Vince Grella til Blackburn Blackburn Rovers hefur gengið frá kaupum á ástralska landsliðsmanninum Vince Grella. Þessi 28 ára miðjumaður hefur skrifað undir fjögurra ára samning. Enski boltinn 26. ágúst 2008 22:10
Owen aftur með sigurmark Michael Owen skoraði sigurmark Newcastle sem vann 3-2 sigur á Coventry í 2. umferð enska deildabikarsins. Markið kom í framlengingu en staðan eftir venjulegan leiktíma var 2-2. Enski boltinn 26. ágúst 2008 21:18
Bolton úr leik - Grétar og Heiðar léku allan leikinn Það urðu heldur betur óvænt úrslit í 2. umferð ensku deildabikarkeppninnar í kvöld. Bolton tapaði á heimavelli fyrir Northampton 1-2 en Northampton leikur í ensku 2. deildinni (C-deild). Enski boltinn 26. ágúst 2008 21:03
Fulham að fá miðjumann Kagiso Dikgacoi, miðjumaður Golden Arrows í Suður-Afríku, segist vera að ganga frá samningum við enska úrvalsdeildarliðið Fulham. Enski boltinn 26. ágúst 2008 19:00
Blackburn vill fá Al-Habsi Bolton er að íhuga tilboð frá Blackburn í markvörðinn Ali Al-Habsi frá Oman. Bolton vill halda þessum varamarkverði sínum en Blackburn vill fá hann til að keppa við Paul Robinson um stöðuna hjá sér. Enski boltinn 26. ágúst 2008 18:00
Tíu bestu kaupin hjá Sir Alex Ferguson Sir Alex Ferguson hefur keypt marga frábæra leikmenn á þeim 22 árum sem hann hefur verið við stjórnvölinn hjá Manchester United. Sérfræðingar The Sun hafa tekið saman tíu bestu leikmannakaup hans að sínu mati. Enski boltinn 26. ágúst 2008 17:00
Robinho fer til Chelsea í vikunni Enska dagblaðið Daily Mail heldur því fram í dag að Chelsea muni ganga frá kaupum á Brasilíumanninum Robinho í þessari viku fyrir 31 milljón punda. Enski boltinn 26. ágúst 2008 14:04
Krísufundur hjá Tottenham vegna Berbatov Umboðsmaður Dimitar Berbatov er nú staddur í Lundúnum þar sem hann mun funda með forráðamönnum Tottenham um möguleg félagaskipti leikmannsins til Manchester United. Enski boltinn 26. ágúst 2008 12:41
Riera á leið til Liverpool Eftir því sem spænskir fjölmiðlar halda fram í dag er stutt í að Albert Riera gangi til liðs við Liverpool frá Espanyol. Enski boltinn 26. ágúst 2008 12:31
Bellamy ekki til sölu Íslendingafélagið West Ham segir að Craig Bellamy, leikmaður liðsins, sé ekki til sölu. Manchester City er sagt hafa áhuga á kappanum. Enski boltinn 26. ágúst 2008 12:01
Ungur framherji til Fulham Roy Hodgson, stjóri Fulham, hefur gengið frá kaupum á hinum sautján ára gamla Danny Hoesen frá Fortuna Sittard. Enski boltinn 26. ágúst 2008 10:26
Inler hafnaði Arsenal Gokhan Inler, leikmaður Udinese, hafnaði því að ganga til liðs við Arsenal eftir því sem umboðsmaður hans sagði. Enski boltinn 26. ágúst 2008 10:22
Ferdinand á leið í læknisskoðun Anton Ferdinand er farinn til Sunderland þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun í dag. Roy Keane, stjóri Sunderland, vonast til að ganga frá félagaskiptunum síðar í dag. Enski boltinn 26. ágúst 2008 09:19
Sir Alex: Ekki sjálfsagt að ná sigri hér Manchester United er komið með fjögur stig eftir tvær umferðir í ensku úrvalsdeildinni. Liðið vann 1-0 útisigur gegn Portsmouth í kvöld en Sir Alex Ferguson var ánægður með sína menn. Enski boltinn 25. ágúst 2008 22:47
United vann Portsmouth með marki frá Fletcher Manchester United vann Portsmouth 1-0 á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Darren Fletcher skoraði eina markið á 32. mínútu leiksins eftir sendingu frá Patrice Evra. Enski boltinn 25. ágúst 2008 19:45
Helgin á Englandi - Myndir Það var mikið fjör á Englandi um helgina og nóg af athyglisverðum úrslitum. Arsenal tapaði óvænt fyrir Fulham, nýliðar Stoke gerðu sér lítið fyrir og unnu Aston Villa og þá tapaði Tottenham aftur. Enski boltinn 25. ágúst 2008 18:30
Ferdinand færist nær Sunderland Alan Curbishley, knattspyrnustjóri West Ham, hefur staðfest að félagið hafi tekið tilboði Sunderland í varnarmanninn Anton Ferdinand. West Ham tapaði fyrir Manchester City í gær en Ferdinand lék ekki þann leik þar sem hann er að jafna sig eftir meiðsli. Enski boltinn 25. ágúst 2008 17:35
Stýrir Ferguson Bretlandi á Ólympíuleikunum? Sir Alex Ferguson er besti kosturinn í að stýra Ólympíulandsliði Breta á leikunum 2012. Þetta segir Gerry Sutcliffe, ráðherra íþróttamála í Bretlandi. Enski boltinn 25. ágúst 2008 17:06
Jacobsen á leið til Everton Danski varnarmaðurinn Lars Christian Jacobsen er á leið til enska úrvalsdeildarfélagsins Everton frá Nürnberg í Þýskalandi. Enski boltinn 25. ágúst 2008 16:32
Heiðar með Bolton á morgun Heiðar Helguson segist ekki vita til þess að hann sé á förum frá Bolton. Hann verður í byrjunarliðinu er Bolton mætir Northampton í ensku deildarbikarkeppninni á morgun. Enski boltinn 25. ágúst 2008 16:06
Senderos lánaður til Milan Arsenal hefur lánað svissneska varnarmanninn Philippe Senderos til AC Milan út keppnistímabilið. Enski boltinn 25. ágúst 2008 15:15
Shevchenko þakkar stuðningsmönnum Chelsea Andriy Shevchenko sendi stuðningsmönnum Chelsea kærar þakkir fyrir stuðninginn sem þeir hafa sýnt honum undanfarin tvö ár. Enski boltinn 25. ágúst 2008 14:16
Richards fékk að fara heim af sjúkrahúsinu Micah Richards fékk að fara heim af sjúkrahúsi í gærkvöldi eftir að hann missti meðvitund í leik Manchester City og West Ham í gær. Enski boltinn 25. ágúst 2008 12:30
Hermann víkur fyrir Traore Eftir því sem kemur fram í The Sun í dag verður Armand Traore í byrjunarliði Portsmouth gegn Manchester United í kvöld á kostnað Hermanns Hreiðarssonar. Enski boltinn 25. ágúst 2008 11:24
Heiðar nú orðaður við Norwich Heiðar Helguson hefur verið orðaður við enska B-deildarliðið Norwich í enskum fjölmiðlum í dag. Enski boltinn 25. ágúst 2008 10:49
City vann West Ham Manchester City lagði West Ham 3-0 í ensku úrvalsdeildinni í dag en öll mörkin komu í seinni hálfleik. Seint í fyrri hálfleik missti West Ham mann af velli þegar Mark Noble fékk að líta sitt annað gula spjald. Enski boltinn 24. ágúst 2008 17:33
Deco tryggði Chelsea sigur Chelsea vann 1-0 útisigur á Wigan í ensku úrvalsdeildinni í dag. Eina mark leiksins kom strax á fjórðu mínútu en það skoraði portúgalski miðjumaðurinn Deco beint úr aukaspyrnu. Enski boltinn 24. ágúst 2008 14:27
Fabregas vill fá Alonso í Arsenal Cesc Fabregas segir að það yrði frábært fyrir Arsenal að fá miðjumanninn Xabi Alonso frá Liverpool. Arsene Wenger hefur áhuga á því að fá Alonso samkvæmt fréttum frá Englandi. Enski boltinn 24. ágúst 2008 13:39
Bolton snýr sér að Bullard Gary Megson, knattspyrnustjóri Bolton, ætlar að reyna að fá Jimmy Bullard frá Fulham. Hann hefur hinsvegar gefist upp á því að reyna að fá James Harper, miðjumann Reading. Enski boltinn 24. ágúst 2008 13:32
Fulham vann Arsenal Fulham bar sigurorð af Arsenal, 1-0, í ensku úrvalsdeildinni í dag. Það var norski varnarmaðurinn Brede Hangeland sem skoraði sigurmarkið með skoti af stuttu færi á 21. mínútu leiksins. Enski boltinn 23. ágúst 2008 18:30