Formúla 1

Staða Schumacher óbreytt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Michael Schumacher er enn haldið sofandi.
Michael Schumacher er enn haldið sofandi. Nordic Photos / Getty
Umboðsmaður Michael Schumacher segir að þýski ökuþórinn sé enn í lífshættu eftir skíðaslys þrátt fyrir að annað hafi verið fullyrt í fjölmiðlum síðustu daga.

Fjölmiðlar höfðu eftir Philippe Strieff, fyrrum ökumanni í Formúlunni, að Schumacher væri ekki lengur í lífshættu eftir að hann hlaut alvarlega höfuðáverka í frönsku ölpunum fyrir rúmri viku síðan.

Sabine Kehm, umboðsmaður Schumacher, gaf út yfirlýsingu í dag þar sem ítrekað var að ástand Schumacher væri óbreytt. Það væri stöðugt en Schumacher væri enn í lífshættu.

Schumacher hefur nú verið haldið sofandi í átta daga en fyrstu dagana gekkst hann undir tvær aðgerðir. Losað var um þrýsting á heilann eftir miklar blæðingar sem hann hlaut eftir fallið.

Ekki er áætlað að læknalið sjúkrahússins þar sem Schumacher dvelur gefi frekari upplýsingar um stöðu mála á næstu dögum nema að miklar breytingar verði á ástandi hans.

Ítrekað var að aðeins væri mark takandi á upplýsingum frá sjúkrahúsinu eða teymi Schumachers.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×