Rúnar: Förum ekki áfram í þessari keppni Rúnar Kristinsson þjálfari KR var skiljanlega svekktur eftir 4-1 tap á heimavelli gegn Dinamo Tbilisi í undankeppni Evrópudeildar í kvöld. KR-ingar fengu fín færi í leiknum sem nýttust ekki. Íslenski boltinn 28. júlí 2011 22:34
Grétar Sigfinnur: Þetta er alls ekki vonlaust Grétar Sigfinnur Sigurðarson var fyrirliði KR í kvöld í fjarveru Bjarna Guðjónssonar. Það er orðinn sjaldgæfur viðburður að taka viðtöl við KR-inga eftir tapleiki. Íslenski boltinn 28. júlí 2011 22:29
Ísland mætir Þýskalandi í bronsleiknum - vítakeppni í hinum leiknum Íslensku stelpurnar í 17 ára landsliðinu mæta Þýskalandi í leiknum um þriðja sætið á Evrópumótinu í Nyon í Sviss eftir að þýska liðið tapaði í vítakeppni á móti Frakklandi í seinni undanúrslitaleiknum í kvöld. Leikurinn fer fram á sunnudaginn. Spánn og Frakkland spila til úrslita um Evrópumeistaratitilinn. Íslenski boltinn 28. júlí 2011 18:03
Umfjöllun: KR-ingar teknir í kennslustund á heimavelli KR-ingar steinlágu 1-4 gegn Dinamo Tbilisi frá Georgíu í fyrri leik liðanna í 3. umferð undankeppni Evrópudeildar í kvöld. Eftir að hafa fengið óskabyrjun og komist yfir sneru gestirnir leiknum sér í hag og unnu að lokum þægilegan sigur. Íslenski boltinn 28. júlí 2011 16:56
Telma: Við ætlum ekki að standa okkur svona illa aftur Telma Þrastardóttir var einn besti leikmaður 17 ára landsliðs kvenna sem tapaði 0-4 á móti Spáni í undanúrslitum Evrópumótsins í dag. Íslenska liðið spilar um bronsið á mótinu og Telma og félagar ætla að gera þar miklu betur en í dag. Fótbolti 28. júlí 2011 16:45
Ísland tapaði 4-0 gegn Evrópumeistaraliði Spánverja Íslenska U17 ára kvennalandsliðið í fótbolta tapaði 4-0 gegn ríkjandi Evrópumeistaraliði Spánverja í undanúrslitum Evrópumótsins í Nyon í Sviss í dag. Spánverjar voru með mikla yfirburði í leiknum en mörkin sem Ísland fékk á sig voru afar slysaleg svo ekki sé meira sagt. Frakkar og Þjóðverjar eigast við kl. 16 í dag í hinum undanúrslitaleiknum og mætir Íslandi tapliðinu úr þeirri viðureign í leiknum um bronsverðlaunin. Fótbolti 28. júlí 2011 13:49
Rúnar Kristins: Vonandi getum við strítt þeim Rúnar Kristinsson þjálfari KR leiðir lið sitt í 3. umferð undankeppni Evrópudeildar í kvöld. Andstæðingurinn er Dinamo Tbilisi frá Georgíu sem fyrirfram er talið töluvert sterkara liðið. Íslenski boltinn 28. júlí 2011 12:00
Guðmunda Brynja: Erum töluvert stærri og þyngri Guðmunda Brynja Óladóttir frá Selfossi er lykilmaður í íslenska U17 ára landsliðinu sem mætir Spáni í undanúrslitum í Evrópukeppninni í dag. Hún segir mikla samheldni í hópnum þar sem enginn er skilinn út undan. Íslenski boltinn 28. júlí 2011 10:41
KR á móti Dinamo í kvöld: Leikir sem menn dreymir um að spila KR mætir Dinamo Tbilisi frá Georgíu í fyrri viðureign liðanna í 3. umferð undankeppni Evrópudeildar í Vesturbænum í kvöld. Fyrir fram er georgíska liðið talið mun líklegra til afreka í einvíginu en KR-ingar hafa farið á kostum í sumar og skyldi ekki afskrifa þá. Íslenski boltinn 28. júlí 2011 08:00
Íslensku stelpurnar í beinni á Eurosport í dag Stelpurnar í 17 ára landsliðinu í fótbolta mæta Spánverjum í undanúrslitum EM í Nyon í Sviss í dag. Þetta mót er haldið í höfuðstöðvum UEFA í fjórða sinn. Íslenski boltinn 28. júlí 2011 06:00
Tryggvi: Hundfúll eins og alltaf eftir tap Tryggvi Guðmundsson var hundfúll eftir tapið gegn Þór í kvöld, enda rík ástæða til. Bikarúrslitaleikurinn rann ÍBV úr greipum en baráttuglaðir Þórsarar hirtu sætið. Íslenski boltinn 27. júlí 2011 22:01
Leiknismenn á siglingu undir stjórn Zorans Leiknismenn unnu sinn þriðja leik í röð í 1. deild karla í kvöld þegar þeir unnu 5-1 sigur á Þrótturum sem voru fyrir leikinn sex sætum ofar en þeir í töflunni. Haukar sóttu að Selfossi í baráttunni um annað sætið þökk sé sigurmarki Hilmars Rafns Emilssonar á móti ÍR. Íslenski boltinn 27. júlí 2011 21:58
Jóhann: Erum tilbúnir til að deyja fyrir klúbbinn Þórsarar munu eflaust fagna vel og lengi sigrinum á ÍBV í kvöld. Jóhann Helgi Hannesson segir að sigurinn færi liðinu aukið sjálfstraust fyrir framhaldið. Íslenski boltinn 27. júlí 2011 21:47
Finnur: Vantaði ákveðni í teigunum "Það vantaði það sama og fyrr í sumar, ákveðni í vítateigunum," sagði Finnur Ólafsson leikmaður ÍBV eftir tapið gegn Þór í kvöld. Íslenski boltinn 27. júlí 2011 21:42
Atli Sigurjónsson: Ég vil fá KR í úrslitaleiknum „Ég veit ekki alveg hvernig ég á að haga mér. Ég er alveg búinn á því en mjög glaður," sagði Þórsarinn Atli Sigurjónsson í viðtali við Valtýr Björn Valtýsson á Stöð 2 Sport eftir að Þórsliðið hafði tryggt sér sæti í bikarúrslitaleiknum í fyrsta sinn í sögu félagsins. Íslenski boltinn 27. júlí 2011 21:13
Umfjöllun: Fyrsti bikarúrslitaleikur Þórsara framundan Þór er komið í úrslitaleik Valitor-bikarkeppninnar í fyrsta skipti í sögu félagið. Þór vann góðan sigur á ÍBV á Akureyri í kvöld og mætir BÍ/Bolungarvík eða KR í úrslitaleiknum 13. ágúst. Íslenski boltinn 27. júlí 2011 18:15
Þjálfari Víkings Ólafsvíkur úrskurðaður í þriggja leikja bann Ejub Purisevic þjálfari Víkings í Ólafsvík hefur verið úrskurðaður í þriggja leikja bann fyrir framkomu sína og brottvísun í 2-2 jafnteflinu gegn Fjölni á föstudaginn. Íslenski boltinn 27. júlí 2011 17:30
Veðurguðinn heim á Selfoss Knattspyrnumaðurinn Ingólfur Þórarinsson hefur gengið til liðs við Selfoss. Ingólfur hefur verið á mála hjá Víkingum en fengið fá tækifæri í búningi reykvíska félagsins í sumar. Sunnlenska.is greinir frá þessu. Íslenski boltinn 27. júlí 2011 16:30
Ísland upp um eitt sæti á styrkleikalista FIFA Ísland og Færeyjar hækka á nýjasta styrkleikalista FIFA sem birtur var í morgun. Ísland er nú í sæti númer 121 en landsliðið náði sögulegri lægð á listanum í síðasta mánuði þegar liðið var í 122. sæti. Grenada, Tæland og Liechtenstein eru í sætunum fyrir ofan. Fótbolti 27. júlí 2011 12:00
Sigurganga Skagamanna heldur áfram - myndir Skagamenn unnu sinn tíunda leik í röð í 1. deild karla í gær þegar þeir unnu 2-1 sigur á Selfossi í toppslag deildarinnar. ÍA-liðið hefur náð í 40 stig af 42 mögulegum í fyrstu fjórtán leikjum sínum í sumar. Íslenski boltinn 27. júlí 2011 08:45
Valskonur klárar í toppslaginn við Stjörnuna - myndir Íslands- og bikarmeistarar Vals unnu sannfærandi 4-0 sigur á Fylki í Pepsi-deild kvenna í gærkvöldi. Valsliðið komst í 3-0 í fyrri hálfleik þar sem liðið spilaði frábæran sóknarleik. Íslenski boltinn 27. júlí 2011 08:30
Vægast sagt lélegur með hægri Guðmundur Reynir Gunnarsson, bakvörður KR-inga, hefur farið á kostum með liðinu í sumar. Hann segir sig langa í atvinnumennsku hvenær sem af því verður. Guðmundur Reynir átti frábæran leik í 4-0 sigrinum á Breiðablik í 12. umferð Pepsi-deildar og er besti Íslenski boltinn 27. júlí 2011 08:00
Bikarúrslitaleikurinn í húfi fyrir norðan Þórsarar taka á móti ÍBV í undanúrslitum Valitor-bikars karla í knattspyrnu í kvöld. Þórsarar geta komist í úrslit keppninnar í fyrsta skipti en Eyjamenn hafa unnið bikarinn fjórum sinnum, síðast árið 1998. Íslenski boltinn 27. júlí 2011 07:30
Ingimundur Níels skorar bara á móti Víkingunum í deildinni Fylkismaðurinn Ingimundur Níels Óskarsson er meðal markahæstu leikmanna Pepsi-deildar karla í sumar en hann hefur skorað sex mörk í tólf leikjum. Íslenski boltinn 27. júlí 2011 06:30
Valsmenn eina liðið sem hefur ekki skorað mark manni fleiri Valsmenn fóru illa með góða stöðu þegar þeir urðu manni fleiri á móti FH-ingum í Pepsi-deildinni í fyrrakvöld og töpuðuþar með dýrmætum stigum í toppbaráttunni. Íslenski boltinn 27. júlí 2011 06:15
Íslandsmeistarar Breiðabliks eru verstir allra liða á útivelli Íslandsmeistarar Breiðabliks sitja aðeins í 8. sæti eftir fyrstu 12 umferðir Pepsi-deildar karla og þar spilar stórt hlutverk slök frammistaða liðsins á útivelli enda hafa 87 prósent stiga Blika komið í hús í Kópavogi. Íslenski boltinn 27. júlí 2011 06:00
Doninger: Alveg sama þótt Gary öskri á mig "Ég hafði það á tilfinningunni að ég myndi hitta boltann vel og skora. Þess vegna tók ég þessa aukaspyrnu. Ég var alveg viss um að hitta á markið og það er frábært að skora sigurmark með þessum hætti. Mér var alveg sama þótt Gary (Martin) væri að öskra á mig en hann vildi að sjálfsögðu taka þetta sjálfur,“ sagði Englendingurinn Mark Doninger leikmaður ÍA eftir að hann tryggði liðinu 2-1 sigur með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu á 90. mínútu gegn liði Selfoss í kvöld á Akranesvelli. Íslenski boltinn 26. júlí 2011 22:49
Þórður Þórðarson: Ekki komnir upp en þetta lítur óskaplega vel út „Við erum ekki komnir upp en þetta lítur óskaplega vel út,“ sagði Þórður Þórðarson þjálfari ÍA eftir 2-1 sigur liðsins gegn liði Selfoss í toppslagnum í 1. deild karla í fótbolta í kvöld. Skagamenn voru einum færri í 80 mínútur þar sem fyrirliðinn Heimir Einarsson fékk rautt spjald á 13. mínútu. Íslenski boltinn 26. júlí 2011 22:36
Valskonur minnkuðu forskot Stjörnunnar í tvö stig - Kristín Ýr með þrennu Valskonur unnu 4-0 sigur á Fylki í Pepsi-deild kvenna í kvöld og minnkuðu með því forskot Stjörnunnar á toppnum í tvö stig. Toppliðin mætast síðan í sannkölluðum stórleik í næstu umferð. Breiðablik tók fimmta sætið af Fylki með 3-2 sigri á KR í Kópavogi. Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði í sínum fyrsta leik með Val eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Íslenski boltinn 26. júlí 2011 21:11
KA vann fallslaginn á móti HK KA-menn unnu mikilvægan 2-1 sigur á botnliði HK í 1. deild karla í fótbolta í kvöld en með þessum sigri náðu KA-menn fjögurra stiga forskot á Leikni í síðasta örugga sæti deildarinnar. Íslenski boltinn 26. júlí 2011 20:53