

Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.
ÍR og ÍBV áttust við í 3. umferð Olís deild kvenna í kvöld. ÍR sem hafði fyrir leikinn ekki enn náð í sitt fyrsta stig á mótinu voru grátlega nálægt því að leggja ÍBV af velli en urðu að sætta sig við stigið þar sem leiknum lauk með jafntefli 22-22.
Dinamo Búkarest hafði getur gegn Wisla Plock í Meistaradeild Evrópu í handbolta. Fór það svo að gestirnir unnu með tveggja marka mun og var það ekki síst frábærri frammistöðu Hauks Þrastarsonar að þakka.
„Við erum svekkt yfir þessu en skiljum ákvörðunina,“ segir Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands. Bikarkeppnunum í handbolta og körfubolta hefur verið úthýst úr Laugardalshöll.
Arnar Pétursson, þjálfari A-landsliðs kvenna í handbolta, hefur valið sextán leikmenn í landsliðshóp fyrir æfingamót í Tékklandi síðar í þessum mánuði.
Bjarki Már Elísson hefur farið vel af stað á nýju tímabili með Veszprém í ungversku úrvalsdeildinni í handbolta. Hann varð markahæstur í 26-38 sigri gegn Balatonfured í dag.
Gummersbach tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu í dag þegar liðið lá á heimavelli á móti Lemgo.
Þýskalandsmeistarar SC Magdeburg eru með fullt hús eftir fyrstu tvær umferðirnar eftir öruggan sigur í þýsku bundesligunni i handbolta í dag.
„Mér fannst frammistaðan frábær. Auðvitað er alltaf eitthvað sem þú getur rýnt í og allt það en mér fannst við heilt yfir frábærar,“ sagði Rakel Dögg Bragadóttir, þjálfari Fram, eftir eins marks sigur sinna kvenna á liði Hauka. Lokatölur 27-26 í Lambhagahöllinni.
Fram vann eins marks sigur á Haukum í 2. umferð Olís-deildar kvenna. Lokatölur 27-26 í leik þar sem allt var í járnum.
Stjarnan vann sinn fyrsta sigur í Olís deild kvenna í handbolta í dag og Fram lék það síðan eftir í Olís deild karla.
Selfysski handboltamaðurinn Haukur Þrastarson er byrjaður að láta til sína taka með sínu nýja liði. Hann flutti sig frá Póllandi til Rúmeníu í sumar og spilar með Dinamo Búkarest í vetur.
ÍBV lagði Stjörnuna með tveggja marka mun í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, lokatölur 33-31.
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, telur að sitt lið þurfi að bæta ýmis atriði eftir tap á móti Aftureldingu í 2. umferð Olís-deildar karla í handbolta. Valsmenn töpuðu með þremur mörkum á heimavelli í kvöld.
Íslands- og bikarmeistarar Vals unnu þægilegan sigur á ÍBV í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld, lokatölur 16-26. Grótta fór þá í góða ferð á Selfoss.
Alls skoruðu fimm Íslendingar 17 mörk í leikjum kvöldsins í sænsku efstu deild karla í handbolta.
Valur og Afturelding áttust við í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Bæði lið voru án sigurs eftir fyrstu umferðina og voru það Mosfellingar sem sigruðu á Hlíðarenda í kvöld. Eftir jafnan leik endaði leikurinn 34-31 fyrir gestunum.
Þórir Hergeirsson, landsliðsþjálfari hins sigursæla norska kvennalandsliðs í handbolta, lætur af störfum undir lok þessa árs eftir komandi Evrópumót. Greint er frá starfslokum Þóris með góðum fyrirvera og þegar enn er hægt að bæta medalíum við í safnið. Íslendingurinn er ekki hræddur um að það fari öfugt í leikmenn liðsins. Í versta falli fari allt til fjandans. En svo komi nýr dagur.
Haukar unnu öruggan átta marka sigur á KA á Akureyri nú í kvöld í annarri umferð Olís deildar karla í handbolta, lokatölur 26-34. Skarphéðinn Ívar Einarsson skipti yfir til Hauka frá uppeldisfélagi sínu KA í sumar og átti frábæran leik í kvöld og skoraði 8 mörk úr 12 skotum.
HK og Grótta unnu góða sigra í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. HK gerði sér lítið fyrir og lagði Íslandsmeistara FH á meðan Grótta vann ÍR á útivelli.
Haukar unnu öruggan átta marka sigur á KA norðan heiða í kvöld í annarri umferð Olís deildar karla í handbolta. Lokatölur 26-34 og sigurinn í raun aldrei í hættu.
Haukur Þrastarson var allt í öllu þegar Dinamo Búkarest pakkaði Fredericia saman í Meistaradeild Evrópu karla í handbolta. Þá hafði Janus Daði Smárason betur gegn Ómari Inga Magnússyni og Gísla Þorgeiri Kristjánssyni.
Guðmundur Bragi Ástþórsson gerði gæfumuninn þegar Bjerringbro-Silkeborg lagði Skanderborg með þremur mörkum í efstu deild karla í handbolta í Danmörku.
Elín Rósa Magnúsdóttir verður áfram í herbúðum Íslandsmeistara Vals í handboltanum sem eru gleðifréttir fyrir Hlíðarendafélagið.
Sporting frá Portúgal lagði Wisla Plock frá Póllandi í 1. umferð Meistaradeildar karla í handbolta. Orri Freyr Þorkelsson spilar með Sporting á meðan markvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson gekk í raðir Wisla í sumar.
Birkir Fannar Bragason hefur samið við FH um að leika með liðinu í Olís-deild karla út yfirstandandi keppnistímabil.
Íslendingarnir í Kolstad og liðsfélagar þeirra áttu fínan leik gegn ógnarsterku liði Barcelona í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. Á endanum máttu þeir þó játa sig sigraða, lokatölur í Noregi 30-35.
Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta, tilkynnti í gær nýjasta landsliðshóp sinn og þar vakti athygli að enginn leikmaður sem vann gullið á Ólympíuleikunum í París er í hópnum.
Eftir miklar vangaveltur hefur Þórir Hergeirsson, þjálfari hins sigursæla norska kvennalandsliðs í handbolta, ákveðið að hætta þjálfun liðsins eftir komandi Evrópumót í lok þessa árs. Þórir segir ákvörðunina erfiða en hann lítur stoltur yfir farinn veg.
Norska handboltakonan Camilla Herrem þekkir það betur en flestir að spila undir stjórn Þóris Hergeirssonar með norska handboltalandsliðinu og hún hrósar íslenska þjálfaranum mikið.
Færeyski landsliðsmaðurinn Sveinur Ólafsson, leikmaður Aftureldingar, er ekki enn kominn með leikheimild í Olís-deild karla í handbolta þar sem Mosfellingar eiga eftir að greiða uppeldisbætur til Færeyja fyrir leikmanninn.