Kristinn og félagar spila til úrslita í Euroleague framtíðarleikmanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. desember 2014 10:30 Kristinn Pálsson. Mynd/Youtube
Njarðvíkingurinn Kristinn Pálsson er að standa sig vel í leiðtogahlutverkinu hjá ítalska unglingaliðinu Stella Azzura en lið hans er komið alla leið í úrslitaleikinn um sæti meðal hinna fjögurra fræknu í Euroleague Next Generation Tournament eða Euroleague framtíðarleikmanna.Karfan.is sagði fyrst frá frábæru gengi unglingaliðs Stella Azzura en liðið hefur unnið alla þrjá leiki sína á mótinu til þessa. Átta liðum var skipt niður í tvo riðla þar sem aðeins eitt lið kemst áfram í úrslitahelgina. Kristinn er búinn að skora 8,0 stig að meðaltali á 28,4 mínútum í þessum þremur leikjum auk þess að stela 3,3 boltum í leik, taka 2,7 fráköst að meðaltali og gefa 1,7 stoðsendingar í leik. Kristinn fær sérstakt hrós fyrir varnarleikinn sinn en samkvæmt fyrrnefndri frétt á karfan.is stóð hann sig mjög vel á móti Króatanum Dragan Bender sem spilar með Tel Aviv. Bender þessi er talinn besti leikmaður 1997 árgangsins þetta árið og var með áberandi lökustu tölfræðina á móti Kristni og félögum (fæst stig, lélegustu skotnýtinguna og flesta tapaða bolta). Kristinn er nýorðinn 17 ára gamall en hann er sonur fyrrverandi landsliðsmannsins Páls Kristinssonar og þá spilaði móðir hans, Pálína Gunnarsdóttir, einnig mörg tímabil með Njarðvík í úrvalsdeild kvenna. Stella Azzura mætir spænska liðinu Unicaja Malaga í úrslitaleiknum klukkan 18.30 í kvöld en þar á ferðinni félagið sem Jón Arnór Stefánsson spilar með, Sigurvegarinn úr leiknum tryggir sér farseðil á fjögurra liða úrslitahelgi í keppninni sem fer fram í Madrid í maí. Þetta er fyrsti hlutinn af fjórum en hinir fara fram á nýju ári í L'Hospitalet á Spáni, í Kaunas í Litháen og í Belgrad í Serbíu. Hér fyrir neðan má sjá tilþrif úr leiknum sem og viðtal við Kristinn sem er tekið á ensku. Kristinn stýrir einnig fagnaðarhring liðsins eftir leikinn.
Körfubolti Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira