Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hvetja til notkunar #landsbyggðafyrirtæki Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) standa fyrir samfélagsmiðladeginum #landsbyggðafyrirtæki miðvikudaginn 19. janúar. Sem hluti af átakinu er fólk hvatt til að segja frá uppáhalds fyrirtækinu sínu í heimabyggð eða deila sinni starfsemi með því að nota myllumerkið #landsbyggðafyrirtæki eða #ruralbusinessday. 18.1.2022 00:05
Meðalkaupverð íbúða í landinu átta milljónum hærra en fyrir ári Meðalkaupverð íbúða á landinu var 58,5 milljónir króna í nóvember síðastliðinn samanborið við 50,8 milljónir króna nóvember árið áður. Á höfuðborgarsvæðinu var meðalkaupverð 67,6 milljónir króna en þar af var það 58 milljónir króna fyrir íbúðir í fjölbýli og 98 milljónir fyrir sérbýli. 17.1.2022 07:25
N1 tekur músagildrur sem ekki má nota úr sölu Fyrirtækið N1 hefur tekið límgildrur, sem Matvælastofnun segir ekki samræmast lögum um dýravelferð, úr sölu. Límgildrurnar voru til sölu á sölustöðum og í veferslun N1 þar til síðdegis í dag. 15.1.2022 18:00
N1 selur límgildrur sem óheimilt er að nota Fyrirtækið N1 selur sérstakar límgildrur sem Matvælastofnun hefur sagt að samræmist ekki lögum um dýravelferð. Samkvæmt lögunum er óheimilt að beita aðferðum við aflífun dýra, sem valda þeim óþarfa limlestingum eða kvölum. 15.1.2022 16:54
Líklega mesta loðnuveiði sögunnar Börkur NK sem gerir út frá Seyðisfirði landaði 3.211 tonnum af loðnu í fiskimjölsverkmiðju Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði í gær. Verksmiðjustjóri segir þetta stærsta loðnufarm sem hann hafi heyrt um. 14.1.2022 15:28
Allt að tólf milljóna veitingastyrkur í boði Eigendur ákveðinna veitingastaða geta átt rétt að allt að tólf milljóna veitingastyrk til að mæta áhrifum sem samkomutakmarkanir hafa haft á rekstur þeirra. 14.1.2022 15:26
Segir veitingaaðilum létt með óbreyttum reglum og styrkjum Reglur hvað varða veitingastaði hér á landi eru nokkurn veginn óbreyttar. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir þetta mikinn létti fyrir veitingahúsaeigendur og hótelrekendur sem hafi verið farnir að reikna með enn harðarði takmörkunum. 14.1.2022 14:18
Meiri neysla við hápunkt faraldursins en árið 2019 Kortavelta innlendra greiðslukorta jókst um 14% í desember miðað við sama mánuð árið 2020. Kortavelta Íslendinga erlendis nam tæplega 18 milljörðum króna og jókst um 90% milli ára miðaða við fast gengi. 14.1.2022 13:32
Gert að greiða skatt af 27 milljóna króna sölu á Bitcoin Yfirskattanefnd hefur hafnað kröfu manns um að felld verði úr gildi ákvörðun ríkisskattstjóra að færa 27 milljóna króna sölu hans á Bitcoin til skattskyldra tekna. 14.1.2022 12:58
Teitur dæmdur fyrir skattsvik Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar, hefur hlotið fjögurra mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir skattsvik. Honum ber einnig að greiða rúmlega fimmtán milljón króna sekt innan fjögurra vikna, ella fara í fangelsi. Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóm í málinu í gær. 13.1.2022 22:55
Spá hjaðnandi verðbólgu Íslandsbanki og Landsbankinn spá því að vísitala neysluverðs lækki um 0,2% í janúar og tólf mánaða verðbólga mælist 5,0% í janúar. Hún var 5,1% í desember. 13.1.2022 11:57
Festi endurskoðar starfsreglur vegna máls Vítalíu Stjórn Festi mun endurskoða starfsreglur stjórnar félagsins eftir að stjórnarformaður félagsins sagði af sér á dögunum vegna máls Vítalíu Lazarevu. 13.1.2022 11:12
Skipaður skrifstofustjóri kjara- og mannauðssýslu ríkisins Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ákveðið að skipa Jökul Heiðdal Úlfsson í embætti skrifstofustjóra kjara- og mannauðssýslu ríkisins, sem fer með vinnuveitendahlutverk fyrir ríkið í heild. Skipunin er til fimm ára. 13.1.2022 11:10
Bein útsending: Skattadagurinn 2022 Hinn árlegi Skattadagur Viðskiptaráðs, Deloitte og Samtaka atvinnulífsins fer fram í dag og hefst dagskrá í beinu streymi klukkan 9. 13.1.2022 08:29
Íslenskur áhættureiknir hjálpar milljónum Bandaríkjamanna að koma í veg fyrir blindu Íslenska sprotafyrirtækið Risk ehf. og bandarísku sykursýkissamtökin (ADA) hafa gert með sér samkomulag um að gera RetinaRisk áhættureikninn, sem reiknar út áhættu fólks með sykursýki á sjónskerðandi augnsjúkdómum, aðgengilegan almenningi í Bandaríkjunum. 13.1.2022 07:44
Veittu manni óleyfilegan aðgang að bankareikningum Landsbankinn braut í bága við lög um persónuvernd þegar faðir fékk sjálfkrafa áframhaldandi lesaðgang að tveimur bankareikningum dóttur sinnar eftir að hún varð sjálfráða. 12.1.2022 14:59
Jón Friðrik tekur við af Sigmari sem framkvæmdastjóri Hlöllabáta Jón Friðrik Þorgrímsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Hlöllabáta ehf. Hann tekur við stöðunni af Sigmari Vilhjálmssyni. Hlöllabátar reka samnefnda keðju ásamt veitingastaðnum Barion í Mosfellsbæ. 12.1.2022 13:29
Bæta fjórum áfangastöðum við leiðakerfið Icelandair hefur birt upplýsingar um sumaráætlun sína og hafa fjórir áfangastaðir bæst við leiðakerfið – Róm á Ítalíu, Nice í Frakklandi, Alicante á Spáni og Montreal í Kanada. 12.1.2022 09:23
Taktikal tryggir sér 260 milljóna fjármögnun og sækir út fyrir landsteinanna Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Taktikal hefur tryggt sér 260 milljóna króna fjármögnun frá Brunni vaxtarsjóði II sem stýrt er af Brunni Ventures. Fjármagnið verður nýtt til að efla vöruþróun og sækja á erlenda markaði. 12.1.2022 09:21
MS fækkar og skiptir út skeiðum í kjölfar óánægju Mjólkursamsalan hefur ákveðið að hætta að setja skeiðar og plastlok með vissum tegundum af skyri til að draga úr plast- og umbúðamagni. Þá verður skeiðum á öðrum vörum skipt út fyrir nýjar til að bregðast við óánægju viðskiptavina. 11.1.2022 16:39
Revolut Bank opnar á Íslandi Breska fjártæknifyrirtækið Revolut hefur opnað bankastarfsemi sína fyrir Íslendingum og starfar nú á Íslandi undir evrópsku bankaleyfi. 11.1.2022 13:18
Atvinnuleysi staðið í stað en spá aukningu í janúar Skráð atvinnuleysi var 4,9% í desember og var óbreytt frá nóvember. Alls fjölgaði atvinnulausum að meðaltali um 74 frá nóvembermánuði. 11.1.2022 12:15
Selja allar sínar veraldlegu eigur og byrja á núllpunkti Guðmundur Aðalsteinn Þorvarðarson og Vilhjálmur Jón Guðjónsson hafa ákveðið að loka blómabúðinni Barónessunni á Barónsstíg eftir tveggja ára rekstur. Þeir ætla að skilja við allt sitt veraldlega á þessu ári og njóta lífsins, við hvað er þó enn óvíst. 10.1.2022 21:31
Kaupfélag Skagfirðinga tekur Teyg úr sölu og slítur samstarfi við Arnar Kaupfélag Skagfirðinga hefur ákveðið að hætta framleiðslu á prótíndrykknum Teyg og taka hann úr sölu. Einkaþjálfarinn Arnar Grant þróaði og markaðssetti drykkinn í samstarfi við Kaupfélagið. 10.1.2022 15:40
Hæstiréttur tekur mál Arion banka gegn þrotabúi WOW air ekki fyrir Hæstiréttur féllst ekki á málskotsbeiðni Arion banka sem vildi fá að áfrýja deilu við þrotabú flugfélagsins um fjármuni sem lagðir voru inn á reikning Wow air eftir að flugfélagið varð gjaldþrota. 10.1.2022 14:24
Þurrkatíð bítur í vatnsbúskap Landsvirkjunar Þurrkatíð síðustu tveggja hausta hefur gert það að verkum að staðan á vatnskúskap Landsvirkjunar hefur ekki verið lakari í sjö ár. Staða miðlunarlóna er lág, sérstaklega á Þjórsársvæðinu. 10.1.2022 12:05
Ara Edwald sagt upp störfum í kjölfar ásakana um kynferðisofbeldi Ara Edwald, framkvæmdastjóra Íseyjar útflutnings, hefur verið sagt upp störfum. Uppsögnin tók strax gildi. 9.1.2022 23:16
Ekki þurft að fljúga tómum vélum vegna reglna ESB Nýverið greindi Lufthansa Group frá því að samstæðan sæi fram á fljúga minnst átján þúsund flugferðir í vetur sem það myndi undir eðlilegum kringumstæðum vilja fella niður vegna fárra farþega. 8.1.2022 23:53
Tveir nýir framkvæmdastjórar hjá Icelandair Sylvía Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þjónustu og markaðsmála hjá Icelandair Group. Einnig hefur Rakel Óttarsdóttir verið ráðin í starf framkvæmdastjóra stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá félaginu. 7.1.2022 14:14
Sylvía hættir hjá Origo Sylvía Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo, hefur ákveðið að láta af störfum hjá fyrirtækinu. 7.1.2022 13:50
Jón Trausti tekur við vatns- og fráveitu Veitna Jón Trausti Kárason hefur verið ráðinn forstöðumaður vatns- og fráveitu hjá Veitum. 7.1.2022 11:15
Maríanna ráðin leiðtogi breytinga hjá Landsneti Maríanna Magnúsdóttir hefur verið ráðin leiðtogi breytinga hjá Landsneti. 7.1.2022 10:49
Ráðin mannauðsstjóri Hafnarfjarðarbæjar Kristín Sigrún Guðmundsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri Hafnarfjarðarbæjar. 7.1.2022 08:50
Leita til Hæstaréttar og starfa áfram í greiðsluskjóli Allrahanda GL, sem rekur ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line, hyggst leggja fram beiðni um kæruleyfi til Hæstaréttar eftir að Landsréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna staðfestingu nauðasamnings félagsins. Á meðan á því ferli stendur frestast rétttaráhrif úrskurðar Landsréttar og heldur Allrahanda GL því áfram rekstri í greiðsluskjóli. 7.1.2022 08:44
Keyptu Reykjavík Makeup School Förðunarfræðingarnir Ingunn Sigurðardóttir og Heiður Ósk Eggertsdóttir hafa tekið yfir rekstur Reykjavík Makeup School að fullu en þær komu upphaflega inn í rekstur hans sem meðeigendur 2020. 7.1.2022 08:17
Marta Rós, Sigurður Ingi og Sólveig nýir stjórnendur hjá Orkustofnun Marta Rós Karlsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri sjálfbærrar auðlindanýtingar hjá Orkustofnun, Sigurður Ingi Friðleifsson sviðsstjóri loftslagsmála, orkuskipta og nýsköpunar og Sólveig Skaptadóttir samskiptastjóri stafrænnar miðlunar. 6.1.2022 16:25
BPO braut lög við innheimtu smálánakrafna BPO Innheimta ehf. braut gegn innheimtulögum við innheimtu á smálánakröfum vorið 2021. Þetta er niðurstaða Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands sem hefur gert athugun á starfsháttum fyrirtækisins. 6.1.2022 12:23
Ágúst ráðinn sérfræðingur í forvörnum hjá Verði Ágúst Mogensen hefur verið ráðinn í nýtt starf sérfræðings í forvörnum hjá tryggingafélaginu Verði. 6.1.2022 11:28
Stefnir í verulegar breytingar á íslenskum leigubílamarkaði Allt stefnir í verulegar breytingar í átt til frjálsræðis á íslenskum leigubílamarkaði ef frumvarp innviðaráðherra nær fram að ganga. Íslenskt fyrirtæki er tilbúið með app með sextíu þúsund notendum. 5.1.2022 22:00
Fyrst orðið svart ef það verður skortur á hamborgurum Veitingaðurinn Yuzu á Hverfisgötu mun ekki opna dyr sínar fyrir hungruðum gestum í dag vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins. Sömu sögu er af segja af Hamborgarafabrikkunni en þar verður lokað vegna sóttkvíar starfsmanna næstu daga, bæði á Höfðatorgi og í Kringlunni. 5.1.2022 17:56
Rússneskur risi kaupir meirihluta í Vélfagi Rússneska sjávarútvegsfyrirtækið Norebo hefur keypt meirihluta í Vélfagi ehf. Akureyringurinn Finnbogi Baldvinsson, sem rekur ráðgjafafyrirtæki í Þýskalandi, hafði milligöngu um kaupin og sest í stjórn Vélfags fyrir hönd stofnendanna, hjónanna Bjarma Sigurgarðarssonar og Ólafar Ýrar Lárusdóttur. Þau eiga eftir viðskiptin 45,5% í félaginu. 5.1.2022 15:28
Sigríður frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins til Landsbankans Sigríður Guðmundsdóttir hefur verið ráðin til starfa sem mannauðsstjóri Landsbankans. Hún tekur við af Baldri Gísla Jónssyni í byrjun febrúar en hann hefur gegnt stöðunni undanfarin ellefu ár. 5.1.2022 10:52
Um fimm hundruð manns sagt upp í hópuppsögnum á síðasta ári Engar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í desember 2021. 4.1.2022 14:49
Rúmur þriðjungur beri illa skuldir sínar Umtalsverðar skammtímaskuldir hafa safnast upp hjá ferðaþjónustufyrirtækjum hér á landi eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á og í árslok 2020 voru þær allt að 25 milljarðar króna umfram það sem eðlilegt var. Erfitt getur reynst að vinna á þessum skuldum nema með frekari lántöku eða nýju eigin fé. 4.1.2022 12:15
Toyota fallið úr toppsætinu og rafbílar sækja á 1.826 Kia fólksbílar voru nýskráðir hérlendis á seinasta ári og var merkið það söluhæsta í fyrsta skipti með 14,3% hlutdeild af sölu nýrra fólksbíla. Næst á eftir kom Toyota með 1.790 nýskráða bíla og 14% hlutdeild en japanski framleiðandinn hefur setið efst á lista yfir vinsælustu fólksbíla Íslendinga samfleytt í um þrjá áratugi. 4.1.2022 10:11