
Keppa með símann í bílnum og "tvíta" þegar 40 hringir eru eftir
Þeir virðast alveg vera með þetta ökumennirnir í NASCAR mótaröðinni í Bandaríkjunum því þeir tvíta í miðjum kappakstri eins og ekkert sé eðlilegra.
Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.
Þeir virðast alveg vera með þetta ökumennirnir í NASCAR mótaröðinni í Bandaríkjunum því þeir tvíta í miðjum kappakstri eins og ekkert sé eðlilegra.
Matt Kenseth sem ekur fyrir Roush Fenway sigraði Daytona 500 kappaksturinn, fyrsta mót ársins í NASCAR í Bandaríkjunum. Daytona 500 er stærsti götubílakappakstur ársins í Bandaríkjunum.
Marussia liðið fær ekki að æfa í síðustu í æfingalotu Formúlu 1 liða sem fram fer í Barcelona í lok vikunnar. Nýji bíllinn stóðst ekki árekstursprófanir FIA og er því ólöglegur.
Alain Prost, fjórfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 og fyrrum ökumaður Williams liðsins, segir sitt gamla lið vera í mjög miklum vandræðum með að fjármagna sig.
Mark Webber, ástralski ökumaður Red Bull, segist ekki leiða hugann að öllum keppnautum sínum sem vilja sæti hans fyrir árið 2013.
Jenson Button, ökumaður McLaren liðsins telur að Sebastian Vettel muni ekki hafa eins mikla yfirburði og hann hafði í fyrra.
Nico Hulkenberg, þýski ökumaður Force India liðsins, var fljótastur þegar æfingum lauk í Barcelona í dag. Tímann setti hann fyrir hádegi og reyndi enginn að taka fyrsta sætið af honum síðdegis.
Ross Brawn liðstjóri Mercedes liðsins í Formúlu 1 segir það vera draum sinn að Michael Schumacher standi aftur á efsta þrepi verðlaunapallsins í mótum ársins. Brawn stýrði líka Ferrari í sigurtíð Schumachers þar.
Heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull var fljótastur allra á æfingum í Barcelona í dag. Alls tóku ellevu lið þátt á þessum fyrsta degi æfinga í Barcelona.
Ökumenn Red Bull liðsins í Formúlu 1 munu hafa jafna stöðu í mótum ársins. Þetta sagði Dietrich Matesichitz eigandi Red Bull.
Þó að þau hafi hætt saman í nóvember eru Lewis Hamilton (27) og söngkonan Nicole Scherzinger (33) enn góðir vinir. Hamilton tilkynnti á Twitter fyrir helgi að hann væri á tónleikum Nicole í Dublin að hún hefði verið frábær.
Adrian Newey, aðalhönnuður Red Bull liðsins hefur enn á ný fundið "snjalla" lausn á nýjum reglum um útblásturskerfi bílsins. Nýlega voru "blásnir loftdreifar" bannaðir en þar lágu helstu yfirburðir Red Bull bílsins síðustu ár.
Formúlu 1 goðsögnin Sterling Moss segir heimsmeistarann Sebastian Vettel vera jafnoka Juan Manuel Fangio í nútímanum.
Heimsmeistarinn sjöfaldi Michael Schumacher kostar Mercedes liðið um 95.000.000 króna á mánuði. Þetta lét framkvæmdastjóri Daimler bílaframleiðandans hafa eftir sér. Daimler á Mercedes-Benz verksmiðjurnar sem reka kappaksturslið AMG Mercedes.
Rússneski ökuþórinn Vitaly Petrov sem var á mála hjá Renault liðinu á síðasta tímabili hefur nú gengið til liðs við Caterham og mun aka þar í ár í stað Jarno Trulli sem ekið hefur fyrir liðið frá því það kom fyrst til sögunnar árið 2010.
Liðsfélagi Michael Schumacher hjá Mercedes liðinu, þjóðverjinn Nico Rosberg, segir sjöfalda heimsmeistarann ekki hræða sig. Schumacher hefur þriðja ár endurkomu sinnar í Formúlu 1 í ár.
Keppnisliðin í Formúlu 1 luku fyrstu æfingalotu sinni á Jerez brautinni á Spáni í síðustu viku. Niðustöður æfingana gefa til kynna að tímabilið í ár verður spennandi og telja sérfræðingar fimm lið eiga möguleika á að keppast um titilinn.
Mikil umræða hefur skapast um nýstárlega hönnun F1 bílanna í ár. Ljótur framendi, of mjó dekk og of lítill afturvængur er það sem stingur sérfræðinga sérstaklega í augun.
Bíll HRT liðsins í Formúlu 1 stóðst ekki árekstrarprófanir FIA og fær því ekki keppnisleyfi að svo stöddu. Nýr HRT bíll verður ekki frumsýndur fyrr en liðið hefur bætt úr þessu. HRT æfir því ekki á nýjum bíl fyrr en í byrjun mars, á síðustu æfingalotunni af þremur í ár.
Fernando Alonso, Spánverjinn knái hjá Ferrari, átti besta tíma dagsins á síðasta æfingadegi Formúlu 1 liða á Jerez-brautinni á Spáni. Tími Alonso er næst besti hringtími settur á Jerez brautinni á 2012-bíl. Það var kalt á Spáni í dag og hafði það veruleg áhrif á æfingar liðanna.
Tæknistjóri Ferrari liðsins, Pat Fry, sagðist ekki vera ánægður með stöðu Ferrari liðsins það sem af er. "Ég er ekki ánægður með hvar við stöndum í augnablikinu," sagði hann. "Það eru margir fletir sem þarf að endurskoða. Bíllinn virkar ágætlega sumstaðar en það á ekki við um allar aðstæður."
Nico Rosberg á Mercedes bíl síðasta árs var fljótastur á þriðja degi æfinga á Jerez-brautinni á Spáni í dag. Rosberg er liðsfélagi Michaels Schumachers sem ekkert fékk að aka í dag eftir að hafa verið fljótastur í gær á sama bíl.
Skoski ökuþórinn Paul di Resta hjá Force India liðinu sagði í viðtali á Spáni í dag að nýju bílarnir væru betri en þeir í fyrra þrátt fyrir strangari reglur. Æfingatímabil F1 liða stendur nú yfir. Vænta má betri hringtíma í mótum ársins að mati di Resta.
Michael Schumacher, á 2011 árgerð Mercedes bílsins, var fljótastur á æfingum F1 liða á Jerez brautinni á Spáni í morgun. Æfingatímabil keppnisliða hófst í gær þegar Kimi Raikkönen var fljótastur á 2012 árgerð Lotus liðsins. Kimi varð síðan fimmti á æfingum dagsins.
Rubens Barrichello hefur á undanförnum dögum tekið þátt í æfingaakstri hjá KV Racing Technology sem staðsett er í Bandaríkjunum. Svo gæti farið að hinn 39 ára gamli Brasilíumaður keppi í Indy kappakstrinum en Barrichello hefur keppt í 19 ár sem Formúlu 1 ökumaður.
Breski formúluökumaðurinn Lewis Hamilton ætlar að flytjast búferlum frá Sviss til Mónakó en Lewis hefur búið í Sviss frá árinu 2007. Hamilton bjó fyrstu þrjú árin í Genf en hann hefur búið í Zürich undanfarin misseri. Samkvæmt breskum fjölmiðlum er Hamilton frekar leiður á rólegheitunum í Sviss.
Formúli 1 ökuþórinn Lewis Hamilton hefur nú stigið fram í sviðsljósið og viðurkennt að hann hafi misst einbeitinguna bæði innan sem og utan brautarinnar árið 2011.
Ökuþórinn og Formúlu 1-kappinn Lewis Hamilton er í enskum fjölmiðlum í dag sagður hafa varið frítíma sínum í að taka upp frumsamin lög í hljóðveri í Englandi.