Hrottafengnar árásir Annþórs og Barkar Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. maí 2012 14:42 Annþór og Börkur sitja núna í einangrun á Litla-Hrauni.
Árásir Annþórs Kristjáns Karlssonar og Barkar Birgissonar á sjö manns voru skipulagðar og sérstaklega ófyrirleitnar að því er fram kemur í ákærunni á hendur þeim. Málið verður þingfest á föstudag, að því er fréttavefur RÚV greinir frá. Alls eru tíu manns ákærðir Í einni árásinni fóru þeir Annþór og Börkur vopnaðir á heimili manns á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn opnaði fyrir þeim en þrír til viðbótar voru á heimilinu. Samkvæmt ákærunni sendi Annþór svo skilaboð til sjö manna, sem biðu fyrir utan. Annþór hleypti þeim inn og réðist hópurinn á fólkið með golfkylfum, handlóðum, prikum og öðrum bareflum þannig að einn hlaut, auk annarra áverka, opið beinbrot, annar handleggsbrotnaði og hinir tveir hlutu höfuðáverka. Neyddu mann til að pissa á félaga sinn Í annarri árás er Berki og Annþóri gefið að sök að hafa skipulagt árás á þrjá menn í heimahúsi. Þá fóru þeir vopnaðir, ásamt fleiri mönnum, og réðust á þá sem í íbúðinni voru, börðu þá í hnakka og líkama og kröfðust þess að þeir greiddu sér hálfa milljón króna. Þá neyddu þeir einn mannanna til að kasta af sér þvagi yfir annan á meðan Annþór hélt honum niðri. Eru Annþór og Börkur ákærðir fyrir árásina sem og frelsissviptingu og tilraun til fjárkúgunar. Tveir til viðbótar eru ákærðir fyrir aðild að árásinni en aðrir sem tóku þátt í henni eru óþekktir. Annþór réðst á mann heima hjá sér Að auki eru tveir menn ákærðir fyrir að hafa farið með tvo menn, sem þeir töldu sig eiga sökótt við, til Annþórs, sem veittist að þeim með höggum og spörkum í andlit og líkama. Þá tók hann annan manninn kverkataki þannig að hann missti meðvitund og féll í gólfið. Annþór krafðist þess að þeir létu hann fá peninga og hótaði því að ef þeir segðu frá árásinni færu þeir í áskrift hjá honum sem væri ævilöng skuld við hann. Annþór og Börkur voru báðir á reynslulausn þegar þeir réðust á mennina. Þeir voru umsvifalaust fangelsaðir eftir þær. Nú hafa þeir verið settir í einangrun, grunaðir um að hafa orðið manni að bana á Litla - Hrauni.
Mál Annþórs og Barkar Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira