Fleiri fréttir

Skoskt brugghús vinnur keppni um sterkasta bjórinn

Skoska brugghúsið BrewDog hefur sigrað þýskt brugghús í keppni um hvort þeirra geti framleitt sterkasta bjór í heimi. BrewDog hefur nú sett á markaðinn bjór sem er 41% að styrkleika og nefnir hann Sink the Bismarck.

Ólögleg lyf seld fyrir 1.750 milljarða í Evrópu

Ný rannsókn sýnir að einn af hverjum fimm Evrópubúum hefur keypt lyfseðilsskyld lyf á netinu án uppáskriftar frá lækni. Áætlað er að sala slíkra lyfja nemi um 10,5 milljörðum evra eða 1.750 milljörðum kr. á ári hverju.

Örlög tilboðs Actavis í Ratiopharm ráðast í vikunni

Það ræðst í þessari viku hvort Actavis fái að setjast að samningaborði með tilboð sitt í þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm. Samkvæmt frétt um málið á Reuters verða tilboðsgjafarnir skornir niður í einn eða tvo sem fá að taka þátt í samningum um kaupin.

Magma Energy tapaði 675 milljónum á síðasta ársfjórðungi

Magma Energy tapaði tæplega 5.25 milljónum dollara eða um 675 milljónum kr. á síðasta ársfjórðungi í fyrra en fjórðungurinn er annar í uppgjörsári félagsins. Þetta er töluvert meira tap en á sama tímbili árið áður þegar félagið skilaði rúmlega milljón dollara tapi.

Zenith vottar sjálfbærnina

Framleiðsla Icelandic Water Holdings ehf. á Icelandic Glacial-lindarvatninu hefur fengið sjálfbærnivottun Zenith International, sem í tilkynningu er sagt leiðandi ráðgjafarfyrirtæki á sviði matar og drykkjar í Evrópu.

Beðið fregna frá Brussel - Grísk stjórnvöld eru talin hafa beitt brellibrögðum

Evrópskir fjárfestar eru sagðir bíða þess í ofvæni til hvaða ráða fjármálaráðherrar evruríkjanna ákveða að grípa til varðandi skuldavanda Grikklands. Fundur ráðherranna hófst síðdegis í Brussel í Belgíu í gær. Samstarfsbræður þeirra í hinum aðildarríkjum Evrópusambandsins funda með þeim í dag.

Rooney, Robinson og Ritchie flækt í skattsvikarannsókn

Fjöldi þekktra Breta á borð við fótboltamanninn Wayne Rooney, sjónvarpsstjörnuna Anne Robinson og leikstjórann Guy Ritchie eru nú flækt í skattsvikarannsókn. Þau eiga það sameiginlegt að hjá fjárfest hjá sjóði sem heitir Inside Track.

Mikill þrýstingur á fjármálaráðherra ESB í dag

Fjárfestar um allan heim munu fylgjast grannt með fundi fjármálaráðherra landanna innan evrusvæðis ESB í dag. Umræðuefnið er staðan í Grikklandi. Ráðherrarnir eru undir miklum þrýstingu að setja fram nákvæma áætlun um hvernig Grikkjum verði komið til bjargar.

Efnahagsbati Evrópu hefur stoppað

Samkvæmt nýjum tölum frá Eurostat hefur hinn veiki efnahagsbati í Evrópu nú stoppað. Tölurnar sýna að hagvöxtur á evrusvæðinu nam aðeins 0,1% á fjórða ársfjórðungi síðasta árs en væntingar voru um að vöxturinn yrði 0,4%.

Kína á bremsunni, bindiskyldan aukin í annað sinn

Stjórnvöld í Kína hafa fyrirskipað bönkum landsins að hækka bindiskyldu sína. Er þetta í annað sinn á einum mánuði sem bindiskyldan er aukin. Með þessu eru stjórnvöld að reyna að kæla kínverska hagkerfið sem er í miklum vexti þessa daganna.

Neyðarleg mistök kostuðu myntsláttustjóra Chile starfið

Forstjóri myntsláttunnar í Chile, Gregorio Iniquez, hefur glatað starfi sínu eftir að neyðarleg mistök við sláttu á 50 pesóa mynt komu í ljós. Á myntinni er nafn landsins rangt stafað. Í stað CHILE stendur CHIIE á myntinni.

Frakkar: Aldrei sótt um leyfi fyrir Icesave í Frakklandi

Talsmaður seðlabanka Frakkalands (Banque de France) segir að aldrei hafi verið sótt um leyfi til að starfrækja Icesave-reikninga þar í landi. Þetta stangast á við orð Björgvins G. Sigurðssonar fyrrverandi viðskiptaráðherra um að Frakkar hefðu neitað Landsbankanum um slíkt leyfi.

Danski auðmannabankinn Capinordic lýstur gjaldþrota

Danska fjármálaeftirlitið hefur lýst því yfir að auðmannabankinn (velhaverbanken) Capinordic sé gjaldþrota. Þetta gerist í framhaldi af því að Capinordic óskaði eftir greiðslustöðvun í gærdag.

Auðugur Rússi kaupir yfirgefið kaldastríðsþorp

Auðugur Rússi hefur keypt draugaþorpið Skrunda-1 í Lettlandi en síðasti íbúinn yfirgaf þessa 5.000 manna byggð árið 1998. Rússneski herinn rak Skrunda-1 á tímum kaldastríðsins.

Bankabjörgun kostaði þrefalda landsframleiðslu Skotlands

Kostnaðurinn við að bjarga tveimur skoskum bönkum, Royal Bank of Scotland (RBS) og HBOS, nemur 470 milljörðum punda eða hinni stjarnfræðilegu tölu 94 þúsund milljörðum kr. Þetta er þreföld landsframleiðsla Skotlands.

Hefur áhyggjur af olíuskorti í framtíðinni

Ökumenn þurfa að fara að átta sig á því að olía er takmörkuð vara og skipta yfir í grænan samgöngumáta til þess að forðast olíuskort árið 2020, segir Ian Marchant, framkvæmdastjóri orkufyrirtækisins Scottish & Southern.

Reikningur til Manarbúa fyrir Kaupþing 12 milljarðar

Skattgreiðendur á eyjunni Mön munu þurfa að greiða 60 milljónir punda, eða um 12 milljarða kr., til þess að hægt sé að standa við greiðslur á innlánstryggingum á reikningum hjá dótturfélags Kaupþings á eyjunni.

Miklar bensínbirgðir halda olíuverðinu niðri

Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar í morgun í kjölfar fregna frá Bandaríkjunum að olíubirgðir landsins hafi aukist um 7,2 milljónir tunna í síðustu viku. Þá hafa bensínbirgðir Bandaríkjanna ekki verið meiri síðan í mars 1999 en þær nema nú 228,2 milljónum tunna.

Sænsk glæpasagnadrottning í stjórn Post Danmark

Sænska glæpasagnadrottningin Viveca Sten hefur fengið sæti í stjórn Post Danmark. Fyrir er Sten einn af stjórnendum dansk/sænsk póstrisans Posten Norden en hún er menntaður lögfræðingur.

Nordea skilar ágætu uppgjöri

Nordea bankinn skilaði ágætu uppgjöri fyrir árið í fyrra. Hagnaður bankans fyrir skatta nam 20,8 milljörðum danskra kr. eða ríflega 490 milljörðum kr. Þetta er fimmfaldur hagnaður Danske Bank fyrir sama ár.

Íslandsvinurinn Kiefer Sutherland svikinn af nautgripasala

Íslandsvinurinn og stórstjarnan Kiefer Sutherland situr eftir með sárt ennið eftir að hafa verið illa svikinn í viðskiptum af nautgripasala í Bandaríkjunum. Sutherland var svikinn um 869.000 dollara af nautgripasalanum eða um tæpar 112 milljónir kr.

Áhugi á að kaupa eina af stærri breskum eignum Kaupþings

Nokkrir fjárfestar hafa lýst áhuga á því að kaupa, Bay Restaurant Group (Bay), eina af stærri eignum Kaupþings í Bretlandi. Bay var áður í eigu auðmannsins Robert Tchenguiz fyrrum stjórnarmanns í Exista. Kauipþing leysti til sín þessa eign í fyrra.

SAS öskrar á hjálp, tapaði 50 milljörðum í fyrra

„SAS öskrar á hjálp" er fyrirsögnin á einum af dönsku vefmiðlunum í morgun þar sem fjallað er um taprekstur SAS flugfélagsins á síðasta ári. Tapið nam 2,2 milljörðum danskra kr. eða rúmum 50 milljörðum kr.

Næsta andlit Iceland verður venjulegur Breti

Verslunarkeðjan Iceland í Bretlandi hefur hleypt af stokkunum samkeppni meðal bresks almennings um að finna næsta andlit keðjunnar. Hingað til hefur Iceland sótt þetta andlit til þekktra Breta en nú á að breyta um stefnu.

Norræn deila um frekari fjárhagsaðstoð til SAS

Norsk stjórnvöld hafa glatað þolinmæði sinni gagnvart SAS flugfélaginu og munu ekki leggja því til krónu í frekari fjárhagsaðstoð. Dönsk stjórnvöld vilja hinsvegar halda áfram að aðstoða SAS.

Atvinnuleysið áfram minna en í öðrum OECD ríkjum

Atvinnuleysið í OECD ríkjunum var að meðaltali 8,8% í desember s.l. samkvæmt samræmdri mælingu samtakanna. Atvinnuleysi á Íslandi er því áfram minna en í öðrum OECD ríkjum að jafnaði en það mældist 8,2% í desember.

Tryggingarfélög hagnast vel á Facebook

Með tilkomu Facebook er það orðið mun léttara verk fyrir tryggingarfélög að upplýsa um tryggingarsvik. Á síðustu fjórum árum hefur tryggingarfélag sparað sér greiðslur á tryggingabótum upp á rúma þrjá milljarða með því að nýta sér upplýsingar af Facebook.

Hlutir í Færeyjabanka ekki hærri síðan 2008

Hlutir í Færeyjabanka hækkuðu um 4,5% í kauphöllinni í Kaupmannahöfn og hefur gengi þeirra þar ekki verið hærra síðan í október árið 2008. Gengi þeirra stendur í 150 kr. dönskum.

Álverðið dottið niður fyrir 2.000 dollara í London

Heimsmarkaðsverð á áli hefur stöðugt lækkað undanfarnar vikur og er nú komið niður yfir 2.000 dollara á tonnið á markaðinum í London. Í morgun stóð verðið í 1.982 dollurum á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga.

Hlutabréfaútgáfa upp á 8 milljarða hjá West Ham

Skriður er kominn á hugmyndir þeirra David Sullivan og David Gold um að fá nýtt fjármagn inn í rekstur enska úrvalsdeildarliðsins West Ham. Framundan er útgáfa á nýjum hlutabréfum fyrir allt að 40 milljónir punda eða um 8 milljarða kr.

Toyota innkallar Prius

Japanski bílaframleiðandinn Toyota hyggst síðar í vikunni innkalla rúmlega 300 þúsund bifreiðar af gerðinni Prius í Bandaríkjunum og Japan vegna bilana í hemlunarbúnaði bifreiðanna. Áður hafði fyrirtækið innkallað um átta milljónir bifreiðar víðsvegar um heiminn, þar á meðal á Íslandi, vegna bilana í bensíngjöf í sjö undirtegundum.

Íslensk fiskhausaþurrkun skapar störf í Nova Scotia

Íslensk fiskhausaþurrkun mun skapa um 50 ný störf í Nova Scotia í Kanada á næstu fimm árum. Yfirvöld í Nova Scotia hafa ákveðið að leggja 1,4 milljónir kanadadollara eða um 180 milljónir kr. sem lán í fyrirtækið.

Actavis og Teva leggja fram tilboð í Ratiopharm

Actavis og Teva eru bæði búin að leggja fram tilboð í þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm. Talið er að bandaríski lyfjarisinn Pfizer muni einnig leggja fram tilboð fyrir lok mánaðarins en áður hafði komið fram að Pfizer væri hætt við að reyna að kaupa Ratiopharm.

Spáir hálfri milljón atvinnulausra í Danmörku í ár

Helge J. Pedersen aðalhagfræðingur Nordea bankans spáir því að hálf milljón Dana muni verða atvinnulausir á þessu ári, að hluta eða öllu leyti. Þetta byggir Pedersen á nýjum tölum frá hagstofu Danmerkur.

Kanadískt rækjustríð eykur landanir í Reykjavík

Stjórnvöld í Kanada eru nú komin í stríð við grænlenska og færeyska rækjusjómenn. Í næstu viku munu stjórnvöld loka höfnum á austurströnd Kanada fyrir rækjuskipum þessara þjóða. Það hefur aftur þær afleiðingar að landanir færeyska rækjuskipa flytjast að hluta til Reykjavíkur.

Sjá næstu 50 fréttir