
Lars von Trier með Parkinson
Danski kvikmyndaleikstjórinn Lars von Trier hefur greinst með Parkinson. Leikstjórinn umdeildi hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir kvikmyndir sínar en myndir hans hafa sjö sinnum verið valdar besta myndin á dönsku Bodil-verðlaununum.