Fljótasti maður heims heldur með Stoke Hlaupagarpurinn Usain Bolt, sem hefur unnið til þriggja gullverðlauna og sett þrjú heimsmet á Ólympíuleikunum í Peking, heldur með Stoke City í ensku úrvalsdeildinni. ástæðan er sú að Ricardo Fuller, einn af hans bestu vinum, leikur með liðinu. Enski boltinn 23. ágúst 2008 11:16
Ensku liðin eiga 17 af 20 leikmönnum Ensk lið eiga sautján af þeim tuttugu leikmönnum sem hafa verið tilnefndir af Knattspyrnusambandi Evrópu sem bestu leikmenn í meistaradeild og UEFA-keppninni á síðasta tímabili. Enski boltinn 23. ágúst 2008 10:32
Ronaldo verður frá fram í miðjan nóvember Cristiano Ronaldo getur ekki spilað með Manchester United fyrr um miðjan nóvember. Áðu höfðu forráðamenn ensku meistaranna búist við að kappinn yrði búinn að jafna sig á ökklameiðslum í byrjun október. Enski boltinn 23. ágúst 2008 10:06
Tiago ekki til Everton Portúgalski leikmaðurinn Tiago hefur hafnað tilboði um að gera lánssamning við enska úrvalsdeildarliðið Everton. Enski boltinn 22. ágúst 2008 23:04
Telur ólíklegt að United bæti við sig Sir Alex Ferguson viðurkennir að vera ekki bjartsýnn á að Manchester United muni bæta við sig leikmanni fyrir lokun félagaskiptagluggans. Evrópumeistararnir hafa haft hægt um sig og ekki keypt neinn leikmann í sumar. Enski boltinn 22. ágúst 2008 17:55
Santa Cruz framlengir við Blackburn Sóknarmaðurinn Roque Santa Cruz hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Blackburn. Enski boltinn 22. ágúst 2008 17:26
Robinho: Ég vil fara til Chelsea Brasilíski sóknarmaðurinn Robinho hefur gefið það út að hann vilji fara frá Real Madrid og ganga til liðs við Chelsea. Enska liðið hefur verið á eftir þessum snjalla leikmanni í allt sumar. Enski boltinn 22. ágúst 2008 13:26
Enska deildin með 17 af 25 tilnefningum Fjölmargir leikmenn í ensku úrvalsdeildinni hafa verið tilnefndir til verðlauna sem fótboltamaður ársins í Evrópu. Tilnefningarnar voru opinberaðar af UEFA í morgun. Enski boltinn 22. ágúst 2008 12:28
Chelsea fær portúgalskan miðjumann Fabio Paim hefur verið lánaður til Chelsea frá portúgalska úrvalsdeildarfélaginu Sporting Lissabon. Paim er tvítugur miðvallarleikmaður. Enski boltinn 21. ágúst 2008 23:00
David Healy til Sunderland Sunderland er að ganga frá kaupunum á sóknarmanninum David Healy frá Fulham. Roy Keane, knattspyrnustjóri Sunderland, er að tryggja sér Djibril Cisse á lánssamningi svo liðinu ætti ekki að skorta möguleika í sóknarlínuna. Enski boltinn 21. ágúst 2008 18:30
Hermann fær samkeppni frá Traore Franski vinstri bakvörðurinn Armand Traore er kominn til Portsmouth. Hann kemur á lánssamningi frá Arsenal til eins árs og mun veita Hermanni Hreiðarssyni samkeppni um stöðuna. Enski boltinn 21. ágúst 2008 17:01
Steve Davis til Rangers Norður-Írinn Steve Davis er farinn frá Fulham og hefur skrifað undir fjögurra ára samning við skoska liðið Glasgow Rangers. Þessi 23 ára miðjumaður var á lánssamningi hjá Rangers seinni hluta síðasta tímabils. Enski boltinn 21. ágúst 2008 16:45
Vincent Kompany til City Manchester City hefur komist að samkomulagi við þýska félagið Hamburg um kaupverðið á varnarmanninum Vincent Kompany. Þessi 22 ára belgíski varnarmaður á 23 landsleiki að baki. Enski boltinn 21. ágúst 2008 14:14
Útilokað að Arshavin fari til Tottenham Zenit frá Pétursborg hefur útilokað að Andrei Arshavin fari til Tottenham. Félagið segir það ljóst að viðræður við enska félagið muni ekki halda áfram þar sem það væri ekki hægt að finna leikmann í stað Arshavin. Enski boltinn 21. ágúst 2008 11:45
Barwick að hætta hjá FA Brian Barwick mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri enska knattspyrnusambandsins í lok ársins. Þessi ákvörðun var tekin eftir langar viðræður hans við stjórnarformanninn Lord Triesman um hlutverk sitt í sambandinu. Enski boltinn 21. ágúst 2008 11:24
Berbatov áritaði United treyju Breska blaðið The Sun birti í dag myndir af Dimitar Berbatov, sóknarmanni Tottenham, að árita Manchester United treyju. Leikmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við United í sumar. Enski boltinn 21. ágúst 2008 11:11
Silvestre til Arsenal Arsenal hefur gengið frá kaupum á franska landsliðsmanninum Mikael Silvestre frá Manchester United. Silvestre samdi við Arsenal til næstu tveggja ára. Enski boltinn 20. ágúst 2008 23:27
Cole bjargaði jafnteflinu Joe Cole var hetja Englendinga er hann skoraði jöfnunarmark sinna manna gegn Tékklandi í vináttulandsleik í Englandi í kvöld. Enski boltinn 20. ágúst 2008 21:08
WBA að fá spænskan miðjumann West Bromwich Albion er að fá spænska miðjumanninn Borja Valero frá Real Mallorca en kauðverðið er tæplega fimm milljónir punda. Þessi 23 ára leikmaður mun væntanlega skrifa undir fjögurra ára samning. Enski boltinn 20. ágúst 2008 15:52
Stoke að styrkja sig Stoke City er að tryggja sér vængmanninn Haminu Dramani frá Lokomotiv Moskvu. Dramani er landsliðsmaður frá Gana og mun hann koma á lánssamningi út tímabilið. Enski boltinn 20. ágúst 2008 14:12
Alan Stubbs hættur Alan Stubbs, varnarmaður Derby County, hefur neyðst til að leggja skónna á hilluna vegna alvarlegra meiðsla á hné. Enski boltinn 20. ágúst 2008 13:56
Cisse á leið til Sunderland Marseille hefur staðfest að sóknarmaðurinn Djibril Cisse sé á leið til Sunderland á lánssamningi til eins árs. Bolton hafði einnig áhuga á að fá Cisse. Enski boltinn 20. ágúst 2008 12:19
Ljóst að Chelsea fær ekki Robinho Umboðsmaður brasilíska sóknarmannsins Robinho segir ljóst að leikmaðurinn fari ekki til Chelsea þetta árið. Chelsea hefur verið í viðræðum við Real Madrid um leikmanninn en þær hafa ekki þokast í rétta átt. Enski boltinn 20. ágúst 2008 12:12
Capello: Mjög erfið ákvörðun Fabio Capello segir að það hafi verið mjög erfið ákvörðun að velja næsta fyrirliða Englands. Í dag var tilkynnt að John Tery, varnarmaður Chelsea, myndi taka við bandinu. Enski boltinn 19. ágúst 2008 22:00
John Terry valinn fyrirliði enska landsliðsins Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, hefur valið John Terry hjá Chelsea sem nýjan fyrirliða. Terry er 27 ára en hann tekur við fyrirliðabandinu af David Beckham sem bar það á heimsmeistaramótinu 2006. Enski boltinn 19. ágúst 2008 12:32
Hargreaves ætlar að sýna sitt rétta andlit Owen Hargreaves er ákveðinn í að sýna stuðningsmönnum Manchester United sitt rétta andlit á þessu tímabili. Þessi enski landsliðsmaður segist ekki hafa gengið heill til skógar síðasta vetur en sé nú að komast í sitt besta form. Enski boltinn 19. ágúst 2008 12:30
Wenger biður fólk að standa með Adebayor Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur biðlað til stuðningsmanna félagsins að standa með sóknarmanninum Emmanuel Adebayor. Enski boltinn 19. ágúst 2008 11:57
Adebayor skrifar undir nýjan samning Emmanuel Adebayor hefur skrifað undir nýjan samning við Arsenal. Þessi 24 ára sóknarmaður var orðaður við Barcelona og AC Milan í sumar en tilkynnti síðan að hann yrði áfram hjá Arsenal. Enski boltinn 18. ágúst 2008 16:27
Stoke að fá varnarmann Southampton hefur samþykkt tilboð upp á 1,3 milljónir punda frá Stoke City í varnarmanninn Andrew Davies. Þessi 23 ára leikmaður hóf feril sinn hjá Middlesbrough en hann getur spilað sem hægri bakvörður eða miðvörður. Enski boltinn 18. ágúst 2008 13:50
Carrick frá í þrjár vikur Michael Carrick, miðjumaður Manchester United, verður frá í um þrjár vikur vegna ökklameiðsla. Hann fór meiddur af velli þegar United gerði 1-1 jafntefli gegn Newcastle í gær. Enski boltinn 18. ágúst 2008 13:28