

Formúla 1
Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.

Schumacher vill kveðja Formúluna á góðum nótum
Heimsmeistarinn sjöfaldi og Mercedes-ökuþórinn Michael Schumacher mun segja skilið við Formúlu 1 í annað sinn á ferlinum eftir brasilíska kappaksturinn um næstu helgi. Hann segir þetta verða hans síðastu kveðjustund.

Kóreski kappaksturinn skilaði 3,8 milljarða tapi í ár
Mótshaldarar Formúlu 1-kappakstursins í Kóreu hafa nú tilkynnt yfir 3,8 milljarða íslenskra króna tap af kappakstrinum þriðja árið í röð. Óvíst er að kappaksturinn haldi plássi sínu á dagatali Formúlunnar.

Danica Patrick að skilja
Kappaksturskonan Danica Patrick er komin aftur á markaðinn en hún er að skilja við Paul Hospenthal eftir sjö ára hjónaband. Hún tilkynnti um skilnaðinn á Facebook.

Ferrari getur ekki einbeitt sér að Vettel
Stefano Domenicali, liðstjóri Ferrari-liðsins í Formúlu 1, segir liðið ætla að einbeita sér að því að standa sig sem best. Liðið má ekki við því að athuga hvað Red Bull-liðið ætlar að gera. Brasilíski kappaksturinn um næstu helgi mun skera úr um heimsmeistaratitil ökuþóra.

Raikkönen vill ekki mæta á lokahóf Formúlunnar
Lotus-liðið í Formúlu 1 er staðráðið í að sækja þriðja sætið í titilbaráttu ökuþóra þrátt fyrir að Kimi Raikkönen hafi sagst ekki vilja mæta á lokahófið þar sem verðlaununum er útdeilt í lok ársins. Kimi er sem stendur í þriðja sætinu.

Hamilton frábær í Bandaríkjunum
Lewis Hamilton ók frábærlega í bandaríska kappakstrinum í gær þegar hann kom í mark á undan Sebastian Vettel. Fernando Alonso stóð á verðlaunapallinum með þeim en þetta var í fyrsta sinn sem þessir þrír ökuþórar deildu verðlaunapallinum.

Við endamarkið: Lewis Hamilton vann sigur í Bandaríkjunum
Halldóra Matthíasdóttir og Rúnar Jónsson fóru yfir frábæran sigur Lewis Hamilton á McLaren í Formúlu 1 kappakstrinum í Austin í Bandaríkjunum í dag.

Hamilton vann í Bandaríkjunum
Lewis Hamilton, ökuþór McLaren-liðsins í Formúlu 1, vann frábæran bandarískan kappakstur nú rétt í þessu. Hann ræsti annar og háði meistaralega baráttu við Sebastian Vettel um fyrsta sætið. Vettel varð annar.

Massa fær fimm sæta refsingu á ráslínu
Felipe Massa, ökuþór Ferrari í Formúlu 1, fær fimm sæta refsingu á ráslínunni fyrir bandaríska kappaksturinn sem hefst nú eftir tæpan klukkutíma. Alonso færist því úr áttunda sæti í það sjöunda og yfir á hreinni hluta brautarinnar.

Webber sleppur með áminningu fyrir kappaksturinn
Dómarar í bandaríska kappakstrinum hafa ákveðið að áminna Mark Webber, ökumann Red Bull í Formúlu, fyrir að missa af vigtun eftir fyrstu lotu tímatökunnar í gær.

Vettel á ráspól í sínum hundraðasta kappakstri
Heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull ræsir fremstur í bandaríska kappakstrinum á morgun. Hann átti besta tíma í öllum tímatökulotunum. Lewis Hamilton ræsir annar. Fernando Alonso, helsti keppinautur Vettel, ræsir aðeins áttundi.

Blaðamannafundur Formúlunnar í beinni á Vísi
Vísir mun sýna beint frá blaðamannafundi Formúlu 1 kappakstursins sem hefst nú klukkan 19.00. Það er því miður ekki hægt að sýna frá honum á Stöð 2 Sport en Formúluaðdáendur geta séð hann á Vísi í staðinn.

Vettel fullkomnaði þrennuna á æfingum í Bandaríkjunum
Sebastian Vettel var fljótastur í öllum þremur æfingunum fyrir bandaríska kappaksturinn sem fram fer á morgun. Keppt er á nýrri braut Austin í Texas og hefur hún komið öllum ökumönnum á óvart.

Vettel fljótastur á fyrsta degi í Bandaríkjunum
Heimsmeistarinn Sebastian Vettel var fljótastur á fyrstu æfingum um nýju kappakstursbrautina í Bandaríkjunum í dag. Hann setti besta tímann á síðustu ferð sinni yfir rásmarkið, heilli sekúndu á eftir Lewis Hamilton á McLaren.

Villeneuve: Vettel er enn barn
Sebastian Vettel á enn eftir að þroskast sem Formúla 1 bílstjóri, ef eitthvað er að marka orð Jacques Villeneuve, fyrrum heimsmeistara í Formúlu 1. Villeneuve segir Vettel hegða sér eins og barn.

Vettel segir Alonso eiga titilinn jafn mikið skilið
Heimsmeistarinn Sebastian Vettel, sem ekur fyrir Red Bull í Formúlu 1, segir keppinaut sinn, Fernando Alonso hjá Ferrari, eiga titilinn jafn mikið skilið og hann sjálfur. Báðir hafa ekið frábærlega í ár þó segja megi að Alonso hafi sýnt meiri áræðni.

McLaren: Áhætta að ráða Perez
Martin Whitmarsh, liðsstjóri McLaren-liðsins í Formúlu 1, viðurkennir að í því felist áhætta að ráða hinn unga Sergio Perez til að aka öðrum McLaren-bílnum á næsta ári í stað Lewis Hamilton.

Newey óhræddur um borð í eigin bílum
Adrian Newey, aðalhönnuður Red Bull-liðsins, ók sínum frægu kappakstursbílum í fyrsta sinn á dögunum undir dyggri handleiðslu David Coulthard, sem á sínum tíma ók fyrir Williams, McLaren og Red Bull í Formúlu 1.

Raikkönen þarf frelsi til að blómstra
Kimi Raikkönen þarf að hafa svigrúm til að einbeita sér að akstrinum, segir Eric Boullier, liðstjóri Lotus-liðsins í Formúlu1. Með því að skapa það umhverfi umhverfis Finnan fljúgandi vann Lotus-Renault sinn fyrsta sigur í Formúlu 1.

Hamilton: Vettel er heppnasti ökuþórinn í Formúlu 1
Christian Horner, liðstjóri Red Bull-liðsins í Formúlu 1, var ánægður með Sebastian Vettel, ökumann liðsins, í kappakstrinum í Abu Dhabi í gær. Vettel lauk mótinu í þriðja sæti eftir að hafa ræst aftastur.

Við endamarkið: Kimi Raikkönen hafði sigur í Abu Dhabi
Halldóra Matthíasdóttir og Rúnar Jónsson fóru yfir frábæran sigur Kimi Raikkönen í Abu Dhabi kappakstrinum. Fernando Alonso náði öðru sæti og minnkaði forystu Sebastian Vettel á toppnum í tíu stig.

Alonso minnkaði forskot Vettels í tíu stig
Lotus-ökuþórinn Kimi Raikkönen vann kappaksturinn í Abu Dhabi í dag. Þetta er fyrsti sigur Raikkönen síðan hann snéri aftur í Formúlu 1 í ár. Vettel ræsti af viðgerðarsvæðinu en endaði þriðji.

Vettel refsað og ræsir aftastur
Sebastian Vettel hefur verið færður á aftasta rástað fyrir Formúlu 1-kappaksturinn í Abu Dhabi á morgun. Vettel þurfti að stöðva bilinn áður en hann komst til baka inn á viðgerðarsvæðið.

Hamilton greip tækifærið þegar Vettel lenti í vandræðum
Lewis Hamilton ræsir af fremsta rásstað í Abu Dhabi-kappakstrinum á morgun. Hann náði besta tíma í tímatökunni í dag og var langfljótastur.

Mótið í Abu Dhabi lykillinn að titlinum
Kappaksturinn í Abu Dhabi um helgina er mjög mikilvægur fyrir framvindu heimsmeistaratitilbaráttunnar í ár. Sebastian Vettel, ökuþór Red Bull-liðsins, hefur þrettán stiga forystu á Fernando Alonso, ökuþór Ferrari-liðsins, þegar þrjú mót eru eftir af tímabilinu.

Hamilton og Vettel fljótastir í Abu Dhabi
Breski ökuþórinn Lewis Hamilton sem ekur McLaren-bíl í Formúlu 1 ók hraðast um kappakstursbrautina í Abu Dhabi á fyrstu æfingum keppnisliða þar í morgun. Kappaksturinn fer fram á sunnudag.

Toro Rosso heldur sínum ökumönnum
Þeir Daniel Ricciardo og Jean-Eric Vergne munu áfram aka fyrir Toro Rosso-liðið í Formúlu 1 á næsta ári. Þetta staðfesti liðið í gær.

Hulkenberg ekur fyrir Sauber 2013
Þýski ökuþórinn Nico Hulkenberg mun aka Sauber-bíl á næsta ári. Þetta staðfesti liðið í gær en þjóðverjinn hefur verið orðaður við Sauber síðan Sergio Perez tilkynnti að hann væri á förum.

Lotus: Raikkönen verður enn betri á næsta ári
Kimi Raikkönen, ökumaður Lotus-liðsins í Formúlu 1, mun aka áfram fyrir liðið á næsta ári. Þetta staðfesti Lotus í dag í kynningarmyndbandi.

Vettel vann í fjórða sinn í röð
Heimsmeistarinn ungi, Sebastian Vettel, sem ekur fyrir Red Bull í Formúlu 1 leiddi indverska kappaksturinn af ráspól og til enda í dag. Hann hefur nú 13 stiga forskot á Fernando Alonso um heimsmeistaratitilinn.