjá stórfyrirtækinu Spotify og er búsett í sólríku Los Angeles. Hún er að gera öfluga hluti vestanhafs í ýmsum verkefnum og öðlaðist það eftirsótta tækifæri að fá að sækja sérstakan fjölmiðla dag fyrir Óskarsverðlaunahátíðina. Blaðamaður hafði samband við Alexöndru og tók púlsinn á stemningunni svona rétt fyrir Óskarinn.

Ópíóðar og þunglyndislyf í blóði trommarans
Leifar tíu mismunandi lyfja og efna, meðal annars ópíóða, þunglyndislyfja og kannabis, fundust í blóði trommarans Taylor Hawkins sem féll frá á föstudaginn aðeins fimmtíu ára gamall.

Þórdís Erla bæjarlistarmaður Seltjarnarness
Þórdís Erla Zoëga myndlistarmaður var útnefnd bæjarlistarmaður Seltjarnarness árið 2022 við hátíðlega athöfn á bókasafni bæjarins föstudaginn 25. mars síðastliðinn.

„Eins og að búa í tjaldi uppi á Esjunni allt árið“
Ragnar Axelsson á ótal minningar af ferðalögum um Síberíu, þar á meðal þegar hann prófaði að skjóta úr byssu úti í skógi í leit að „Wolverine.“