Fimm greindust og allir í sóttkví

Fimm greindust með kórónuveiruna hér á landi í gær og voru þeir allir í sóttkví. 52 eru nú á sjúkrahúsi vegna veirunnar, þar af þrír á gjörgæslu. Á síðustu sjö dögum hefur 61 greinst með kórónuveiruna innanlands. Fjöldi smitaðra er mestur á höfuðborgarsvæðinu, þar eru 154 í einangrun og 148 í sóttkví. Næstmestur er fjöldinn á Norðurlandi eystra, þar sem 28 eru í einangrun og 24 í sóttkví.

12
00:37

Vinsælt í flokknum Fréttir