Neyðarleg mistök kostuðu myntsláttustjóra Chile starfið 12. febrúar 2010 10:11
Forstjóri myntsláttunnar í Chile, Gregorio Iniquez, hefur glatað starfi sínu eftir að neyðarleg mistök við sláttu á 50 pesóa mynt komu í ljós. Á myntinni er nafn landsins rangt stafað. Í stað CHILE stendur CHIIE á myntinni.Í frétt um málið á BBC segir að þessi mynt hafi verið slegin árið 2008 en það er fyrst núna sem þessi mistök komust í hámæli. Myntin er orðin að safngrip í landinu og hugsa margir Chilebúar sér gott til glóðarinnar á næstu árum með að selja myntir þessar til safnara.Fyrir utan Iniquez voru fleiri starfsmenn myntsláttunnar reknir úr starfi. Þetta eru nefnilega ekki fyrstu neyðarlegu mistökin sem myntsláttan hefur gerst sek um á liðnum árum. Sem dæmi má nefna að í fyrra seldi starfsmaður sjaldgæfa mynt til safnara úr safni myntsláttunnar. Mánuði síðar var önnur mynt úr safninu sett á uppboð fyrir slysni.Síðustu mistökin hafa fengið marga Chile-búa til að brosa um leið og þeir setja gallaðar 50 pesó myntir til hliðar til að selja síðar.
Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira