Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Brimborg og Ragnheiður Tryggvadóttir 1. júní 2026 08:21 Nýi rafjeppinn EX60 frá Volvo er komin í framleiðslu og hægt að reynsluaka honum hér á landi í sumar. Fyrstu eintökin verða svo klár í ágúst. Við tókum smá forskot á sæluna. „Nú verður ekkert vesen að eiga rafbíl, við erum hætt málamiðlunum,“ sögðu stjórnendur Volvo þegar fyrirtækið kynnti nýja EX60, fimm manna fjölskyldu-rafjeppa í upphafi árs. Ekki þyrfti lengur lífsstílsbreytingu til að skipta úr dísel og bensíni yfir í rafmagnsbíl og frelsið loks orðið algjört til langra ferðalaga án hleðslustoppa.
Og jú, segja má að Volvo hafi afgreitt á einu bretti stærstu vandamál rafbílaökumanna, hinn taugatrekkjandi drægnikvíða og hleðsluóþolinmæðina. Volvo EX60 verður í boði hér á landi með tveimur aflrásum. Flaggskipið EX60 P12 AWD dregur allt að 810 km eða vel yfir hálfan hringveginn um Ísland! P10 AWD dregur allt að 660 km. Litlar 10 mínútur á hraðhleðslustöð gefa 320 km og aðeins 16 mínútur tekur að hlaða frá 10% upp í 80%, líka í kulda, enda er þessi bíll þróaður í sænsku frosti og snjó, rigningu og roki. Ég fékk að prófa EX60 P10 á dögunum reyndar í glampandi sól og spænsku hitastigi svo ég hafði engar áhyggjur af ytri aðstæðum á drægnina. En fleiri staðhæfingar höfðu flogið í upphafi árs, meðal annars þær að EX60 væri tæknilegasti bíll Volvo til þessa, gæti beinlínis hugsað og gegnum HuginCore-tölvukerfið bætt við sig þekkingu. Hægt væri að tala við hann gegnum Google Gemini gervigreind og þá væri hann búinn svo hátæknilegum öryggisbúnaði og þróaðri akstursaðstoð að hann brygðist við aðstæðum löngu áður en ég hefði einu sinni áttað mig á þeim. Hvernig á að keyra þvílíkt tæknitröll? Ofurtækni í aðgengilegum búningi En öll þessi tækni vinnur bara bakgrunninum enda hannar Volvo bíla fyrir venjulegt fólk. Ég var því ekki að fara að setjast upp í einhvern Star Trek-stjórnklefa. „Fólki á að líða vel þegar það sest upp í Volvo. Lífið á að vera einfalt við aksturinn og fyrir farþegana líka. Við hönnum fyrir alla í bílnum, hvar sem þeir sitja,“ segir Louise Temin Annermalm, yfirmaður hönnunar innanrýmisins hjá Volvo Cars. Louise kom einnig að hönnun innréttinga í Polestar 2, Polestar 3, Volvo XC40, Volvo S90 og Volvo V90 svo þetta er ekki hennar fyrsta ródeó. Enda óhætt að segja að innra rými EX60 er virkilega vel lukkað. Í fyrsta lagi er mælaborðið hreint og einfalt, stjórnskjárinn skýrt uppsettur og stutt í allar helstu aðgerðir. Ég þarf ekki að eyða miklum tíma í að læra á kerfið heldur get einbeitt mér að akstrinum og allt liggur nokkurn veginn beint við. Í öðru lagi umfaðmar mig mjúk þögn þegar sest er inn, tvöfaldar rúður sjá til þess að vegahljóð er nánast ekkert, en það er ekki síður samhljómurinn í hönnuninni sem skapar kyrrð og ró því hér er ekki slegin feilnóta í efnisvali, litum eða áferð. Ekta askur er í mælaborðinu, mjúkt nordico-áklæði í bland við ull og allar línur aflíðandi. Mér líður næstum því eins og ég hafi sest inn í heilsulind. Loftræsting er í sætunum, sem kemur sér vel í spánarhitanum, ótrúlega þægilegt að fá svalann í bakið. Þakglugginn eykur enn meira á rýmistilfinninguna og sem farþegi er dásamlegt að horfa á laufin á trjánum líða yfir bláan himininn. Tveggja tonna léttleiki, ró og mýkt EX60 er stór bíll og þungur eða rúm tvö tonn að þyngd en það kemur á óvart hversu léttur hann er í akstri. Þyngdarpunkturinn er lágur, þökk sé snilldarlegri útfærslu á rafhlöðunni inn í botngrind bílsins, og fjöðrunin mjúk svo ég rúlla ljúflega um hlykkjótta fjallvegina í kringum Barcelona. Í P10 get ég valið milli stillinga í fjöðruninni og hann bregst við eins og hugur minn. Aksturinn er algjörlega áreynslulaus. Það var gaman að prófa sjálfstýringu, sérstaklega á hlykkjóttum vegunum, en hún virkar, bíllinn sá um aksturinn en minnti ökumanninn reglulega á snerta stýrið, bara til að sýna að hann væri að fylgjast með. Ég finn hve langkeyrslur norður í land verða leikur einn á þessum bíl. Stýrið er frekar nett og kantað sem mér finnst mjög þægilegt. Þessi bíll er aflmikill og hraðskreiður, P12 er 680 hestöfl, 790Nm og 3,9 sek upp í hundrað. P10, sem ég ók í Barcelona er 510 hö, 710Nm og 4,6 upp í hundrað. En hraði og pinnakitl verða einhvern veginn ekki aðalatriði. EX60 virkar eins og skynsamur fararstjóri sem ég get treyst að láti mig vita af öllum hættum í kring og grípi sjálfur inn í þegar þarf. Inni í borginni var umferðin til dæmis þung, skellinöðrur og reiðhjól smeygðu sér stanslaust á milli bíla og raðirnar þéttar þegar skipta þurfti um akrein. Hér reyndi á ytri skynjara bílsins og 360 gráðu myndavélarnar. Akstur í erlendum stórborgum á annatíma getur tekið á taugarnar og stundum var flautað hressilega á mig en öryggiskerfi bílsins er svo skilvirkt að ég gat fljótlega slakað á, viss um að hann kæmi mér örugglega á leiðarenda. Umferðartöfin eftirsóttasti tími dagsins? Yfirleitt er leiðinlegt að sitja í umferðarteppu en ekki í EX60. Fyrir utan það að geta notað tímann með Google Gemini gervigreind bílsins til að ganga frá tölvupóstum eða spjalla við hann um eitthvað skemmtilegt þá eru hljómgæðin í þessum bíl fyrsta flokks. Volvo er nefnilega í samstarfi við Bowers & Wilkins, þá sömu og hljóðverið Abbey Road vinnur með og í bílnum eru 28 hátalarar staðsettir víðs vegar um bílinn, meðal annars í höfuðpúðunum. Það er ekki hægt að lýsa hljómgæðunum með orðum, tónlistin hreinlega streymir um bílinn eins og massíf flóðbylgja og gæðin stórkostleg, sama hversu hátt ég snéri Volume-takkanum. Þið verðið bara að prófa, þið verðið ekki fyrir vonbrigðum. EX60 talar íslensku En talandi um að spjalla við bílinn þá er Ex60 er fyrsti bíll Volvo sem búinn er Google Gemini gervigreind. Sjálf sá ég ekki fyrir mér nauðsyn þess að tala við bílinn minn en skil samt hagræðið í því að geta gefið stjórnskipanir án þess að taka hendurnar af stýrinu, eins og að hækka eða lækka hitann í bílnum, og notað tímann á ferðinni til að græja tölvupósta eða fá upplýsingar um næstu búð. Bíllinn skildi reyndar ekki spurningar mínar á íslensku en, þegar ég spurði á ensku út í frægustu kirkju Barcelona og bað hann um að svara mér á íslensku streymdu upplýsingarnar fram á lýtalausri íslensku. Þessi tækni er á fljúgandi siglingu og með tímanum verður hægt að gera meira, spyrja til dæmis hvað fossinn sem við keyrum framhjá heitir og fleira. Sniðugar lausnir í hverju horni Fáguð hönnun er stór ástæða þess hve vel mér líður inni í þessum bíl og innrýmið er allt í sniðugum og handhægum lausnum. Louise Temin sýndi mér hvernig hönnunarteymið færði til dæmis hanskahólfið í miðjuna svo ökumaður næði auðveldlega í það líka. Hægt er að kippa úr því litlu geymsluboxi, sem er úr mjúku gúmmíi, svo það skrölti ekki í lyklum eða smápeningum þar ofan í. Á bak við boxið er hægt að renna greiðslukortinu svo það er ekki sýnilegt en innan seilingar. Símann má hlaða í þráðlausri hleðslustöð fyrir ofan hanskahólfið en auk þess er rauf í hillunni svo það sé hægt að loka hanskahólfinu án þess að klemma hleðslusnúru. Sneddí. Bollahaldarinn í miðjunni með plássi fyrir tvo bolla og hægt að stinga símanum fyrir framan. Nóg pláss er milli sætanna, til dæmis fyrir tösku. „Ég rúlla til dæmis alltaf peysunni minni upp og sting henni þarna á milli, frekar en að henda henni í aftursætið,“ segir hönnuðurinn Louise. „Við hönnuðum bílinn út frá þörfum venjulegs fólks og hversdagslegu lífi og í samvinnu við öryggisteymi Volvo,“ bætir hún við. „Til dæmis nýttum við okkur að aftast í farangursrýminu skapaðist aukarými við hönnun grindarinnar í bílnum og þar bjuggum við til geymsluhólf. Hólfinu er hægt að loka með tvískiptu loki svo hægt sé að ná í hluti án þess að þurfa að færa allt til í skottinu til að opna allan hlerann. Öðrum megin hönnuðum við vatnshelda tösku sem hægt er að kippa með sér í búðina eða geyma farangur í og við hliðina settum við plastfötu með lítrakvarða.“ Ha, af hverju? „Við Svíar erum alltaf að stoppa með krakkana og veiða krabba, þá er gott að vera með fötu meðferðis. Stundum eldum við úti og sækjum vatn í læk, þá er gott að vera með lítrakvarða á fötunni,“ segir Louise. Auðvitað! Pínulítil leiðbeiningamynd á afturhleranum sem sýnir hverju þú kemur fyrir í farangurshólfinu. Sænskt skipulag í essinu sínu. Áratugareynsla í öryggismálum Dr. Isabelle Stockman er sérfræðingur í barnavernd og öryggi hjá Volvo. Hún vinnur meðal annars með slysarannsóknir og þróun öryggiskerfa fyrir börn í bílum og kom að hönnun öryggislausna í EX60 og segir Volvo byggja á áratuga rannsóknum. „Grind bílsins er sérstaklega styrkt á þeim stöðum þar sem gögn undanfarinna ára sýna okkur hvers konar slys hafa gerst og afleiðingarnar,“ útskýrir Isabelle. „Sem dæmi er ramminn kringum framrúðuna sérstaklega styrktur því í Svíþjóð er algengt að keyrt sé á elg. Elgir eru mjög þung dýr og háfætt svo massinn lendir ofarlega á bílnum.“ Svo sem lítil hætta á að keyra á elg á Íslandi en þessi styrking skilar auðvitað auknu öryggi við fleiri aðstæður. Loftpúðar eru staðsettir víðs vegar um bílinn og þá er Volvo EX60 fyrsti bíllinn sem búinn er nýju öryggisbelti, svokölluðu fjölaðlögunarbelti (e. Multi-Adaptive) sem skynjar stærð, þyngd og stellingu þess sem notar beltið og gefur mismunandi mikið eftir við högg með tilliti til þess, auk hraða bílsins og hvaðan höggið kemur. Þegar ég ek af stað og eyk hraðann finn ég hvernig beltið aðlagar sig að mér og þrengir örlítið þéttar að. Þetta skilar mikilli öryggistilfinningu og í heildina líður mér mjög vel í bílnum, eins og hann muni passa upp á mig sama hvað gerist. „Skynjarar, radarar og myndavélar utan á bílnum „fylgjast með“ umhverfinu, merkingum í götunni og öðrum ökutækjum. Ef EX60 ekur yfir hálkublett á vegi sendir hann meira að segja upplýsingar um það upp í skýið og aðrir EX60 á sömu leið fá tilkynningu um hálku fram undan,“ útskýrir Isabelle. Þar kemur skýringin á Hugin Core-nafninu en það er eftir hrafni Óðins en Óðinn lét einmitt hrafna sína fljúga um heiminn og safna fyrir sig upplýsingum. Tekur við keflinu af vinsælasta bíl Volvo EX60 er líklega mikilvægasti nýi Volvo-bíllinn í dag og má segja að hann sé hugsaður sem rafknúinn arftaki XC60 sem er mest seldi Volvo-bíll allra tíma. Volvo vonast til að EX60 nái sama árangri á rafbílamarkaðnum. Þeir eru í sama stærðarflokki og höfða til sömu kaupenda, enda segir Lorina Gewargis, sem leiddi vöruþróun EX60 (e. Vehicle Product Leader) stærstu áskorunina við hönnun EX60 að hann stæðist samanburð við XC60. EX60 þyrfti að minnsta kosti að vera jafn góður en helst betri og bjóða upp á eitthvað nýtt.„Þetta var áskorun en ég held að okkur hafi tekist það enda unnu sérfræðingar og tæknifólk saman þvert á hvert svið svo útkoman er traustur og skilvirkur fjölskyldubíll,“ segir hún. Mega Casting minnkar kolefnisspor Rafhlaðan er sambyggð inn í botnplötu EX60 sem þýðir m.a. lægri þyngdarpunkt, flatari botn og því meira rými innan í bílnum. Þá er grind bílsins sterkari og stífari en í fyrri bílum Volvo því hún er steypt í stærri einingum en áður var hægt (e. Mega Casting). Með þessari tækni var einnig hægt að endurvinna meira ál og í grind bílsins eru 27% úr endurunnu áli sem minnkar kolefnisspor Volvo talsvert," útskýrir Lorina. Hvernig flöt rafhlaðan er innbyggð í grindina hefur létt bílinn um 70 kg, sem er mikilvægt upp á eyðslu, en jafnframt lækkaði það þyngdarpunkt bílsins svo hann liggur betur á vegi. Flöt rafhlaðan hefur einnig skapað aukarými innan í bílnum og ég finn greinilega fyrir því, bæði frammí og afturí. Uppfyllir miklu meira en lágmarkskröfur Í mínum miðaldra huga skiptir mestu máli að bíll renni ljúflega, það fari vel um mig og allar aðgerðir liggi frekar beint við og það er sannarlega tilfellið hér. En Ex60 gerir meira en að uppfylla lágmarksskilyrði í mínum bókum þó ég sakna reyndar nudds í sætum. Ég kolféll ég fyrir þessum bíl. Að keyra hann er eins og draumur, ljúfur og léttur og liggur eins og pönnukaka á veginum og það var áhugavert að finna hvernig nýja öryggisbeltið virkar. Stærð bílsins er fullkomin og skandinavísk hönnun algjörlega í essinu sínu í sniðugum útfærslum og þægindunum inni í bílnum. Og ef þessar drægni- og hleðslutölur standast íslenskar aðstæður þá eru stærstu vandamál rafökumanna leyst. Kannski er það bara tilfellið sem stjórnendur Volvo fullyrtu í byrjun árs, engar málamiðlanir og ekkert ves.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Land Rover veisla á laugardaginn Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Greiðsluáskorun „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Sjá meira