

Handbolti
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.

Tómas um Þóri: „Það var enginn að horfa fram hjá honum“
Tómas Þór Þórðarson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna, segir að ekki sé útilokað að kjörið um íþróttamann, þjálfara og lið ársins taki breytingum á næstu árum.

PSG tók bronsið
PSG náði bronsinu í Meistaradeild Evrópu í handbolta tímabilið 2019/2020 eftir fimm marka sigur á Veszprém, 31-26, í leiknum um þriðja sætið.

Sjáðu áramótabombur Arons gegn PSG
Aron Pálmarsson átti stórleik þegar Barcelona tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu með sigri á Paris Saint-Germain, 37-32, í Köln í gær.

Aron einstakur í sögu Final4 í Meistaradeildinni í handbolta
Íslenski handboltamaðurinn Aron Pálmarsson setti nýtt met í gær þegar hann hjálpaði spænska liðinu Barcelona að tryggja sér sæti í úrslitaleiknum í Meistaradeildinni.

Ekberg skaut Kiel í úrslitin eftir framlengingu
Kiel er komið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir framlengdan undanúrslitaleik gegn Telekom Veszprém í Köln í kvöld. Lokatölur urðu 36-35, þýska liðinu í vil, eftir að staðan var 29-29 eftir venjulegan leiktíma.

Aron frábær og Barcelona í úrslit Meistaradeildarinnar
Aron Pálmarsson átti frábæran leik er Barcelona komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar með öruggum sigri á PSG, 37-32.

Arnór Þór áfram í herbúðum Bergischer
Arnór Þór Gunnarsson, hægri hornamaður íslenska landsliðsins sem og þýska úrvalsdeildarliðsins Bergischer, hefur framlengt samning sinn við þýska liðið.

Aron verður með Barcelona í dag
Aron Pálmarsson er í leikmannahópi Barcelona sem mætir Paris Saint-Germain í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í Köln í dag.

Selfoss eina liðið sem kom til greina á Íslandi
Handboltamaðurinn Ragnar Jóhannsson segir að það hafi ekkert endilega verið á stefnuskránni að koma heim en fyrst það hafi gerst hafi ekkert annað íslenskt lið en Selfoss komið til greina.

Ragnar heim á Selfoss
Ragnar Jóhannsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Selfoss. Hann kemur til Íslandsmeistaranna frá þýska úrvalsdeildarliðinu Bergischer.

Aron gæti misst af HM í handbolta
Aron Pálmarsson er meiddur á hné og næstu dagar munu skera úr um það hvort hann verði leikfær fyrir leikina gegn Portúgal sem og þegar HM í handbolta fer fram í Egyptalandi.

Stórsigur hjá Alexander og Ými en Bjarki tapaði
Rhein-Neckar Löwen vann 15 marka sigur á Coburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 39-24. Þá tapaði Lemgo með sex marka mun gegn Füchse Berlin, lokatölur þar 29-23.

Aðeins Gensheimer betri en Guðjón Valur undanfarinn áratug
Nú þegar annar áratugur 21. aldarinnar er að renna sitt skeið þá er mikið um kosningar. Í einni slíkri var Guðjón Valur Sigurðsson í 2. sæti sem bestri vintri hornamaður áratugarsins.

Ómar Ingi frábær í sigri Magdeburg
Ómar Ingi Magnússon átti frábæran leik í átta marka sigri Magdeburg á Hannover-Burgdorf í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, lokatölur 33-25.

Ólafur Andrés sá þriðji besti í Svíþjóð
Landsliðsmaðurinn Ólafur Andrés Guðmundsson var þriðji í kosningu yfir besta leikmann sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Aftonbladet stóð fyrir kosningu og birti í dag lista yfir bestu leikmenn deildarinnar.

Teitur með fimm mörk í svekkjandi tapi
Teitur Örn Einarsson átti fínan leik og skoraði fimm mörk í 27-25 tapi Kristianstad fyrir Savehof í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Íslendingaliðin töpuðu stórt | Stórleikur Bjarka dugði ekki
Íslendingalið Lemgo og Rhein-Neckar Löwen máttu þola stór töp í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Löwen tapaði 32-23 á útivelli gegn Kiel á meðan Lemgo tapaði gegn Hannover-Burgdorf 31-23, einnig á útivelli.

„Maður spyr sig af hverju í fjandanum maður sé að þessu“
Þótt Þórir Hergeirsson, þjálfari Evrópumeistara Noregs, sé venjulega yfirvegunin uppmáluð á hliðarlínunni segist hann finna fyrir stressi, eins og í úrslitaleik EM gegn Frakklandi á sunnudaginn.

Viktor Gísli og félagar enn á toppnum
GOG heldur toppsæti dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir nauman tveggja marka sigur á Ringsted, 33-31. Á sama tíma vann Álaborg öruggan sex marka sigur á Sveini Jóhannssyni og félögum í SönderjyskE.

Steinunn og Aron handboltafólk ársins 2020
Stjórn Handknattleikssambands Íslands hefur valið Steinunni Björnsdóttur og Aron Pálmarsson handknattleiksfólk ársins 2020. Þetta er í fimmta sinn sem Aron hlýtur þessa nafnbót en í fyrsta sinn sem Steinunn fær hana.

Þórir segir Noru Mørk einstaka keppniskonu og efni í góðan þjálfara
Þórir Hergeirsson segir að innkoma Noru Mørk í norska handboltalandsliðið á EM 2020 hafi skipt sköpum. Hann segir hana mikla keppnismanneskju sem gæti náð langt sem þjálfari þegar hún leggur skóna á hilluna.

Forsetinn óskaði Þóri til hamingju og bað Maríu um að koma kveðjunni áleiðis
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, óskaði í gær Þóri Hergeirssyni, þjálfara norska kvennalandsliðsins í handbolta, til hamingju með gullið á EM.

Ein af stjörnum norska liðsins grét eftir að gullið var í höfn
Camilla Herrem hefur verið í öllum meistaraliðum Þóris Hergeirssonar og fór á kostum á Evrópumótinu í ár. Viðbrögð hennar í verðlaunaafhendingunni vöktu athygli.

Þrjár af sjö í úrvalsliði EM úr liði Þóris | Myndband
Þrír leikmenn Evrópumeistara Noregs voru valdar í lið mótsins. Það þýðir að þrjár af þeim sjö sem skipa lið mótsins koma úr liði Þóris Hergeirssonar.

Ólafur Andrés með stórleik í sigri | Góður leikur Daníels dugði ekki til
Íslendingalið Kristianstad vann fjögurra marka sigur á Alingsås í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld, 31-27. Þá tapaði Eskilstuna Guif fyrir Redbergslids, lokatölur þar einnig 31-27.

Þórir segir sigur á stórmóti vera „toppinn á kransakökunni“
Vísir heyrði hljóðið í Þóri Hergeirssyni, þjálfara kvennaliðs Noregs í handbolta en hann gerði liðið að Evrópumeisturum á dögunum.

Allt annað en sáttur með dómarana: Eins og að spila á Balkanskaganum fyrir tuttugu árum
Jesper Jensen, þjálfari danska kvennalandsliðsins í handbolta, var ekki hrifinn af dómgæslunni er Króatía vann sigur á Danmörku, 25-19, í leiknum um þriðja sætið á EM.

Enginn frá Kiel í HM-hópnum sem Alfreð valdi
Alfreð Gíslason hefur valið tuttugu manna hóp þýska handboltalandsliðsins fyrir HM í Egyptalandi í næsta mánuði.

Þórir kominn fram úr hinni sigursælu Marit Breivik
Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson skilaði í gær sjöundu gullverðlaunum í hús hjá norska kvennalandsliðinu í handbolta eftir sigur norsku stelpnanna í úrslitaleik á móti Frakklandi.

„Þú kemur alltaf heim sem kóngur í mínum augum en núna kemur þú heim sem kóngur með stóru K-i“
María Þórisdóttir, leikmaður Chelsea á Englandi og norska landsliðsins í fótbolta, var eðlilega í skýjunum eftir sigur norska kvennalandsliðsins á EM í handbolta í gær.