Afturelding safnar liði fyrir næstu leiktíð
Afturelding hefur safnað liði í handboltanum fyrir næstu leiktíð síðustu daga. Hornamennirnir snjöllu Andri Þór Helgason og Leó Snær Pétursson hafa skrifað undir tveggja ára samning við félagið sem ætlar sér stóra hluti á næstu leiktíð.