King er nýja drottningin í Grindavík Kristina King hefur samið við Grindavík og mun spila með kvennaliði félagsins út þetta tímabil. Hún tekur við stöðu Rachel Tecca sem var látin fara fyrir jólin. Körfubolti 2. janúar 2015 18:15
Dóttir fyrrum NBA-leikmanns spilar með kvennaliði Vals Bandaríski bakvörðurinn Taleya Mayberry mun spila með liði Vals í seinni hluta Dominos-deild kvenna í körfubolta en Valsmenn hafa gert samning við þessa 23 ára gömlu stelpu sem útskrifaðist frá Tulsa-háskólanum. Körfubolti 2. janúar 2015 16:45
Finnur hættir með KR-konur og tekur við Skallagrími Finnur Jónsson, fyrrum leikmaður Skallagríms, hefur verið ráðinn nýr þjálfari karlaliðs Skallagríms í Dominos-deild karla en þetta kemur fram á heimasíðu Skallagríms og heimasíðu KR. Körfubolti 2. janúar 2015 14:11
Pétur Ingvarsson hættir með Skallagrím Pétur Ingvarsson mun ekki stýra liði Skallagríms í seinni hluta Dominos-deildar karla í körfubolta en hann hefur komist að samkomulagi um að hætta að þjálfa liðið. Körfubolti 2. janúar 2015 12:12
Nýársbombur frá Körfuknattleiksdeild Grindavíkur Grindvíkingar hafa gert stórar breytingar á bæði karla- og kvennaliði félagsins fyrir seinni hluta Dominos-deildanna. Körfubolti 2. janúar 2015 12:04
Chicago á skriði í NBA-deildinni Hefur unnið ellefu af síðustu þrettán leikjum sínum. Körfubolti 2. janúar 2015 08:00
James og Curry vinsælustu leikmennirnir í NBA LeBron James hjá Cleveland Cavaliers og Stephen Curry hjá Golden State Warriors eru áfram efstir í kosningunni í Stjörnuleik NBA-deildarinnar sem fer fram í Madison Square Garden í New York City 15. febrúar næstkomandi. Körfubolti 1. janúar 2015 22:30
Cleveland Cavaliers án LeBron James næstu vikurnar LeBron James verður frá keppni á næstunni en Cleveland Cavaliers tilkynnti það í dag að besti leikmaður NBA-deildarinnar glími við meiðsli í hné og baki og verði ekki með liðinu næstu tvær vikurnar. Körfubolti 1. janúar 2015 21:30
Durant sneri aftur með látum | Myndbönd Skoraði 44 stig er Oklahoma City vann Phoenix í framlengdum leik. Körfubolti 1. janúar 2015 11:10
Mögnuð myndbönd frá árinu í NBA Það helsta frá árinu í NBA tekð saman í nokkur skemmtileg myndbönd. Körfubolti 31. desember 2014 15:53
Hörður Axel komst ekki á blað í stórtapi Fimmta tap Mitteldeutscher í röð. Körfubolti 31. desember 2014 15:40
Tvenna Hlyns dugði ekki til í Íslendingaslag Fimm Íslendingar í eldlínunni og Haukur Helgi Pálsson stóð uppi með stigin tvö eftir leik. Körfubolti 31. desember 2014 11:00
Þrenna frá Kobe í sigri Lakers | Myndbönd Kobe Bryant í banastuði með Lakers í nótt. Körfubolti 31. desember 2014 10:01
Frábær sigur hjá Jóni Arnóri og félögum gegn Real Madrid Lið Jóns Arnórs Stefánssonar, Unicaja Malaga, lenti í svakalegum leik gegn Real Madrid í kvöld í toppslag spænsku deildarinnar. Körfubolti 30. desember 2014 21:46
Tók fyrir öll liðin í Dominos-deildinni og leikgreindi þau í ræmur Hörður Tulinius, mikill áhugamaður um körfuboltatölfræði og meðlimur í ritstjórn körfuboltavefsíðunnar karfan.is, eyddi jólafríinu sínu í að reikna út allskonar tölfræði um liðin tólf sem skipa Dominos-deild karla í körfubolta. Körfubolti 30. desember 2014 13:00
Usher til Keflavíkur - Bonneau til Njarðvíkur | Myndbönd Reykjanesbæjarliðin Njarðvík og Keflavík skiptu bæði um bandarískan leikmann um áramótin og nú er komið í ljós hvaða leikmenn spila með liðunum í Dominos-deildinni eftir áramót. Körfubolti 30. desember 2014 12:00
Leikmenn Zaragoza líktu Kristni við Jón Arnór Kristinn Pálsson, fyrirliði unglingaliðs Stella Azzura frá Róm, tók í gær við bikarnum eftir að liðið tryggði sér sæti á úrslitahelgi Euroleague framtíðarleikmanna en ítalska liðið vann alla fjóra leiki sína í sínum riðli. Körfubolti 30. desember 2014 10:30
Sjö sigrar Bulls í röð | Myndbönd Chicago vann í NBA-deildinni í nótt en Houston tapaði öðrum leiknum í röð. Körfubolti 30. desember 2014 07:23
Jón Arnór í viðtali á FIBA.com: Eins og dagur og nótt Jón Arnór Stefánsson, körfuboltamaður ársins og einn af þeim tíu sem koma til greina sem Íþróttamaður ársins, er í skemmtilegu viðtali á heimasíðu FIBA þar sem íslenski landsliðsmaðurinn ræðir meðal annars EM-ævintýri íslenska landsliðsins sem og hlutverk sitt hjá toppliði Unicaja Malaga á Spáni. Körfubolti 29. desember 2014 21:30
Kristinn öflugur er Stellazzura komst í Final Four Njarðvíkingurinn Kristinn Pálsson komst í kvöld í undanúrslit í Evrópukeppni framtíðarleikmanna er lið hans, Stellazzura frá Ítalíu, vann sigur á spænska liðinu Unicaja Malaga, 65-50, í úrslitaleik um farmiðann í keppni fjögurra bestu liðanna sem fram fer í Madrid. Körfubolti 29. desember 2014 20:47
Haukur hafði betur gegn Íslendingaher Sundsvall Sundsvall Dragons missti í kvöld af tækifæri til þess að komast á topp sænsku úrvalsdeildarinnar en LF Basket komst aftur á móti upp að hlið toppliðs Norrköping. Körfubolti 29. desember 2014 20:24
Landsliðsþjálfarinn Helena Sverrisdóttir: Nýtt hlutverk fyrir mig Valtýr Björn Valtýsson heimsótti Helenu Sverrisdóttur á æfingu fimmtán ára landsliðs kvenna í körfubolta í dag en fyrirliði kvennalandsliðsins hefur tekið að sér þjálfun stelpnanna í samvinnu við Ingvar Þór Guðjónsson. Körfubolti 29. desember 2014 19:00
Blokkaði Lebron í nótt og Svíar eru sáttir Sænski NBA-leikmaðurinn Jonas Jerebko og félagar hans í Detroit Pistons fögnuðu flottum sigri á móti Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Körfubolti 29. desember 2014 12:30
Spilaði með Noah, Horford og Parsons í skóla en er núna kominn í Fjölni Fjölnismenn eru búnir að finna eftirmann Daron Lee Sims en karfan.is segir frá því að Körfuknattleiksdeild Fjölnis hafi gengið frá samningi við bandaríska miðherjann Jonathan Mitchell. Körfubolti 29. desember 2014 11:00
Kristinn og félagar spila til úrslita í Euroleague framtíðarleikmanna Njarðvíkingurinn Kristinn Pálsson er að standa sig vel í leiðtogahlutverkinu hjá ítalska unglingaliðinu Stella Azzura en lið hans er komið alla leið í úrslitaleikinn um sæti meðal hinna fjögurra fræknu í Euroleague Next Generation Tournament eða Euroleague framtíðarleikmanna. Körfubolti 29. desember 2014 10:30
Selfie-prik og appelsína bestu jólagjafirnar Íslendingarnir fjórir hjá Sundsvall Dragons ánægðir með uppskeru jólanna. Körfubolti 29. desember 2014 09:15
Meistararnir aftur á sigurbraut | Myndbönd San Antonio Spurs hafði betur gegn grönnum sínum í Houston Rockets. Körfubolti 29. desember 2014 07:34
Garnett blés í eyra West og fiskaði óíþróttamannslega villu Kevin Garnett kann öll trixin í bókinni. Þessi goðsagnakenndi leikmaður Brooklyn Nets í NBA körfuboltanum í Bandaríkjunum náði að pirra David West í leik Nets og Indiana Pacers í gær. Körfubolti 28. desember 2014 23:30
Stórt tap hjá Elvari og Martin í Brooklyn LIU Brooklyn Blackbirds varð að sætta sig við stór tap á heimavelli gegn Hofstra Pride 88-62 í háskólakörfuboltanum í Bandaríkjunum í nótt. Hofstra var 45-25 yfir í hálfleik. Körfubolti 28. desember 2014 21:15
Fiskikóngurinn er plötusnúður í Ásgarði | Kenndi Sigga Hlö Kristján Berg er best þekktur sem Fiskikóngurinn en hann hefur brugðið sér í hlutverk plötusnúðar á heimaleikjum Stjörnunnar í Dominos deild karla í körfubolta í vetur. Körfubolti 28. desember 2014 20:30