Handbolti

Skýrsla Henrys: Á fyrsta far­rými til Kölnar í boði lafði lukku og Svart­fellinga

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vonbrigðin leyndu sér ekki í andlitum strákanna eftir leik í kvöld.
Vonbrigðin leyndu sér ekki í andlitum strákanna eftir leik í kvöld. vísir/vilhelm

Þetta átti að vera gleðipistill fyrir nokkrum tímum síðan. Eftir þessa niðurlægingu í leiknum gegn Ungverjum er ekki hægt að vera jákvæður. Þetta var algjört þrot og liðið virðist ekki eiga neitt erindi í milliriðilinn.

Er ég vaknaði í morgun var ég ekki bjartsýnn á jákvæð úrslit í kvöld. Það vaknaði þó vonarneisti er Svartfellingar gerðu liðinu stóran greiða með því að skjóta íslenska liðinu áfram.

Þá var búið að létta ákveðinni pressu og þetta varð allt í einu fyrsti leikur í milliriðli. Ok, fjötrunum létt og strákarnir fara að spila æðislegan handbolta hugsaði ég. Ég hefði ekki getað haft meira rangt fyrir mér.

Fyrri hálfleikur var slakur en seinni hálfleikurinn var helmingi verri. Það stóð ekki steinn yfir steini. Markvarslan engin, dauðafæri fóru sem fyrr forgörðum, tapaðir boltar og kæruleysi. Menn stóðu bara með skófluna í hendinni og héldu áfram að moka sína holu.

Það er með ólíkindum að horfa upp á heimsklassaleikmenn líta út eins og algjörir miðlungsmenn leik eftir leik. Það er eins og þeir séu þrúgaðir af spennu sem þeir kunna ekki að vinna á. Lítt reynt þjálfarateymið virðist svo ekki eiga neinar lausnir á því hvernig eigi að trekkja liðið í gang.

Þegar upp er staðið er ljóst að íslenska liðið má telja sig drulluheppið að fara áfram. Þeir ferðast á fyrsta farrými til Kölnar í boði lafði lukku og Svartfellinga. Ef lukkudísirnar hefðu ekki verið með strákunum í liði hefði það tapað öllum leikjunum og farið heim með öngulinn í rassinum. Það er ótrúlegt hvað féll mikið með liðinu í fyrstu tveimur leikjunum en þeir gátu ekki nýtt sér það.

Strákarnir fá fjóra leiki í viðbót til þess að sanna hvað þeir séu góðir. Það er aftur á móti afar erfitt að vera bjartsýnn á framhaldið eftir þessa hauskúpuframmistöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×