Íslenskur áhættureiknir hjálpar milljónum Bandaríkjamanna að koma í veg fyrir blindu Atli Ísleifsson skrifar 13. janúar 2022 07:44 Í efri röð eru þeir Thor Aspelund, Francisco Rojas, Einar Stefánsson og Bala Kamallakharan. Í neðri röð eru þau Ægir Þór Steinarsson, Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir, Arna Guðmundsdóttir. Á myndina vantar Stefán Einarsson. RetinaRisk Íslenska sprotafyrirtækið Risk ehf. og bandarísku sykursýkissamtökin (ADA) hafa gert með sér samkomulag um að gera RetinaRisk áhættureikninn, sem reiknar út áhættu fólks með sykursýki á sjónskerðandi augnsjúkdómum, aðgengilegan almenningi í Bandaríkjunum.
Frá þessu segir í tilkynningu frá RetinaRisk. Kemur fram að reiknirinn sé sá eini sinnar tegundar í heiminum og sé afrakstur yfir tíu ára vísindarannsókna og þróunar á Íslandi og erlendis. „Með þessu samstarfi er stigið fyrsta skrefið með ADA á vegferð í átt að því að gjörbylta einstaklingsbundinni sykursýkismeðferð á heimsvísu. Sykursýki er í dag ein helsta orsök blindu í fólki á vinnualdri um heim allan en koma má í veg fyrir sjónskerðinguna í yfir 90% tilvika með snemmgreiningu og viðeigandi meðferð. Það er til mikils að vinna þar sem Alþjóðasykursýkissamtökin (IDF) gera ráð fyrir að í dag séu í kringum hálfur milljarður manna með sykursýki og sú tala eigi eftir að fara yfir 700 milljónir árið 2045. RetinaRisk mun skipta sköpum til að auka líkur á snemmgreiningu og gera fólki kleift að bregðast við í tíma til að koma í veg fyrir sjónskerðingu og blindu,“ segir í tilkynningunni. RetinaRisk nýtist bæði læknum og sjúklingum til að reikna út áhættu á alvarlegum augnsjúkdómum í sykursýki.RetinaRisk Sá fyrsti í röð áhættureikna fyrir sykursýki Um Risk ehf. (retinarisk.com) segir að það hafi verið stofnað af Einari Stefánssyni augnlækni, Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði, og Örnu Guðmundsdóttur, innkirtlalækni. „RetinaRisk áhættureiknirinn var þróaður með dyggum stuðningi Tækniþróunarsjóðs og innlendra fjárfesta og er sá fyrsti í röð áhættureikna fyrir sykursýki og aðra króníska sjúkdóma sem eru í þróun. Þörfin fyrir vísindalega nákvæm áhættumöt, eins og RetinaRisk, til að bera kennsl á fólk sem þarf aukna heilbrigðisþjónustu og eftirfylgni er orðin gríðarlega mikilvæg í dag. Sjúklingahópar með króníska sjúkdóma, eins og sykursýki, fara ört stækkandi og þörfin fyrir aukna og einstaklingsmiðaða upplýsingagjöf og snjallari forgangsröðun á framboði heilbrigðisþjónustu mun aukast verulega á næstu árum. Það sterka vísinda- og þróunarstarf sem Risk ehf. hefur unnið síðustu 10 ár setur fyrirtækið í fremstu röð til að mæta þessari þörf. Bandarísku sykursýkissamtökin, eða ADA (diabetes.org), eru stærstu sykursýkissamtök heims og leiðandi á sviði sykursýkismeðferðar. Mikið vísindastarf er unnið innan samtakana og alþjóðlegir staðlar um meðferð og skilgreiningu á sjúkdómnum eiga oftar en ekki uppruna sinn innan veggja þeirra.“ Þróa samstarfið áfram Haft er eftir Sigurbjörgu Ástu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra, að Risk ehf. og bandarísku sykursýkissamtökin mini halda áfram að þróa samstarfið. „Við erum afar ánægð með þetta samstarf með ADA en í því felst mikil viðurkenning á RetinaRisk áhættureikninum. Samstarfið mun nýtast okkur sem stökkpallur inn á Bandaríkjamarkað, sem er einn af mikilvægustu mörkuðum heims fyrir stafrænar heilbrigðislausnir tengdar sykursýki,” segir Sigurbjörg Ásta.
Nýsköpun Íslendingar erlendis Bandaríkin Heilbrigðismál Mest lesið Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Sjá meira