
HM í dag: Geggjaði leikurinn hjá Íslandi verður gegn Svíum í kvöld
Ísland og Svíþjóð mætast í öðrum leik þjóðanna í milliriðlinum á HM í handbolta í kvöld. Ísland þarf á sigri að halda ætli liðið sér í 8-liða úrslitin.
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.
Ísland og Svíþjóð mætast í öðrum leik þjóðanna í milliriðlinum á HM í handbolta í kvöld. Ísland þarf á sigri að halda ætli liðið sér í 8-liða úrslitin.
„Ég er ferskur, góður og spenntur fyrir leiknum,“ segir Aron Pálmarsson landsliðsfyrirliði en hann þarf að leiða sína menn til sigurs í kvöld.
Fjórir íslenskir handboltamenn eru á lista norsks sérfræðings yfir fimmtíu bestu handboltamenn heimsins í dag. Enginn þeirra þykir þó meðal þriggja bestu í heimi.
„Jú, hann er bara mjög stressaður þegar ég er að taka þessi skot,“ segir Elliði Snær Viðarsson, landsliðsmaður í handbolta, um frægu miðju skotin hans þegar línumaðurinn skorar í autt markið.
„Ég veit ekki alveg hvort ég sé búinn að slá í gegn en við erum allavega mætt á HM að styðja íslenska landsliðið, það er ekkert annað hægt að gera,“ segir Karl Brynjólfsson sem hefur slegið í gegn í stúkunni með einstökum danssporum á leikjum íslenska liðsins.
„Mér líður vel,“ sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari í aðdraganda stórleiksins gegn Svíum þar sem allt er undir hjá íslenska liðinu.
Bandaríski handboltamaðurinn Paul Skorupa er á leið í bann eftir að hafa bitið Husain Al-Sayyad í leik Bandaríkjanna og Barein í dag.
Ljósmyndarar sem staddir eru í Svíþjóð að taka myndir af heimsmeistaramótinu í handbolta hafa margir hverjir lent í því að dýrum búnaði þeirra sé stolið úr bílum þeirra á meðan að mótinu stendur.
Seinustu tveim leikjum kvöldsins á heimsmeistaramótinu í handbolta er nú lokið. Króatía og Danmörk gerðu 32-32 jafntefli og á sama tíma unnu Norðmenn góðan þriggja marka sigur gegn Serbíu, 31-28.
Sterkar tilfinningar HM-mannsins svokallaða yfir leikjum á stórmótum hafa vakið mikla athygli og kátínu landsmanna. Hann er nú staddur í Gautaborg og segir hvern einasta Íslending hljóta að skilja hitann.
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska landsliðinu í handbolta unnu afar öruggan tuttugu marka sigur er liðið mætti Argentínu í milliriðli þrjú á heimsmeistaramótinu í handbolta í kvöld, 39-19.
Aron Kristjánsson stýrði Barein til sigurs á Bandaríkjunum, 27-32, í fyrsta leik liðsins í milliriðli 4 á HM í handbolta karla í dag.
Strákarnir okkar mættu á æfingu í Scandinavium höllina í dag og var það síðasta æfingin hjá liðinu fyrir leik tvö í milliriðlinum.
Spánverjar þurftu að gera breytingu á liði sínu á heimsmeistaramótinu í handbolta og kalla út mann. Sá sem fékk kallið var hins vegar í skemmtiferð með konunni í Englandi.
Ástæðan fyrir því að Ágúst Eli Björgvinsson er mættur til Gautaborgar er sú að Björgvin Páll Gústavsson er tæpur.
Strákarnir okkar fá liðsstyrk í dag því ákveðið hefur verið að kalla á markvörðinn Ágúst Elí Björgvinsson.
Íslenska handboltalandsliðið er í sérflokki á þessu heimsmeistaramóti þegar kemur að því að skora í tómt mark andstæðinganna.
Íslenski landsliðsmaðurinn Elliði Snær Viðarsson hefur slegið í gegn á heimsmeistaramótinu í handbolta og ekki bara fyrir baráttu, kraft og dugnað.
Strákarnir okkar völtuðu yfir Grænhöfðaeyjar í gær og hausinn er nú kominn á úrslitaleikinn gegn Svíum á morgun.
Strákarnir okkar þurfa að öllum líkindum á sigri eða að minnsta kosti jafntefli að halda gegn Svíþjóð á morgun til að komast í 8-liða úrslit á HM í handbolta. Tapi liðið mun það sennilega þurfa að treysta á önnur úrslit en það mun skýrast betur fyrir leikinn.
Strákarnir okkar brostu mikið í Gautaborg í gær eins og sjá má í myndasyrpu úr smiðju Vilhelms Gunnarssonar. Hann var að sjálfsögðu á staðnum þegar Ísland vann öruggan sigur gegn Grænhöfðaeyjum á HM í handbolta.
Sigfús Sigurðsson, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í handbolta, telur að leikmenn íslenska landsliðsins eigi að láta í sér heyra ef þeir eru ósáttir með hvernig varnarleikur liðsins er settur upp.
„Mjög gaman auðvitað, maður vill spila. Svo verður maður að reyna vera klár þegar sénsinn kemur,“ sagði Elvar Ásgeirsson eftir tíu marka sigur Íslands á Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik milliriðils á HM í handbolta.
Íslenska liðið gaf tóninn í byrjum leiks og komst fljótlega 4-1 yfir. Leikmenn Grænhöfðaeyja voru ekki alveg í takt og réðu illa við hraðann í leiknum. Þeir höfðu aðeins gert eitt mark eftir sjö mínútur.
Svíþjóð lenti ekki í teljandi vandræðum með lið Ungverjalands í fyrsta leik liðanna í milliriðli á HM í handbolta, lokatölur 37-28 Svíum í vil. Ísland mætir Svíþjóð í Gautaborg á föstudaginn í leik sem Ísland verður í raun að vinna.
Landsliðsmarkvörðurinn Elín Jóna Þorsteinsdóttir átti góðan leik í marki Ringköbing í dönsku úrvalsdeildinni í handbolt aí kvöld. Það dugði þó ekki að þessu sinni.
Ísland vann tíu marka sigur á Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik liðanna í milliriðli á HM í handbolta, lokatölur 40-30 Íslandi í vil. Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, rúllaði vel á liði sínu í dag og fengu allir leikmenn liðsins mínútur. Það má þó segja að leikmenn Grænhöfðaeyja hafi stolið senunni á Twitter.
„Við unnum og ég spilaði mikið, það er fínt,“ sagði Janus Daði Smárason eftir tíu marka sigur Íslands á Grænhöfðaeyjum í milliriðli á HM í handbolta.
Íslenska handboltalandsliðið vann tíu marka stórsigur á Grænhöfðaeyjum, 40-30, í fyrsta leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í handbolta í Svíþjóð og Póllandi.
„Ég vil segja það,“ sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari er hann var spurður hvort frammistaða Íslands í sigrinum gegn Grænhöfðaeyjum í kvöld hefði ekki verið fagmannleg.